Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 38

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 38
Hljómsveitin goðsagnakennda Risaeðlan kemur fram á tónlistar- hátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin verður á Ísafirði í næsta mánuði. Hljómsveitin hefur ekki haldið hefðbundna tónleika í tvo áratugi og því ljóst að eftirvænting- in er mikil meðal fjölmargra gesta hátíðarinnar. Risaeðlan var nokkuð áberandi í íslensku tónlistarlífi um nokkurra ára skeið en sveitin tengdist útgáfu- fyrirtækinu Smekkleysu sem hafði á sínum snærum sveitir á borð við Sykurmolana, HAM auk fjölda ann- arra listamanna. Hljómsveitin hit- aði m.a. upp fyrir Sykurmolana á tónleikaferðalögum erlendis og smáskífa þeirra var valin smáskífa vikunnar í breska tónlistartímarit- inu NME árið 1989. Sigurður Guðmundsson, gítar- leikari sveitarinnar, hefur aldrei sótt hátíðina en hlakkar mikið til og segist hafa heyrt gott eitt um hana. „Við spiluðum mikið fyrir vestan í gamla daga og líkar mjög vel þar. Aðstandendur hátíðarinnar eru líka toppfólk, við hefðum ekki nennt þessu fyrir hvern sem er. Við erum aðeins byrjuð að æfa og erum að rifja upp lögin. Lagalist- inn er ekki alveg ákveðinn en hann miðast helst við hvernig gengur að æfa og hvað okkur finnst skemmti- legast.“ Óþolandi hljÓmsveit Árin 1987-1992 voru blómatími Risaeðlunnar. Meðlimir voru dug- legir að spila á tónleikum og æfðu stíft. Að sögn Sigurðar skemmtu þau sér konunglega á þessum tíma og hljómsveitin fékk yfirleitt mjög góða dóma. „Eftirminnilegustu plötudómar áranna voru sennilega frá Japan og dagblaðinu Degi á Ak- ureyri. Þessi frá Japan var náttúru- lega óskiljanlegur, því þá var ekk- ert Google Translate til, en okkur var sagt að hann væri góður. Þessi frá Degi á Akureyri var skemmti- legur því að gagnrýnandanum fannst hljómsveitin óþolandi.“ Eftirminnilegast þótti honum tónleikaferðirnar til Bandaríkj- anna og þegar sveitin hitaði upp fyrir Sykurmolana í Evrópu. Í júlímánuði árið 1989 var fjögurra laga plata sveitarinnar, samnefnd sveitinni, valin smáskífa vikunnar í hinu virta breska tónlistartíma- riti NME. „Það kom skemmtilega á óvart þar sem þetta var ekki smá- skífa, í mínum skilningi alla vega. Þessu fylgdi heilsíðuviðtal í NME og einhverjir blaðamenn og ljós- myndarar væfluðust til Íslands og tóku af okkur myndir. Þetta var yf- irleitt skemmtilegt, þó þessir blaða- menn hafi verið misskemmtilegir. Við vorum frekar róleg yfir þessu og kærulaus.“ Auk Sigurðar eru meðlimir Risa- eðlunnar, sem spila á Aldrei fór ég suður, þau Magga Stína, sem spil- ar á fiðlu og syngur, Halldóra Geir- harðsdóttir, sem spilar á saxófón og syngur líka, Ívar Ragnarsson á bassa og Þórarinn Kristjánsson sem leikur á trommur. Aðrir með- limir sveitarinnar, sem stoppuðu styttra við á þessum árum, voru Valur Gautason trommuleikari, Margrét Örnólfsdóttir hljómborðs- leikari og Hreinn Stephensen sem spilaði á harmonikku og gítar. Ætluðu aldrei að spila aftur Um 20 ár eru síðan Risaeðlan hélt síðast hefðbundna tónleika en með- limir sveitarinnar komu þó fram á 50 ára afmæli Árna Matthíassonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, árið 2007. Árni var einn þeirra fjöl- miðlamanna sem voru hvað dug- legastir við að koma Risaeðlunni á framfæri á sínum tíma. En hvers vegna endurkoma núna? „Einhver frá Aldrei fór ég suður hafði samband við Möggu Stínu og spurði hvort við vildum vera með. Hún spurði okkur og allir sögðu já sem er merkilegt því það hafði aldrei verið ætlun- in að koma saman aftur og í raun- inni heldur ekki ákveðið að gera það ekki. Aðalástæðan fyrir þess- ari endurkomu er nú samt senni- lega að við vorum beðin um að vera með, ég held að enginn hafi spurt okkur áður. Kannski hefð- um við verið löngu búin að þessu ef einhver hefði bara spurt fyrr. Engir frekari tónleikar eru fyrir- hugaðir og örugglega ekki upptök- ur. Þetta var bara svona kærkom- ið tækifæri sem kom upp, að hittast og fara vestur og spila.“ Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður er nú haldin í þrettánda skiptið og fer fram dagana 24.-27. mars. Nánari upplýsingar má finna á www.aldrei.is. Síðustu plötu sveit- arinnar, Efta!, sem kom út árið 1996, má nálgast ókeypis á Spotify en hún inniheldur bæði lög af eldri plötum auk áður óútgefinna laga. Við erum aðeins byrjuð að æfa og erum að rifja upp lögin. Lagalistinn er ekki alveg ákveðinn en hann miðast helst við hvernig gengur að æfa og hvað okkur finnst skemmtilegast. Sigurður Guðmundsson „Aðstandendur hátíðarinnar eru líka toppfólk, við hefðum ekki nennt þessu fyrir hvern sem er,” segir Sigurður Guðmundsson, meðlimur Risaeðlunnar. MYND/STEFÁN frekar rÓlegur og kÆrulaus hÓpur Risaeðlan heldur sína fyrstu tónleika í 20 ár þegar sveitin kemur fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður í næsta mánuði á Ísafirði. Engir frekari tónleikar eru fyrirhugaðir eða upptökur á nýju efni til útgáfu. Magga Stína (t.v.) og Halldóra Geirharðsdóttir. MYND/JóHANN A. KRiSTJÁNSSoN LAGERSALA AÐEINS ÞESSA HELGI! laugardag 11-17 sunnudag 13-17 Undirföt-Sundföt- Náttföt-Sloppar.. Bláu húsunum við Faxafen.2x30 365.is Sími 1817 Hæfileikaríkt fólk á öllum aldri stígur á svið í Ísland Got Talent. Hvaða atriði ná að hrífa Ágústu Evu, Dr. Gunna, Jakob Frímann og Mörtu Maríu næst? Vertu með í veislunni á sunnudagskvöldum á Stöð 2. Á SUNNUDAGSKVÖLDUM STJÖRNURNAR SKÍNA SKÆRT FÁRÁNLEGA FLOTTUR PAKKI Með Skemmtipakkanum fylgja sex sjónvarpsstöðvar. Spennandi íslenskir og erlendir þættir, kvikmyndir og vandað talsett barnaefni. Að auki fá áskrifendur internet, heimasíma, Stöð 2 Maraþon og aðild að Vild.* Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM. SKEMMTIPAKKINN Aðeins 310 kr. á dag FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT á 365.is *20 GB í interneti og 100 mín. í heimasíma á 0 kr. Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma. Nánari upplýsingar á 365.is SUNNUDAGA KL. 19:10 6 FóLK Helgin 13. febrúar 2016
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.