Fréttablaðið - 13.02.2016, Blaðsíða 57
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 13. febrúar 2016 19
STÖRF Í GAMLA FJÓSINU
Nú erum við í Gamla fjósinu undir Eyjafjöllum
að leita að fólki í starfsmannahópinn okkar.
Starfsmenn okkar þurfa að vera samviskusamir, jákvæðir, liprir í
mannlegum samskiptum og geta unnið undir álagi sem oft skapast
á góðum dögum hjá okkur.
Um er að ræða sumarstörf og heilsársstarf við almenn veitingastörf
og í gistihúsi, aðstoð í eldhúsi og þrifum.
Unnið er á 8-12 tíma vöktum viku og viku eða eftir nánara
samkomulagi og í samvinnu við starfsmannahópinn.
Greitt er eftir kjarasamningi SA og SGS v/veitinga-, gisti-, þjónustu-
og greiðasölustaða ofl.
Við leitum að starfsmanni sem getur byrjað um miðjan apríl
og sumarstarfsmönnum.
Umsóknir, með ferilsskrá og
meðmælendum sendist á
gamlafjosid@gamlafjosid.is
Umsóknarfrestur
er til 29. febrúar.
Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
Fagval óskar eftir starfsmönnum
Fagval óskar eftir að ráða laghentan starfsmann til starfa við
smíði á álhurðum og gluggum. Reynsla við smíði úr
álprófílakerfum er æskileg en vel kemur til greina að ráða
laghentan mann og þjálfa upp frá grunni. Starfsumhverfið er
þrifalegt og vel tækjum búið.
Við óskum einnig eftir að ráða starfsmann til vinnu við
uppsetningar á álhurðum og gluggum sem og sjálfvirkum
rennihurðum. Reynsla af uppsetningu er æskileg.
Áhugasamir vinsamlegast leggið inn umsókn á efirfarandi
netfang; fagval@fagval.is
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis-
þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og
þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar
eftir því sem þörf er á.
Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur
á sérhæfðu starfsfólki kalla á nýja nálgun í starfsemi
heilsugæslustöðva.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er hafin breyting á
skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að
auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og bæta
vinnuumhverfi starfsmanna.
Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna
grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða
straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks
munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum
með fjölbreyttum úrræðum.
Í breyttu skipulagi mun starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að
móta starfsemina og útfæra þjónustu sem mætir þörfum
íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt
mælingum og mati.
PO
R
T
h
ön
nu
n
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Sálfræðingafélags Íslands.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.
Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast
Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á
Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Nánari upplýsingar veita Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri lækninga, oddur.steinarsson@heilsugaeslan.is – sími 585-1300
og Svava Kristín Þorkelsdóttir, mannauðsstjóri, svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is – sími 585-1300.
Fagstjóri sálfræðiþjónustu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Laust er til umsóknar starf fagstjóra sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH).
Fagstjóri sálfræðiþjónustu ber ábyrgð á skipulagningu þjónustunnar í samráði við framkvæmdastjóra
lækninga og svæðisstjóra/yfirlækna starfsstöðva HH. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á
frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Ráðið verður í starfið til 5 ára frá og með 1. apríl nk.
eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2016.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast skipulag og samhæfingu á fagsviði í
samráði við framkvæmdastjóra lækninga, með
stefnu og markmið HH að leiðarljósi
Ber ábyrgð á gæðum og öryggi þjónustu og
fylgir eftir árangursmælingum
Hefur yfirumsjón með og skipuleggur HAM
námskeið á vegum HH
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Hefur umsjón með fræðslu til nema, nýliða og
starfsmanna fagsviðs í samvinnu við
aðra starfsmenn HH
Tekur þátt í innleiðingu breytinga og nýjunga
í starfsemi HH
Tekur þátt í innleiðingu teymisvinnu
Tekur þátt í gerð og innleiðingu klínískra
leiðbeininga á fagsviði
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu,
jákvæðum starfsanda og vellíðan starfsmanna
Sinnir klínísku starfi í a.m.k. 50 % starfshlutfalli
í meðferðarvinnu
Hæfnikröfur
Réttindi og reynsla til að starfa sem klínískur
sálfræðingur
Framhaldsmenntun æskileg
Reynsla og þekking á hugrænni atferlismeðferð
og annarri gagnreyndri meðferðarvinnu
Nám og/eða reynsla á sviði stjórnunar æskileg
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
Starfsmaður óskast í heildsölu
Arka heilsuvörur er heildsala í Reykjavík með
áherslu á hollar matar- og drykkjarvörur. Við erum
fjölskyldufyrirtæki með stórt hjarta og leggjum okkur
fram við að þjóna viðskiptavinum okkar sem best.
Við leitum að jákvæðum og dugmiklum
einstaklingi í fullt starf. Starfið er fjölbreytt og býður
upp á góð tækifæri fyrir réttu manneskjuna. Helstu
verkefni eru lagerstörf, sölustörf, umsjón pantana og
eftirfylgni í verslunum.
arka heilsuvörur | Sundaborg 1 | 104 Reykjavik | www.arka.is
Umsóknarfrestur er til 25.febrúar
(Óskum eftir ferilskrá með mynd)
Hæfniskröfur
Bílpróf
Tölvukunnátta
Skipulagshæfni
Færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknir berist á
arka@arka.is