Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Page 37
FÓKUS 3727. september 2019
bak við Gilligan‘s Island og The
Brady Bunch, ráðlagði frændum
sínum að kaupa réttinn að þátt
unum af GTG, sem þeir gerðu fyrir
tíu dollara. Þeir báðu Hasselhoff
um að taka á sig fimmtíu pró
senta launalækkun og fá hlutverk
framleiðanda. Hann samþykkti
það og tengsl hans í Þýskalandi
tryggðu þeim þrjú hundruð þús
und dollara fjármagn á þátt frá
meginlandi Evrópu.
18. Leikur verður raunveruleiki
Eleniak og Warlock, sem léku
Shauni og Eddie, voru ástfangin
bæði fyrir framan og aftan
myndavélina. Sögusagnir fóru á
kreik um að þau hafi beðið um
of há laun og þess vegna hafi
þau hætt eftir annan þátt í þriðju
þáttaröð. Þau giftu sig síðan og
fluttu til Ástralíu, en ástin slokkn
aði að lokum.
19. „Þetta er fjölskylduþáttur“
Pamela Anderson sló síðar í gegn
sem C.J. Parker en Hasselhoff
vildi ekki ráða hana í fyrstu. „Ég
vil ekki neinn úr Playboy. Þetta
er fjölskylduþáttur,“ sagði hann í
viðtali við New York Times.
20. Kynlífsmyndbandið
Þegar kynlífsmyndbandi Ander
son og þáverandi eiginmanns
hennar, Tommy Lee, var lekið
um miðjan tíunda áratug síð
ustu aldar, fóru einhverjar sjón
varpsstöðvar fram á að Baywatch
yrði tekinn af dagskrá. Á sama
tíma ruku áhorfstölur upp vegna
myndbandsins alræmda.
21. Leo vildi hlutverkið
Brandon Call lék son Mitch,
Hobie, í fyrstu þáttaröð. Leikar
inn Leonardo DiCaprio vildi hlut
verkið en Hasselhoff vildi yngri
leikara. Í framhaldinu fékk hinn
tíu ára Jeremy Jackson hlutverkið.
Það eyðilagði leiklistarferil hans.
Hann féll í heim vímuefna og
frægðin steig honum til höfuðs.
22. Dópdjöfullinn
Jackson var ekki sá eini sem var
í klípu því leikkonan Yasmine
Bleeth hætti í þáttunum árið 1997
þegar vímuefnadjöfullinn hélt
henni í heljargreipum.
23. Öll fjölskyldan með
Leikkonan Mila Kunis kom tvisvar
fram í þáttunum, í fyrsta sinn árið
1994 sem stúlka sem kallaði á
hjálp þegar vinkona hennar var
að drukkna og í seinna skiptið
árið 1995. Þá lék hún blinda
stúlku sem þurfti að bjarga úr
eldsvoða. Öll fjölskylda hennar
kom með á settið til að sjá Pamelu
Anderson með berum augum.
24. Þrjár eiginkonur
Önnur eiginkona Mitch Buchann
on, Neely Capshaw, var leikin af
þremur mismunandi leikkonum;
Heather Campbell, Genu Lee
Nolin og Jennifer Campbell.
25. Æ efnisminni
Engir af rauðu sundbolunum
sem kvenkyns lífverðirnir klædd
ust voru eins heldur voru þeir sér
saumaðir á hverja konu. Sund
fatafyrirtækið TYR hjálpaði til við
hönnun á upprunalegu sundbol
unum. Sundbolirnir urðu efnis
minni með tímanum.
26. Innrammaður
Það var í raun partur af
áheyrnarprufum að láta sjá sig í
sundbol. Carmen Electra er með
sinn sundbol í ramma heima hjá
sér, en hún þurfti frá að hverfa
eftir eina þáttaröð þegar móðir
hennar varð veik.
27. Strangar kröfur
Alexandra Paul fór upprunalega
í prufu sem C.J. en endaði á að
leika Stephanie Holden í 5 þáttar
aðir. Hún sagði í viðtali árið 2014
að það hefði verið klausa í samn
ingum leikara að þeir mættu ekki
þyngjast um meira en tvö kíló á
meðan þeir léku í þáttunum.
28. Enginn þrýstingur
Nicole Eggert, sem lék Summer
Quinn í 2 þáttaröðum, hefur talað
opinskátt um að hún sjái eftir að
hafa leikið í þáttunum. Mikið var
slúðrað um að framleiðendur
þáttanna hefðu þrýst á hana um
að fara í brjóstastækkun en í við
tali við Opruh Winfrey árið 2015
sagði Eggert að það hefði algjör
lega verið hennar eigin ákvörðun.
29. Í hættu
Anderson hætti í þáttunum árið
1997 og þátturinn Baywatch
Nights var tekinn af dagskrá eftir
tvær þáttaraðir. Hætt var við að
Baywatchþættirnir yrðu teknir
úr umferð í nóvember árið 1998
en þá var framleiðslan flutt til
Ástralíu til að spara peninga.
30. Endalok Mitch Buchannon
Síðustu tvær þáttaraðirnar voru
hins vegar teknar upp á Havaí
og hétu þættirnir þá Baywatch
Hawaii. Kvenkyns lífverðir skiptu
rauðu sundbolunum út fyrir gula
til að líkja eftir lífvarðafatnaði á
Havaí. Hasselhoff hætti eftir fyrri
af þessum tveimur þáttaröðum
og var klipptur út í lokin og látinn
deyja í sprengingu. Hasselhoff
vissi það ekki fyrr en hann sá þátt
inn í sjónvarpinu. n
1. Titillinn
Nafnið Baywatch vísar í björg
unarbáta sem hafa haft eftirlit
með ströndum SuðurKaliforníu
áratugum saman.
2. Upphafið
Það var lífvörðurinn Greg Bonann
sem fékk hugmyndina að þáttun
um þegar hann byrjaði að starfa
við öryggisvörslu á ströndum í
Los Angeles árið 1970.
3. Þrautaganga
Bonann kynnti þáttinn fyrir öll
um í sjónvarpsbransanum sem
hann fékk fund hjá í heilan ára
tug.
4. Örlögin
Svo gripu örlögin í taumana og
systir Bonann trúlofaðist hand
ritshöfundinum Doug Schwartz
sem hafði gert fjölmargar sjón
varpsmyndir með frænda sínum
og viðskiptafélaga, Michael Berk.
Bonann bauð þeim Schwartz og
Berk að koma með sér á árlegu líf
varðaleikana og þeir sannfærðust
um að hugmyndin væri góð.
5. Loksins kom tækifærið
Brandon Tartikoff, fyrrverandi
forstjóri NBC, var sá fyrsti sem
kveikti á hugmyndinni og pant
aði sjónvarpsmynd árið 1988 sem
myndi verða fyrsti þátturinn (e.
Pilot) af Baywatch. Handritið var
skrifað á þremur mánuðum.
6. Hasselhoff ekki fyrsta val
Meðal leikaranna sem komu
til greina í hlutverk lífvarðar
ins Mitch Buchannon voru
hjartaknúsarinn Lorenzo Lamas
úr Falcon Crest, The Dukes of
Hazzardstjarnan Tom Wopat og
breski leikarinn Adrian Paul, sem
átti síðar eftir að slá í gegn í sjón
varpsþáttunum Highlander.
7. Óviss í fyrstu
Hasselhoff var á þessum tíma
mjög vinsæll söngvari í Þýska
landi og Austurríki og vildi ekki
leika í Baywatch í fyrstu. Hann
kallaði þáttinn „Knight Rider í
sundfötum“.
8. Tók óvænta stefnu
Framleiðendur þáttanna vildu
fyrst gera þætti um hversdagsleg
ævintýri lífvarða en NBC vildi
tvinna það saman við morðgátur
og dularfull sakamál.
9. Playboy-hneykslið
Erika Eleniak, sem lék Shauni
McClain, var næstum því rekin
þegar að forsvarsmenn NBC
komust að því að hún hefði setið
fyrir nakin fyrir Playboy. Fram
leiðendur börðust fyrir henni, en
þeir töldu hana betri í hlutverkið
en til að mynda Teri Hatcher,
Neve Campbell og Alicia Silver
stone, sem allar komu til greina.
10. Hrædd við vatnið
Shawn Weatherly var ráðin til að
leika Jill Riley á síðustu stundu og
kom í staðinn fyrir Pamelu Bowen
eftir að hún fríkaði út á settinu. Þá
kom í ljós að Bowen var logandi
hrædd við vatn.
11. Hákarlahasar
Þó að fyrsti þátturinn hafi verið
tekinn upp í Los Angeles í þægi
legum hita þá var samt ekki nógu
heitt þannig að framleiðslan var
flutt til Havaí. Þar var hitastigið
fullkomið en hins vegar svam
landi hákarlar í hafinu. Því þurftu
menn með deyfibyssur að passa
upp á „strandverðina“.
12. Öðruvísi markaðir
Það var tekinn upp annar fyrsti
þáttur fyrir evrópskan markað en
helsti munurinn á bandaríska og
evrópska þættinum var að það
var nekt í þeim síðarnefnda.
13. Bjargaði lífi drengs
Bonann ákvað að fara með fram
leiðendum og handritshöfund
um þáttanna á Venice Beach til
að skoða tökustaði eftir að þeir
fengu þær fréttir að þeir þyrftu að
gera tólf þætti til viðbótar af Bay
watch. Skyndilega hljóp drengur
að Bonann og sagði honum að
bróðir sinn væri að drukkna. Bon
ann stakk sér til sunds og bjargaði
lífi hans.
14. Grimm endalok
Shawn Weatherly fékk fljótt leiða
á hlutverki Jill þannig að hún
ákvað að yfirgefa þáttinn eftir
eina þáttaröð. Hún var skrifuð út
með því að hákarl réðst á hana.
15. Sótthreinsaðir líkamar
Á þessum tíma var sjórinn fullur
af rusli og öðrum vafasömum
efnum þannig að sjúkraliðar
þurftu að sótthreinsa leikarana
um leið og þeir komu úr vatninu.
Þá voru öll líkamsop úðuð með
sótthreinsi.
16. Hætt við allt saman
Þó að Baywatch hafi verið vinsæl
asti þáttur NBC á föstudagskvöld
um þá voru viðtökurnar ekki í
samræmi við það. Þess vegna var
framleiðslu á þáttunum hætt eftir
22 þætti. Enn fremur var verið að
loka kvikmyndaverinu á bak við
framleiðsluna, GTG.
17. Tíu dollarar margfölduðust
Frændi Berk og Schwartz,
Sherwood Schwartz, maðurinn á
Þættirnir Baywatch fóru upprunalega í sýningar
á sjónvarpsstöðinni NBC í september árið 1989, eða
fyrir 30 árum. Þótt upphafið hafi gengið brösulega
urðu þeir fljótt vinsælustu þættir í heim. DV leit á
30 staðreyndir um þættina á 30 ára afmælinu.
30 brjálaðar staðreyndir um