Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 18

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Fyrir rúmu ári var því fagnað að aldarfjórðungur var liðinn frá falli Berlínarmúrsins og endalokum kalda stríðsins. Skugga bar á hátíðahöldin er þau stóðu sem hæst þegar Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, sagði á málþingi í Berlín að veröldin væri á barmi nýs kalds stríðs. „Sumir segja að það sé nú þegar hafið,“ bætti hann við. Æ erfiðara verður að hunsa varnaðarorð Gorbatsjov og fleiri sem óskhyggju gamalla kaldastríðsjaxla sem komust aldrei yfir áfallið sem þeir urðu fyrir þegar í ljós kom að heimurinn er ekki eins og hátísku-eldhús: Svartur og hvítur, sléttur og felldur, markaður skýrum línum sem hanga saman á hörðum nöglum og ein- faldri hugmyndafræði. Fréttir vikunnar voru eins og blautar draumfarir Styrmis Gunnars og Björns Bjarna: Bretar hyggjast tvöfalda stærð flotans sem þeir leggja til Nató; Rússar stunda njósnir í Noregi; Nató íhugar að senda mörg þúsund hermenn til Austur-Evrópu. Og klæmaxið: Bandaríski herinn daðrar við að koma sér aftur fyrir á Miðnesheiði. Fyrir þeim sem ólust ekki upp við yfirvofandi inn- rás Rauða hersins er ógnin um nýtt kalt stríð dálítið eins og ógnin um að sogast inn í sjónvarpstækið sitt. Hugtakið kalda stríðið vekur meiri hugrenningatengsl við sovéska boxarann Ivan Drago, fjandmann Rocky, en menn eins og Krústsjov og Brésnev. En kannski eru hugrenningatengsl við skáldskap einmitt ekki svo fjarri lagi þegar kemur að kalda stríðinu. Óvenjulegt verkefni Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að leiðtoga- fundi Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og Gorbat- sjov lauk í Reykjavík í október 1986 hringdi Reagan í Margréti Thatcher, forsætisráðherra Breta, til að gefa henni skýrslu. Á fundinum höfðu Reagan og Gorbat- sjov meðal annars rætt afvopnunarmál. Fundinum var hins vegar slitið án niðurstöðu. Í símtalinu setti Reagan járnfrúnni fyrir óvenjulegt verkefni. Nýlega var leynd létt af skjölum Charles Powell, fyrrum ráðgjafa Margrétar Thatcher í utanríkis- málum. Í minnisblaði sem merkt er „leyndarmál“ kemur fram hvað Reagan og Thatcher fór á milli eftir fundinn í Höfða. Powell greinir frá að þau hafi rætt fækkun kjarna- vopna, mál sem forsetanum var hugleikið en That- cher var alfarið á móti. „Þegar forsætisráðherrann ítrekaði hversu mikilvæg kjarnavopn væru vegna fælingarmáttar þeirra í ljósi yfirburða Rússa á sviði hefðbundins herafla voru svör forsetans loðin,“ skrifar Powell. „Hann sýndi engin merki þess að hann hygðist víkja frá hugmyndum sínum um að vinna að því marki að losa heiminn við kjarnavopn innan tíu ára.“ Reagan var mjög í mun að hjálpa Thatcher að átta sig á ásetningi Sovétmanna og hugsunarhætti þeirra. Í leynilega minnisblaðinu segir Powell að Reagan hafi ítrekað reynt að fá Thatcher til að lesa bók eftir bandaríska spennusagnahöfundinn Tom Clancy sem kallaðist Red Storm Rising í þeim tilgangi að auka á skilning hennar. „Honum þótti greinilega mikið til bókarinnar koma,“ hafði Powell á orði. Rykfallnar skotgrafir Sæluhrollur fer eflaust um einhverja nú þegar glittir í gamlar átakalínur. Rykfallnar skotgrafirnar er þeim jafnljúft að heimsækja og æskuheimilið. Kannski að þar hvíli tilgangurinn sem týndist – já, og fylgið sem hvarf. En áður en leikar æsast er rétt að benda áhuga- sömum á að finna sér heldur fróun í Rocky IV – eða Tom Clancy – í stað þess að draga okkur hin með í pólitískan hildarleik. Sama hver endalok nýs kalds stríðs yrðu er niðurstaða átaka alltaf á einn veg – eða eins og Ivan Drago orðaði það: „Jú vill lús.“ Heimurinn er ekki eins og hátísku-eldhús VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Kjósum um kjara- samning VR og FA Rafræn atkvæðagreiðsla VR-félaga um nýgerðan kjarasamning við Félag atvinnurekenda hefst 16. febrúar kl. 8:00 og lýkur 24. febrúar kl. 12:00 á hádegi. Kjörgögn með nánari upplýsingum berast félagsmönnum á næstu dögum. Kjörstjórn VR Ungri stúlku var neitað um skólamáltíð vegna þess að hún hafði ekki tekið þátt í áskriftarkerfi að skólamáltíðum í grunn-skóla í Reykjavík í vikunni. Úr öðrum skóla heyrðist af því að nemendur í áskriftar- kerfinu og hinir, sem koma með heimabúið nesti, fái ekki að sitja saman. Á yfirborðinu virðast þetta smámál, en svo er ekki þegar að er gætt. Ekki er hægt að draga aðra ályktun en að með þessu kerfi borgarinnar sé verið að mismuna nemendum að óþörfu. Ástæður fyrir því að nemendur taka ekki þátt í áskriftarkerfi að skólamáltíðum geta verið margvíslegar. Í sumum tilvikum eru foreldrar hreinlega ekki ánægðir með matinn sem er í boði, í öðrum geta þær verið efna- hagslegar, stafað af sérstökum áherslum í mataræði eða verið trúarlegs eðlis. Það er engin ástæða til að draga athygli annarra nemenda að slíku með því að láta þá sem neyta matar að heiman sitja á sérstöku afmörkuðu svæði. Nógu erfitt getur verið fyrir krakka að skera sig úr fjöldanum. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst miklum áhyggjum af stöðu minnihlutahópa í breska skólakerfinu. Í því samhengi hefur hann bent á að ungir svartir karlmenn í Bretlandi eru líklegri til að lenda í fangelsi á lífsleiðinni en ljúka háskólaprófi. Hann hefur krafist þess að sjá gögn frá fremstu háskólum landsins, þar með töldum Oxford-háskóla, um hvernig umsóknir fólks af minnihlutahópum séu meðhöndlaðar. Framtak Camerons er aðdáunarvert, og raunar nokkuð merkilegt miðað við hans eigin bakgrunn. Váleg tíðindi úr fangelsum og háskólum sýna líka að aðlögun að nýju samfélagi er langtímaverkefni. Því lýkur ekki með annarri kynslóð, heldur miklu síðar. Annað athyglisvert í því samhengi er að þeir sem líklegastir eru í Bretlandi til að ganga öfgaöflum, á borð við ISIS, á hönd eru gjarnan annarrar eða þriðju kynslóðar inn- flytjendur. Þrátt fyrir að hafa alið alla sína hunds- og kattartíð í Bretlandi finnst þessu fólki það enn ekki vera hluti af heildinni. Bretar hafa mörg hundruð ára reynslu af innflytjend- um. Það höfum við Íslendingar ekki. Við eigum að líta til grannþjóðanna til að læra hvernig taka eigi á móti nýju fólki. Mistök annarra eru víti til varnaðar. Dæmin úr skólunum benda til þess að við séum að reisa girðingar að óþörfu. Viðbrögð formanns Félags skólastjórnenda eru heldur ekki traustvekjandi. Hún telur að mál sem þessi eigi ekkert erindi í fjölmiðla og séu best afgreidd í kyrrþey. Staðreyndin er hins vegar sú að skólakerfi sem neitar börnum um mat, skipar börnum sess eftir því hvað þau fá sér á matmálstímum og frábiður sér umfjöllun, er ekki líklegt til að taka umkvörtunum vel. Auðvitað eru kerfi og ferlar nauðsynleg í umfangs- miklu skólastarfi. Kerfið þarf hins vegar að vera með manneskjulegt andlit. Þar skiptir fólkið á gólfinu öllu máli. Þess vegna hefði átt að segja: „Auðvitað vina mín, fáðu þér pítsu.“ Ljótar fregnir Staðreyndin er hins vegar sú að skóla- kerfi sem neitar börn- um um mat, skipar börnum sess eftir því hvað þau fá sér á matmáls- tímum og frábiður sér umfjöllun, er ekki líklegt til að taka umkvört- unum vel. 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r18 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð i ð SKOÐUN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.