Fréttablaðið - 13.02.2016, Qupperneq 116
Leiða saman hesta sína
„Við Þorvaldur höfðum unnið náið
saman áður og þekkjumst því vel
sem er sérlega gott fyrir þessa vinnu
og persónurnar í verkinu,“ segir
leikkonan Hera Hilmarsdóttir en
hún og Þorvaldur Davíð Kristjáns
son leiða saman hesta sína við gerð
leikverksins Andaðu, eða Lungs.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
06.02.16-
12.02.16
Pírati verður
stöðumæLavörður
„Ég er alltaf svo vel klæddur en það er
spurning hvort lappirnar þoli þetta.
Andinn er sterkur en holdið gæti
verið veikt,“ sagði píratinn og
fyrrverandi þingmaðurinn
Jón Þór Ólafsson sem hóf
störf sem stöðumælavörður
í vikunni. Athygli vakti
þegar Jón Þór hætti á þingi
í haust til að starfa við
malbikun en stöðumæla
varslan er tímabundin þar
sem malbikunarvinnan er
árstíðabundin og byrjar hann
aftur í henni í vor.
Uppselt er á 47 sýningar á ABBA-
söngleiknum heimsfræga Mamma
Mia! sem frumsýndur verður í
Borgarleikhúsinu þann 11. mars.
„Þetta er rosalegt, við höfum aldrei
séð annað eins, þetta er algjörlega
klikkað,“ segir Alexía Björg Jóhann-
esdóttir, kynningarfulltrúi Borgar-
leikhússins, alsæl með viðtökurnar.
Þegar forsalan hófst þann 27. janúar
var biðröð út á bílastæði og sló raf-
magnið meira segja út í hverfinu.
Þessa dagana er verið að hamast
við að bæta aukasýningum við til
að anna eftirspurninni. „Það er
alveg greinilegt að Íslendingar eru
mjög spenntir fyrir sólargleði- og
glimmer bombu eins og Mamma
Mia! er. Við höfum verið að bæta
við aukasýningum og verðum með
sýningar alla daga nema mánudaga,
þetta er bara eins og West End í
London. Fólk þarf að flýta sér ef
það ætlar að tryggja sér miða,“ segir
Alexía Björg létt í lund.
Þó að mánuður sé í frumsýningu
er eins og fyrr segir uppselt á 45 sýn-
ingar og enn verið að bæta við sýn-
ingum. „Til viðmiðunar, þegar Billy
Elliot var frumsýndur þá var uppselt
á 22 sýningar og hann endaði í 106
sýningum,“ bætir Alexía Björg við.
Leikhúsið fer í sumarfrí um miðj-
an júní og hefjast sýningar aftur
upp úr miðjum ágúst eftir frí. Sem
stendur eru áætlaðar um 70 sýn-
ingar en þær gætu þó orðið fleiri.
„Við munum sýna eins og lengi við
getum.“
Alexía Björg segir að stemningin
í leikhúsinu sé sérlega góð þessa
dagana. „Það er frábær fílingur hjá
okkur og nú er verið að æfa á fullu
og undirbúa allt.“ Þá er búið að
koma fyrir „spray tan“ klefa í leik-
húsinu svo leikararnir nái sér í sól-
brúnku fyrir frumsýningu. „Leikar-
arnir eru byrjaðir að fara í „spray
tan“, það er komin sumarstemning
hérna,“ segir Alexía Björg og hlær.
gunnarleo@frettabladid.is
önnur eins miðasala
hefur ekki sést
Uppselt er á 47 sýningar af söngleiknum Mamma Mia! sem sýndur
verður í Borgarleikhúsinu, þó að um mánuður sé í frumsýningu.
Leikarahópurinn var léttur í lund í gær þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit inn á æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
H E I L S U R Ú M
S T I L L A N L E G T
O G Þ Æ G I L E G T
D Ý P R I O G
B E T R I S V E F N
Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið
í hvaða stöðu sem er og með öðrum færð þú nudd.
Saman hjálpa rúmið og dýnan þér að ná há marks
slökun og dýpri og betri svefni. Svo vaknar þú
endurnærð/ur og til búin/n í átök dagsins.
499.900 kr.
S T I L L A N L E G T R Ú M
Tvær Serta Therapist heilsudýnur.
90 x200 cm. Verð frá:
S T I L L A N L E G U H E I L S U
R Ú M I N F R Á C &J :
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per
botn
· Mótor þarfnast ekki
viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir
botni
· Tveir nuddmótorar með
tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með
klukku, vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo
dýnur færist ekki í sundur
*Aukahlutur á
mynd: höfuðgafl.
PJ harvey á airvawes
Breska tónlistarkonan
PJ Harvey er meðal
þeirra listamanna sem
koma munu fram á tón
listarhátíðinni Iceland
Airvawes sem fram fer
í átjánda sinn í Reykja
vík næstkomandi
nóvember. Auk hennar
mun fjöldi annarra inn
lendra og erlendra
tónlistarmanna
koma fram.
GenGur með þér
Söngkonan Hildur
Kristín Stefáns
dóttir sem
þekktust er
fyrir söng sinn
með hljóm
sveitinni Rökk
urró frumsýndi
sólóverkefni sitt Hildur á
fimmtudaginn þegar hún gaf
út lagið I'll Walk With You auk
myndbands en Hildur kemur
í fyrsta sinn fram á tónlistar
hátíðinni Sónar sem fram fer
næstu helgi.
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r56 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð