Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 54
| AtvinnA | 13. febrúar 2016 LAUGARDAGUR16
Ertu að leita að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
lind@talent.is bryndis@talent.is
www.talent.is | talent@talent.is
Lagerstarfsmaður óskast
Slippfélagið ehf auglýsir eftir lagerstarfsmanni í fullt
starf sem þarf að geta hafið starf sem fyrst.
Einnig vantar sumarstarfsmann á lager.
Umsóknir sendist á arnlaugur@slippfélagid.is
©
2016 Ernst &
Young ehf. A
ll R
ights Reserved.
Ernst & Young óskar eftir
vönum bókara
Um fjölbreytt verkefni er að ræða og þarf viðkomandi að
hafa frumkvæði og getu til að starfa sjálfstætt og hafa
ríka þjónustulund. Um 100% starf er að ræða.
Hæfniskröfur
► Mikil reynsla af bókhaldsstörfum
► Góð þekking á dk bókhaldskerfi kostur en ekki
skilyrði
► Enskukunnátta og kunnátta í excel
► Nákvæm og öguð vinnubrögð
► Kostur ef umsækjandi er viðurkenndur bókari
Forsenda fyrir gæðum og faglegum vinnubrögðum er
að starfsfólki líði vel bæði á vinnustað og utan hans. Við
erum sveigjanleg og reynum að koma til móts við ólíkar
þarfir starfsmanna vegna vinnu og frítíma.
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar nk.
Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá á
netfangið
hildur.palsdottir@is.ey.com
EY er alþjóðlegt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki
með um 212.000 starfsmenn í 150 löndum.
www.ey.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
3
5
10
Samskip eru flutningafyrirtæki með starfsstöðvar víða um heim. Starfsfólk Samskipa býður viðskiptavinum
faglega ráðgjöf og heildarlausnir á sviði flutninga- og flutningatengdrar þjónustu. Við höfum á að skipa
fjölbreyttum hópi starfsfólks sem vinnur ávallt með frumkvæði, samheldni og þekkingu að leiðarljósi.
Öryggis- og heilbrigðismál starfsfólks eru í fyrirrúmi og bjóðum við upp á fyrirmyndar vinnuaðstöðu.
Samskip óska eftir kraftmiklu sumarstarfsfólki í fjölbreytt störf á öflugum vinnustað, sem mun skila
starfsmönnum lærdómsríkri reynslu sem nýtist til framtíðar.
Störfin eru í vöruhúsum okkar, í frystivörugeymslu,
á bílavelli, skipaafgreiðslu og störf bílstjóra í akstur
flutningabíla.
Sumarstarfsmenn þurfa að geta unnið samfellt í a.m.k.tvo
og hálfan mánuð.
Starfsmenn Samskipa þurfa að hafa metnað til að takast á
við krefjandi verkefni og ná framúrskarandi árangri.
· Gerð er krafa um sterka öryggisvitund,
góða ástundun og samviskusemi
· Starfsmenn skulu búa yfir lipurð í þjónustu
og samskiptum
· Starfsmenn verða að hafa náð 18 ára aldri
og hafa hreina sakaskrá
> Sumarstörf á athafnasvæði Samskipa
Áhugasamir, konur jafnt sem karlar, eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað. Athugið að starf bílstjóra krefst meiraprófs og ADR réttindi eru kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2016
Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum vefsíðu okkar www.samskip.is og óskað er eftir að ferilskrá fylgi umsókn.
Sérfræðingur á sviði stefnumótunar
og fjármála
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða sérfræðing til
starfa á rekstrar- og þjónustuskrifstofu. Meðal verk-
efna skrifstofunnar eru fjármál og rekstur utanríkis-
þjónustunnar, þ.m.t. fjárlagagerð, framkvæmd fjár-
laga og áætlanagerð fyrir aðalskrifstofu ráðuneytisins
og sendiskrifstofur. Hún hefur auk þess umsjón með
bókhaldi, húsnæðismálum ráðuneytisins og send-
iskrifstofa, öryggismálum utanríkisþjónustunnar,
fjarskiptamálum og tölvukerfum. Borgaraþjónusta
ráðuneytisins og þýðingamiðstöð heyra einnig undir
skrifstofuna.
Framundan eru krefjandi verkefni í fjárhagsáætlana-
gerð og stefnumótun sem tengjast innleiðingu nýrra
laga um opinber fjármál.
Starfssvið
• Stefnumótun og áætlanagerð í málaflokkum
ráðuneytisins í samstarfi við skrifstofur þess.
• Fjárlagagerð og framkvæmd fjárlaga
• Ritun greinargerða um fjármál og rekstur
ráðuneytisins og upplýsingagjöf
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólagráða í viðskiptafræði, hagfræði og/eða
fjármálum og rekstri, meistaragráða er skilyrði
• Þekking á sviði áætlanagerðar, stefnumótunar og
markmiðasetningar
• Þekking í gerð fjármálaáætlana og greiningarvinnu
• Þekking á opinberri stjórnsýslu
• Kunnátta til að greina og miðla tölulegum upplýs-
ingum með greinargóðum og skýrum hætti.
• Góð almenn tölvufærni, einkum í Excel
• Gott vald á íslensku og ensku, önnur tungumála-
kunnátta er kostur
• Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt við-
mót
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnu-
brögðum, auk hæfileika til að taka virkan þátt í
teymisvinnu.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og
fjármála- og efnahagsráðherra. Starfið er háð flutn-
ingsskyldu í utanríkisþjónustunni skv. 10. gr. laga nr.
39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2016.
Umsóknir skulu berast á netfangið umsokn@mfa.is,
merkt „Sérfræðingur, stefnumótun og fjármál, 2016“.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja
um starfið. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex
mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Helga Hauksdóttir (helga.
hauksdottir@utn.stjr.is) og Anna Ósk Kolbeinsdóttir
(anna.osk.kolbeinsdottir@utn.stjr.is).