Fréttablaðið - 13.02.2016, Síða 70
| AtvinnA | 13. febrúar 2016 LAUGARDAGUR32
kopavogur.is
Upplýsingatæknideild
Kópavogsbæjar
óskar eftir starfsmanni í notendaþjónustu
Þjónustufulltrúi í notenda- og tölvuþjónustu
Þjónustufulltrúi sinnir þjónustu beiðna, uppsetningu búnaðar,
lagfæringu á útstöðvum og almennri notendaþjónustu í gegnum
síma. Verkefnin eru fjölbreytt og stundum þarf að leysa verkefnin
í samvinnu við utanaðkomandi sérfræðinga. Þjónustufulltrúi þarf
að geta leiðbeint notendum og frætt þá um heppilegar leiðir við
notkun upplýsingatækninnar. Framundan eru skemmtileg verkefni
sem tengjast meðal annars aukinni notkun spjaldtölva og nýtingu
skýjalausna eins og Office 365 í starfseminni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Færni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla sem nýtist í starfi
• Góð þekking á almennum notendatölvum og notendahugbúnaði
• Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hæfni
• Jákvæðni, áreiðanleiki og traust vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2016.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Ingimarsdóttir, þjónustu
stjóri notenda og tölvuþjónustu eða Ingimar Þór Friðriksson,
forstöðumaður upplýsingatæknideildar í síma 441 1111.
Einnig má senda fyrirspurnir á netföngin ingimar@kopavogur.is
eða kristin@kopavogur.is.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef
Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is
PIPAR\TBW
A • SÍA • 160988UT-deild Kópavogsbæjar
sér um rekstur og þróun á
upplýsingatækni allra sviða
og stofnana Kópavogsbæjar.
Helsti notendabúnaðurinn
er Windows útstöðvar, iPad
spjaldtölvur og Office-pakkinn
en auk þess er í notkun
fjöldi ólíkra lausna. Helstu
hugbúnaðarlausnirnar eru
MS NAV, SAP, OneSystems,
Mentor, S5, Eplica og
SharePoint.
Fiskeldisfræðingur eða starfsmaður
með reynslu af fiskeldi
Eldisstöðin Ísþór í Þorlákshöfn óskar eftir fiskeldisfræðingi eða vönum fiskeldis-
manni til starfa. Starfsmaðurinn þarf að búa í nágrenni við Þorlákshöfn eða
á Árborgarsvæðinu.
Hæfniskröfur: Reynsla af fiskeldi, sjálfstæð vinnubrögð, áreiðanleiki.
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn ásamt ferilskrá á
Kristínu Helgadóttur starfsmannastjóra á umsoknir@fjardalax.is
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2016.
Eldisstöðin Ísþór / Nesbraut 25, 815 Þorlákshöfn
Sumarstörf
við landvörslu
Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum
sumar ið 2016 á eftirtalin svæði: Þjóðgarðinn
Snæfells jökul, Mývatnssveit, Suðurland og Friðland
að Fjallabaki, Vesturland og sunnanverða Vestfirði.
Um er að ræða tímabundin 100% störf en
starfstími er breytilegur eftir svæðum. Þeir fyrstu
hefja störf í byrjun maí og síðustu ljúka störfum í
október.
Störf landvarða felast m.a. í að hvorki séu brotin
ákvæði friðlýsingar svæðis né lög um náttúru
vernd, að veita upplýsingar og fræða gesti og
sinna smærra viðhaldi.
Ítarlegri upplýsingar um störfin, starfstímabil,
svæðin og hæfniskröfur eru að finna á starfatorg.
is og umhverfisstofnun.is/storf_i_bodi.
Sótt er um störfin með því að fylla út rafrænt
eyðublað sem er að finna í auglýsingunni á vef
Umhverfisstofnunar. Umsóknarfrestur er til og
með 22. febrúar 2016. Í umsókn þarf að koma fram
hvaða svæði verið er að sækja um eða forgangs
röðun þar um.
Akureyri - Egilsstaðir - Hella - Ísaörður
Mývatn - Patreksörður - Reykjavík
Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
FAGMENNSKA SAMVINNA FRAMSÝNI VIRÐING
Hæfniskröfur:
Ekki sækja um ef þú ert:
Faglærður bifvélavirki
Rík þjónustulund
Finnst gaman að vera í vinnunni
Ekki faglærður bifvélavirki
Fúll á móti
Átt erfitt með að umgangast fólk
Borgartúni / Holtagörðum / Reykjavíkurvegi / Akureyri / Sími 414 9900
Nánari upplýsingar veitir Birgir Hákonarson í síma 665-9900
Umsókn með upplýsingum um menntun og reynslu skal
skila á netfangið birgir@tekkland.is fyrir 19. febrúar 2016
BIFVÉLAVIRKI
ÓSKAST
Tékkland bifreiðaskoðun óskar eftir
bifvélavirkja til að annast almenna
bifreiðaskoðun á höfuðborgarsvæðinu.
Sumarstarf kemur til greina.