Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 2

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 2
Það þýðir bara að skólinn þarf að skera niður sérkennslu og það þýðir skerta þjónustu. Kristinn Breiðfjörð starfsmaður Skóla- stjórafélagsins Norðaustan 5-13 í dag en 13-18 allra syðst. Él á austanverðu landinu en bjartviðri á Vesturlandi. Frostlaust með suðurströndinni en annars allt að 12 stiga frost, kaldast inn til landsins. Sjá Síðu 48 Veður Betri ferð - vita.is fyrir betra verð Verð frá: 109.900 12.500 vildarpunktar Á mann m.v 2 fullorðna og 2 börn á Albir Playa í 11 nætur með hálfu fæði. Páskar á ALICANTE 18.mars NeyteNdur Matarsóun er eitt stærsta umhverfisvandamál heims- ins í dag. Breskar rannsóknir sýna að þriðjungur þess matar sem komið er með inn á heimili fólks lendir í ruslinu. Dönsk rannsókn sýnir að sóun í matvælaframleiðslu sé gríðarleg og árlega fari 400 millj- ón tonn af grænmeti og ávöxtum til spillis. Það er ríflega þriðjungur heimsframleiðslunnar. Forrann- sókn Landverndar á matarsóun í Reykjavík bendir til þess að 5.800 tonnum af mat og drykk sé hent á heimilum árlega. Heildarmat- arsóun á hvern Reykvíking sé að minnsta kosti 48 kíló á ári. Grænmetisbóndinn Ragnhildur Þórarinsdóttir, sem á fyrirtækið SR grænmeti á Flúðum, hefur snúið vörn í sókn í þessum efnum. Hún selur svokallaðar safagulrætur í 1,5 kílóa pokum undir vörumerkinu Frískandi. Gulræturnar eru gjarnan brotnar eða hafa komið margarma upp úr jörðu og mörgum neyt- endum kann að þykja þær svolítið ófríðar. Gulræturnar eru seldar á lægra verði en fyrsta flokks fallegar gulrætur. „Við reynum að gera þetta eins snyrtilega og við getum. Við reyn- um að nýta allt sem til fellur,“ segir Ragnhildur. „Ég þoli ekki að henda matvöru en geri allt of mikið af því. Það er svo mikið af öðrum flokki [græn- metis] sem nýtist illa.“ Gulræturnar eru tíndar úr hópi fyrsta flokks gulróta og snyrtar til. Alla jafna hefðu þær lent í ruslinu en svo virðist sem neytendur séu æstir í þær. Ragnhildur segir að gulræturnar mokseljist til dæmis hjá versluninni Frú Laugu. „Ég var byrjuð að senda litlar rófur en þær seljast ekki. Það er svo skrýtið að við virðumst ekki vilja of stórar rófur og heldur ekki litlar rófur þó þær séu á lægra verði. Við verðum að hafa þær í hálfu kílói eða aðeins meira, annars kaupir fólk þær ekki.“ Ragnhildur segist finna fyrir vakningu fyrir því að kaupa ódýr- ara grænmeti með einhver lýti. „Þetta eru mjög bragðgóðar gul- rætur, ég hef verið mjög heppin með afbrigði.“ snaeros@frettabladid.is Ljótar gulrætur seljast eins og heitar lummur Grænmetisbóndinn Ragnhildur Þórarinsdóttir snýr vörn í sókn gegn matar­ sóun og selur annars flokks gulrætur á betra verði sem safagulrætur. Ragnhildur Þórarinsdóttir grænmetisbóndi með safagulræturnar sem neytendur eru loksins að átta sig á að séu jafn bragðgóðar og fallegu fyrsta flokks gulræturnar. Mynd/Agnes BöðvARsdóttiR Það er svo skrýtið að við virðumst ekki vilja of stórar rófur og heldur ekki litlar rófur þó þær séu á lægra verði. Við verðum að hafa þær í hálfu kílói eða aðeins meira, annars kaupir fólk þær ekki. Ragnhildur Þórarinsdóttir grænmetisbóndi  Marshall-samningar undirritaðir Reykjavíkurborg og útgerðarfyrirtækið HB Grandi skrifuðu undir samninga um Marshall-húsið. Þar verður myndlistar- og menningarhús. Mar shall húsið er að Grandagarði 20, byggt sem síldarverksmiðja, sem að hluta til var fjármögnuð með Marshall-aðstoð Bandaríkjanna. FRéttABlAðið/eRniR BaNdaríkiN Bernie Sanders mælist nú með jafnmikið fylgi og Hillary Clinton í Nevada, þar sem næst verða haldnar forkosningar demókrata um það hver verður forsetaefni flokksins. Í könnun Free Beacon, sem er fyrsta könnunin á fylgi frambjóð- enda í ríkinu síðan í desember, mæl- ast Sanders og Clinton með 45 pró- senta fylgi hvort um sig. Í desember mæltist Clinton hins vegar með 50 prósent  og  Sanders 27 prósent í könnun Gravis. Könnunin  er birt eftir stórsig- ur  Sanders í New Hampshire, þar sem hann hlaut 60 prósent atkvæða en Clinton 38 prósent, og kappræður sem fóru fram aðfaranótt gærdags- ins. Kappræðurnar þóttu nokkuð jafnar og vakti gagnrýni Clinton á ummæli Sanders um að Barack Obama væri „veikur forseti“ mesta athygli. -– þea Sanders upp að hlið Clinton í Nevada Skólamál Félag grunnskólakennara og Skólastjórafélag Íslands hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna fjár- hagsstöðu grunnskóla Reykjavíkur. Ljóst sé að stjórnendur þurfi víða að grípa til niðurskurðar í rekstri skólanna vegna óvæntrar hagræð- ingarkröfu undir lok síðasta árs, ófullnægjandi leiðréttingar vegna nýrra kjarasamninga og of lágs framlags til stoðþjónustu. Kristinn Breiðfjörð, starfsmaður Skólastjórafélagsins, segir að skóla- stjórar hafi gert ráð fyrir að nýir kjarasamningar kennara yrðu bættir til skólanna en komið hafi í ljós seint á síðasta ári að þáttur sérkennslunnar yrði ekki bættur. „Það þýðir bara að skólinn þarf að skera niður sérkennslu og það þýðir skerta þjónustu. Það er grafalvarlegt að fá að vita um þetta undir lok árs, þá er ekki hægt að gera neinar ráð- stafanir,“ segir Kristinn. Róðurinn hefur verið þungur fyrir skólana frá hruni og hefur, ef eitthvað er, þyngst að mati Kristins. „Það hefur ekki verið bætt í rekstur grunnskólanna frá hruni en sífellt verið bætt í niðurskurðinn.“ – ebg Sérkennsla skert í skólum Margir skólar hefa ekki fengið fjármagn til endurnýjunar búnaðar annars en tölva frá hruni. FRéttABlAðið/vilhelM 1 3 . f e B r ú a r 2 0 1 6 l a u G a r d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.