Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 27
Jóla- og villibráðahlaðborð27. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
Jólamatseðill Kol og
sívinsæl villibráðarsúpa
Veitingastaðurinn Kol opnaði dyr sínar fyrir sex árum síðan. „Frá árinu 2014
höfum við boðið gestum okkar upp
á jólamatseðil og í ár verður hann
með svipuðu sniði og undanfarin
ár. Villibráðarsúpan okkar vinsæla
verður að sjálfsögðu á boðstólum og
svo fylgja í kjölfarið gómsætir réttir
með hæfilegu jólaívafi,“ segir Gunnar
Rafn Heiðarsson, einn eigenda Kol
Restaurant. Aðrir eigendur eru Óli
Már Ólason, Andri Björn Björnsson
og Sævar Lárusson.
Kol minnir á jólin
Jólin á Kol byrja hátíðlega þann
21. nóvember og standa fram til
23. desember. „Við pössum okkur
á að vera ekkert að jóla yfir okkur
eða gesti okkar. Staðurinn er
smekklega skreyttur í anda jólanna
og nokkurn veginn fimmta hvert lag
á spilunarlistanum er jólalag. Það er
vel hægt að finna fyrir jólaandanum
á Kol en við virðum líka þá sem eru
með smá ofnæmi fyrir jólunum.
Hingað eru allir velkomnir. Maturinn
minnir sömuleiðis á jólin án
þess að vera nákvæmlega það
sem fólk er sjálft með í matinn
á jólunum. Hugmyndafræðin
á bak við matseðilinn er þá að
blanda saman einfaldlega góðum
hráefnum við hluti og bragð sem
fólk tengir við jólin. Þannig náum
við að setja okkar „tvist“ á jólin.
Samhliða jólamatseðlinum er svo
hægt að panta af hefðbundna
matseðlinum.“ Þann 21. nóvember
lendir jólakokteill Kol á barborðinu
með pomp og prakt. „Við erum
alltaf með einn til tvo jólakokteila í
boði sem og heitan jóladrykk sem
er okkar eigin útúrsnúningur á
jólaglöggi.“
Villibráðarsúpa sem slær
árlega í gegn
„Við byrjum að vanda á
villibráðarsúpunni okkar víðfrægu,
en súpan er það vinsæl að margir
hafa forvitnast um hvort hægt sé
að kaupa af okkur pott af súpunni
fyrir jólaboð. Það er sjaldgæft að við
höfum mikinn aukatíma í að skella
í aukapotta af súpu en við látum
uppskriftina fúslega af hendi til
þeirra sem vilja búa hana til sjálfir.“
Næst á eftir villibráðarsúpunni
er jólaplattinn borinn fram. „Þetta
er stór forréttaplatti með ýmsu
góðgæti úr sjó og lofti og af landi.
Þá erum við með grafna rjúpu og
tvíreyktan hangikjötstartar ásamt
ýmsu gómsætu fiskmeti. Þá er
graflaxtartar með sýrðum lauk og
sinnepssósu, grillaðar tígrisrækjur,
laxaceviche, kolaður túnfiskur og
íslensk bláskel.
Í aðalrétt berum við fram
hreindýrafillet og andarconfit með
sætkartöflu- og svarthvítlauksmauki,
steiktum sveppum og möndlum,
rósmarín-kartöflumús og rósmarín-
velutésósu. Fyrir þá sem vilja frekar
fara í fiskinn er hægt að velja laxinn
okkar í aðalrétt.“
Dýrindis piparkökuostakaka
með rauðeplasorbet, möndlum og
tilheyrandi slær svo botninn í þennan
girnilega jólamatseðli hjá Kol.
Jólin í hádeginu
Jólamatseðillinn á Kol er í boði öll
kvöld fram að 23. desember, en
í hádeginu er seðillinn með örlítið
breyttri áherslu. „Við byrjum að
sjálfsögðu á villibráðarsúpunni.
Næst kemur léttur forréttur sem
samanstendur af tvíreyktum
hangikjötstartar og graflaxi. Í
aðalrétt er ljúffeng purusteik og svo
er piparkökuostakakan í eftirrétt.
Jólahádegin hjá Kol eru afar
eftirsótt hjá smærri fyrirtækjahópum
sem og vinahópum sem langar að
hittast aðeins fyrir jólin.“
Kol er opið alla daga fram til
23. desember. Lokað er 24. og 25.
desember en staðurinn opnaður
aftur 26. desember. „Þá berum við
aftur fram hefðbundna seðilinn.
Fólk er nú þegar byrjað að bóka
jólamatseðilinn hjá okkur, af þeim
pöntuðu þónokkrir í desember í fyrra.“
Kol er staðsettur að Skólavörðustíg
40, 101 Reykjavík
Bókaðu borð á vefsíðu staðarins,
kolrestaurant.is
Fylgstu með á Facebook: Kol
Restaurant
Twitter: @kolrestaurant
Sími: 517-7474.
Vefpóstur: info@kolrestaurant.is
Myndir: Gunnar Rafn Heiðarsson.