Fréttablaðið - 13.02.2016, Page 84
Arctic Star sæbjúgnahylkin inni-
halda yfir fimmtíu tegundir af nær-
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er mikið
kollagen í því en það er eitt helsta
uppbyggingarprótein líkamans.
Sæbjúgu hafa verið þekkt sem heilsu-
fæði í gegnum aldirnar í Kína, heima-
landi Söndru Yunhong She, eiganda
Arctic Star, framleiðanda sæbjúgna-
hylkjanna. Þar eru þau notuð til bóta
við hinum ýmsu meinum. Kínverj-
ar kalla sæbjúgu gjarnan „ginseng
hafsins“ og til eru sagnir um notk-
un sæbjúgna þar fyrir meira en þús-
und árum.
Jákvæð áhrif
„Heima hjá mömmu voru sæbjúgun
elduð. Það tekur hins vegar mjög lang-
an tíma að gera það og menn eru ekki
að elda sæbjúgu daglega. Við fengum
því þá hugmynd að búa til sæbjúgna-
hylki svo fólk geti fengið heilsubót-
arefnin úr sæbjúgunum daglega, á
auðveldan máta,“ útskýrir Sandra.
Áður en Sandra og fjölskylda fóru
að framleiða hylkin og markaðssetja
þau gerðu þau nokkurs konar til-
raunir á sjálfum sér og sínum nán-
ustu. „Við tókum sæbjúgnahylk-
in í um tvö ár áður en við fórum að
framleiða þau. Fyrir mig virkaði
þetta afskaplega vel og meðal ann-
ars varð ónæmiskerfið í mér sterk-
ara. Þegar ég var yngri fékk ég allt-
af flensu nokkrum sinnum á ári. Á
síðustu árum hef ég varla orðið veik.
Þegar flensan er úti um allt í þjóð-
félaginu fæ ég í mesta lagi smá haus-
verk í einn dag en ekki meir. Þannig
að ég finn mikinn mun á mér.“
Sæbjúgnahylkin fóru í framleiðslu
fyrir um tveimur árum. Þeir sem
fengu að prófa sæbjúgnahylkin
höfðu yfirleitt góða sögu að segja af
þeim. „Flestir sem hafa prófað þetta
hjá okkur komast að sömu niður-
stöðu, að þetta sé gott fyrir liðamót-
in, minnki liðverki, lækki kólesteról
og auki blóðflæði. Virknin er þó mis-
jöfn hjá fólki en eins og áður segir þá
vorum við lengi með vöruna í rann-
sókn og prófuðum hvernig hún virk-
Heilsufæða í Hylki
Arctic Star kynnir Sæbjúgu eru þekkt heilsufæða í Kína. Nú má fá þau
góðu áhrif sem þeim fylgja á einfaldari máta en þau fást nú í hylkjum.
Sandra finnur mun á sér eftir að hafa tekið inn sæbjúgnahylkin. Henni finnst
ónæmiskerfi sitt vera sterkara en áður. MYND/GVA
sæbJúgu eru
þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt
fituinnihald.
• Að minnka verki í liðum og
liðamótum.
• Að byggja upp brjósk og draga
úr tíðni liðskemmda.
• Að bæta ónæmiskerfið.
• Að auka blóðflæði.
• Að koma í veg fyrir æðakölkun.
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins og
ins úlíns.
aði á fólk og mismunandi kvilla sem
það hafði. Við settum svo sæbjúgna-
hylkin á markað í fyrrasumar og við-
tökurnar hafa verið góðar,“ segir
Sandra og bætir við að þau hafi feng-
ið fjölda símtala frá ánægðum neyt-
endum. „Þeir voru að láta okkur vita
hvernig sæbjúgnahylkin hafa virkað
fyrir þá og erum við mjög ánægð að
heyra frá þeim.“
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Framleiðandi
sæbjúgnahylkj-
anna er Arctic
Star ehf. Allar
nánari upplýsing-
ar fást á arcticst-
ar. is. Arctic Star
sæbjúgnahylki fást
í flestum apótekum
og heilsubúðum og
í Hagkaupum.
Arctic Star
sæbjúgna-
hylki
8 FÓLK XXXXXXXXX 13. febrúar 2016
Þjóðleg á Super Bowl.
NORDIC PHOTO/GETTY
Helgin 13. febrúar 2016
Lady Gaga er
algjörlega óhrædd
við að klæðast
gegnsæjum fötum.
Svona
spásseraði
Lady Gaga um
stræti New York-
borgar.
Ætli flestum
finnist þetta
ekki sérstök
múndering til
að vera í við
verðlaunaat-
höfn?Í bleikum
feldi og
grænum skóm. Gott
kombó sem Lady Gaga
ber vel.
Ekkert
feimin við
að láta skína í
bert hold.
Hér er hún
nokkuð settleg
í frekar fyrir-
ferðarmiklum
kjól.
Söngkonan Lady Gaga var áber-
andi í fjölmiðlum í vikunni eftir
flutning sinn á bandaríska þjóð-
söngnum á úrslitaleik amer-
íska fótboltans á sunnudag. Þar
þótti hún taka sig vel út í þjóð-
legu dressi frá toppi til táar,
glitrandi rauðri Gucci-dragt og
skóm í fánalitunum. Klæðaburð-
ur Lady Gaga hefur oft vakið
vægast sagt mikla athygli en hún
þykir fara ótroðnar slóðir í þeim
efnum. Hún setur reglurnar sjálf
í sínum tískuheimi og þar virð-
ist nánast allt vera leyfilegt. Hún
er ögrandi, óhófleg og
örlítið geggjuð í
ákvörðunum þegar
kemur að fatavali
hvort sem hún á
leið um rauða
dregilinn eða
á veitingastað
með vinum. Hér
má sjá nokk-
ur áhugaverð
dress.
Henni þykir
ekkert tiltöku-
mál að vera
bara í brjósta-
haldara að
ofan.
lady gaga
setur sJálf
reglurnar
Lady Gaga hefur löngum verið þekkt fyrir að
fara eigin leiðir í fatavali og bíða margir
spenntir eftir að sjá í hverju hún mætir við hin
ýmsu tilefni og á hvers kyns viðburði.