Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 10

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 10
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Reykjavík mánudagur 15. febrúar kl. 18:30 Reykjavík Natura hótel Vestmannaeyjar þriðjudagur 16. febrúar kl. 12:00 VR, Strandvegi 54 Egilsstaðir fimmtudagur 18. febrúar kl. 17:00 VR, Kaupvangi 3B Atkvæðagreiðsla um samningana hefst þann 16. febrúar og lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 24. febrúar. Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á kynningarfund! Léttar veitingar í boði. Við bjóðum þér á fund VR boðar til félagsfunda til að kynna nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda sem undirritaðir voru í janúar sl. Fundirnir verða haldnir á félagssvæði VR sem hér segir: Lífeyrissjóður verzlunarmanna | Kringlan 7 | 103 Reykjavík | Sími 580 4000 | skrifstofa@live.is Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 15. mars kl. 18:00 á Grand Hótel Reykjavík. DAGSKRÁ FUNDARINS » Venjuleg ársfundarstörf » Erindi tryggingafræðings sjóðsins » Önnur mál Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 21. janúar 2016 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur 2016 live.is Kjaramál „Bati á vinnumarkaði var umtalsverður árið 2015, sé miðað við atvinnuleysi eða hlutfall starfandi. Sá bati virðist skila sér til elsta launahópsins, hlutfall starf- andi á aldrinum 55 til 74 ára er nú með því hæsta sem sést hefur árum saman,“ segir í nýrri umfjöllun VR og vísað í nýjasta efnahagsyfirlit stéttarfélagsins. Þar kemur fram að atvinnuleysi hafi minnkað um eitt prósentustig og mælst 4,0 prósent á árinu 2015. „Hlutfall starfandi hækkaði um 1,8 prósentustig og var 79,2 pró- sent sem er hærra en gildið 2004,“ segir í efnahagsyfirlitinu. „Hlutfall starfandi þarf þó að hækka um 2,2 prósentustig til að ná hámarkinu 2007.“ Batinn er þó sagður hafa skilað sér misvel eftir aldurshópum og kynjum. „Hlutfall starfandi hefur aukist talsvert frá hruni hjá aldurs- hópnum 16 til 24 ára og meðal kvenna í þeim aldurshópi hefur það ekki mælst hærra í rúman ára- tug,“ segir í umfjöllun VR. Sama er sagt eiga við um elsta hópinn, 55 til 74 ára. „Hlutfall starfandi kvenna á þeim aldri hefur ekki mælst hærra á tímabilinu 2003 til 2015 og afar lítið vantar upp á að karlar nái hámark- inu 2006.“ – óká Fleiri fá vinnu í elsta hópi SveitarStjórnarmál Bæjarráð Ölf- uss tekur undir áskorun bæjarráðs Árborgar til Vegagerðarinnar frá því í janúarlok um að breytt verði skilgreiningum á vetrarþjónustu á Suðurstrandarvegi. Farið er fram á að þjónusta á veginum verði færð upp um þjónustuflokk. „Miðað við umferð ætti Suður- strandarvegur að vera í þjónustu- flokki 3 og vera með vetrarþjónustu 5 daga vikunnar. Vegna tíðra lokana Suðurlands- vegar á Hellisheiði og í Þrengslum er mjög brýnt að hafa möguleika á að beina umferð um Suður- strandarveg,“ segir í bókun bæjaráðs Árborgar. „Lokanir á Suðurlandsvegi hafa mikil og neikvæð áhrif á íbúa og fyrirtæki á svæðinu og er nauð- synlegt að hafa aðra leið færa milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðis- ins/Suðurnesja.“ Bæjarráð Ölfuss hefur nú falið bæjarstjóra sínum að fylgja málinu eftir við Vegagerðina og áréttar jafn- framt að til að tryggja öryggi vegfar- enda og út frá almannavarnasjónar- miðum þurfi sem fyrst að ráðast í uppsetningu senda á Suðurstrand- arvegi og Þrengslavegi. „En stór hluti Suðurstrandarvegar og hluti Þrengslavegar eru utan farsímasam- bands,“ segir í bókun bæjarráðsins á fundi þess 11. þessa mánaðar. Bók- unin var samþykkt samhljóða. – óká Bæjarráð Ölfuss vill fá þjónustu og farsímasenda Mögulega hafa einhverjir þurft af slíta sig frá golfinu vegna aukinnar atvinnuþátt- töku fólks í elsta hópi. Fréttablaðið/Pjetur Þótt Suðurstrandarvegur milli Grindavíkur og Þorlákshafnar sé greiðfær á sumrin er ekki sömu sögu að segja allan veturinn. Fréttablaðið/GVa 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.