Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 57

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 57
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 13. febrúar 2016 19 STÖRF Í GAMLA FJÓSINU Nú erum við í Gamla fjósinu undir Eyjafjöllum að leita að fólki í starfsmannahópinn okkar. Starfsmenn okkar þurfa að vera samviskusamir, jákvæðir, liprir í mannlegum samskiptum og geta unnið undir álagi sem oft skapast á góðum dögum hjá okkur. Um er að ræða sumarstörf og heilsársstarf við almenn veitingastörf og í gistihúsi, aðstoð í eldhúsi og þrifum. Unnið er á 8-12 tíma vöktum viku og viku eða eftir nánara samkomulagi og í samvinnu við starfsmannahópinn. Greitt er eftir kjarasamningi SA og SGS v/veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða ofl. Við leitum að starfsmanni sem getur byrjað um miðjan apríl og sumarstarfsmönnum. Umsóknir, með ferilsskrá og meðmælendum sendist á gamlafjosid@gamlafjosid.is Umsóknarfrestur er til 29. febrúar. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Fagval óskar eftir starfsmönnum Fagval óskar eftir að ráða laghentan starfsmann til starfa við smíði á álhurðum og gluggum. Reynsla við smíði úr álprófílakerfum er æskileg en vel kemur til greina að ráða laghentan mann og þjálfa upp frá grunni. Starfsumhverfið er þrifalegt og vel tækjum búið. Við óskum einnig eftir að ráða starfsmann til vinnu við uppsetningar á álhurðum og gluggum sem og sjálfvirkum rennihurðum. Reynsla af uppsetningu er æskileg. Áhugasamir vinsamlegast leggið inn umsókn á efirfarandi netfang; fagval@fagval.is Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis- þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kalla á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er hafin breyting á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og bæta vinnuumhverfi starfsmanna. Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi mun starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati. PO R T h ön nu n Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Sálfræðingafélags Íslands. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar veita Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri lækninga, oddur.steinarsson@heilsugaeslan.is – sími 585-1300 og Svava Kristín Þorkelsdóttir, mannauðsstjóri, svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is – sími 585-1300. Fagstjóri sálfræðiþjónustu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Laust er til umsóknar starf fagstjóra sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Fagstjóri sálfræðiþjónustu ber ábyrgð á skipulagningu þjónustunnar í samráði við framkvæmdastjóra lækninga og svæðisstjóra/yfirlækna starfsstöðva HH. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Ráðið verður í starfið til 5 ára frá og með 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2016. Helstu verkefni og ábyrgð Annast skipulag og samhæfingu á fagsviði í samráði við framkvæmdastjóra lækninga, með stefnu og markmið HH að leiðarljósi Ber ábyrgð á gæðum og öryggi þjónustu og fylgir eftir árangursmælingum Hefur yfirumsjón með og skipuleggur HAM námskeið á vegum HH Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi Hefur umsjón með fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn HH Tekur þátt í innleiðingu breytinga og nýjunga í starfsemi HH Tekur þátt í innleiðingu teymisvinnu Tekur þátt í gerð og innleiðingu klínískra leiðbeininga á fagsviði Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu, jákvæðum starfsanda og vellíðan starfsmanna Sinnir klínísku starfi í a.m.k. 50 % starfshlutfalli í meðferðarvinnu Hæfnikröfur Réttindi og reynsla til að starfa sem klínískur sálfræðingur Framhaldsmenntun æskileg Reynsla og þekking á hugrænni atferlismeðferð og annarri gagnreyndri meðferðarvinnu Nám og/eða reynsla á sviði stjórnunar æskileg Reynsla og áhugi á teymisvinnu Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi Starfsmaður óskast í heildsölu Arka heilsuvörur er heildsala í Reykjavík með áherslu á hollar matar- og drykkjarvörur. Við erum fjölskyldufyrirtæki með stórt hjarta og leggjum okkur fram við að þjóna viðskiptavinum okkar sem best. Við leitum að jákvæðum og dugmiklum einstaklingi í fullt starf. Starfið er fjölbreytt og býður upp á góð tækifæri fyrir réttu manneskjuna. Helstu verkefni eru lagerstörf, sölustörf, umsjón pantana og eftirfylgni í verslunum. arka heilsuvörur | Sundaborg 1 | 104 Reykjavik | www.arka.is Umsóknarfrestur er til 25.febrúar (Óskum eftir ferilskrá með mynd) Hæfniskröfur Bílpróf Tölvukunnátta Skipulagshæfni Færni í mannlegum samskiptum Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Umsóknir berist á arka@arka.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.