Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 2
Kominn úr kafiVeður
Í dag verður hæglætisveður á landinu.
Það verður úrkoma nokkuð víða, yfirleitt
rigning eða slydda, en sums staðar snjóar
fyrir norðan. Hiti 0 til 6 stig. Í kvöld bætir í
vind og úrkomu um landið sunnanvert.
Sjá SÍðu 40
Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir
Leikum
okkur!
LögregLumáL Sex karlmenn og ein
kona frá Hvíta-Rússlandi voru send
úr landi með endurkomubanni þann
9. október síðastliðinn vegna brota á
útlendingalögum, en þau höfðu sótt
um hæli hér á landi á fölskum vega-
bréfum og stolið vörum úr verslunum
landsins fyrir nokkrar milljónir króna.
Öll voru þau úrskurðuð í þriggja
vikna gæsluvarðhald í lok september
vegna málsins og tók Útlendinga-
stofnun í samráði við ákærusvið lög-
reglunnar þá ákvörðun að vísa þeim
úr landi með endurkomubanni.
„Við húsleit lögðum við hald á þýfi
fyrir um tvær milljónir króna. Við
vitum ekkert hvað það var mikils
virði sem þau höfðu sent út með pósti
en það var býsna mikið og ábyggilega
annað eins,“ segir Benedikt Lund, lög-
reglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, um málið.
Fólkið kom flest til landsins í byrjun
sumars á eigin vegabréfum og sótti um
hæli með öðrum vegabréfum, sem öll
voru fölsuð. Þeim var úthlutað hús-
næði hér á landi á meðan hælisum-
sókn þeirra var í ferli.
„Þau komu hingað til lands í þeim
tilgangi einum að stela úr búðum
og selja þýfið úti. Þau voru öll með
vinnu í Hvíta-Rússlandi og vissu
alveg hvað þau voru að gera, enda
þaulskipulagt,“ segir Benedikt en
fólkið stundaði hér skipulagðan
þjófnað þar til lögreglan komst á
snoðir um málið í lok september.
Fólkið átti flugmiða úr landi á eigin
vegabréfum.
Hluta þýfisins hafði fólkið sent með
pósti til Hvíta-Rússlands þar sem
það var selt í netverslun þar í landi.
„Konan sem var nokkuð samvinnu-
þýð benti okkur á netsíðu þar sem
varningurinn var til sölu. Við fundum
líka kvittanir frá póstinum við húsleit
hjá fólkinu.“
Málið komst upp í kjölfar ábend-
inga frá öðrum hælisleitendum sem
bjuggu í sama íbúðakjarna. Einnig
hafði fólkið náðst á myndbandsupp-
tökum í nokkrum verslunum. „Þarna
voru aðrir hælisleitendur sem voru
reiðir yfir þessu og létu okkur vita.
Auðvitað eru flestir sem koma hingað
til lands heiðarlegt fólk og það er
ömurlegt hvernig þessir einstaklingar
reyna að misnota sér eymd annarra,“
segir Benedikt sem telur mikilvægt
að umræðan beinist ekki að slæmum
afleiðingum þess að veita fólki hæli
hér á landi. Frekar eigi hún að beinast
að því hve ljótt það sé að misnota sér
eymd annarra. nadine@frettabladid.is
Fólkið sem búið er að vísa úr landi fyrir þjófnað nýtti sér þjónustu póstsins til að
koma góssinu úr landi. Mynd/Íslandspóstur
Stálu fyrir milljónir
með fölsuð vegabréf
Sjö einstaklingar frá Hvíta-Rússlandi voru sendir úr landi með endurkomu-
banni í byrjun október. Fólkið sótti hér um hæli, með fölsuð vegabréf, til að stela
vörum á meðan hælisumsóknin væri í ferli. Þýfi fannst fyrir tvær milljónir.
Slökkviliðsmenn frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru við reglubundnar köfunaræfingar í Kópavogshöfn þegar ljósmyndara Fréttablaðs-
ins bar að garði. „Allir vakthafandi starfsmenn fá köfunarþjálfun. Maður veit aldrei hverjir eru á vaktinni þegar grípa þarf til slíkrar björgunar,“
segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið/VilhelM
ViðSkipti Upplag Fréttablaðsins
hefur verið stækkað um fimm þúsund
eintök og dreifing blaðsins aukin.
Blaðið mun fást í flugvélum Flug-
félags Íslands og í biðsölum flugvall-
anna í Reykjavík, á Egilsstöðum, Ísa-
firði og Akureyri. Þá er unnið að því
að blaðinu verði dreift í Strætó og á
flugstöðvum á Húsavík, Höfn og í
Vestmannaeyjum.
Á næstu dögum hefst lúgudreifing
blaðsins á Álftanesi og fyrir helgi
hefst dreifing í kassa í Vestmanna-
eyjum. Þegar er farið að dreifa blað-
inu í ný hverfi í Mosfellsbæ, Úlfars-
fell og í nýbyggingar í hverfi 101 í
Reykjavík.
Einnig mun blaðið liggja frammi
í BYKO og Húsasmiðjunni á Reykja-
nesi og Selfossi, auk verslunarmið-
stöðvarinnar Kjarnans á Selfossi. Þá
er unnið að dreifingu í menntaskóla
og háskóla landsins. Þegar er hafin
dreifing á Bifröst og í Háskólanum á
Akureyri. – ngy
Aukin dreifing á
Fréttablaðinu
Auðvitað eru flestir
sem koma hingað til
lands heiðarlegt fólk og það
er ömurlegt hvernig þessir
einstaklingar reyna að mis-
nota sér eymd
annarra.
Benedikt Lund
lögreglufulltrúi
BandarÍkin Wikileaks hefur greint frá
sex tölvupóstum sem John Brennan,
framkvæmdastjóri CIA, sendi frá sér
síðustu ár. Athygli vekur að allir póst-
arnir voru fengnir frá einkareknum
póstþjóni en ekki vefþjóni á vegum
ríkisins.
Í póstunum má meðal annars finna
gögn þar sem velt er upp þeim mögu-
leika að þróaðar verði „löglegar“ yfir-
heyrsluaðferðir sem brjóti ekki í bága
við Genfarsáttmálann eða bandarísk
lög.
Þá kemur þar fram gagnrýni á
harkalega utanríkisstefnu ríkisstjórn-
ar George W. Bush gagnvart Íran. En
stjórn Bush þótti ganga afar hart fram
í málefnum Írans.
Í skjölunum kemur fram að mælt
væri með því að næsti forseti á eftir
Bush myndi taka upp mildari og vin-
gjarnlegri samskipti við Íran. – srs
Ljóstra upp
um „löglegar“
aðferðir til
pyntinga
StjórnmáL Frumvarp utanríkis-
ráðherra um að leggja niður Þró-
unarsamvinnustofnun og flytja
starfsemi hennar undir ráðuneytið
fór til annarrar umræðu á Alþingi í
gær eftir umfjöllun utanríkismála-
nefndar.
„Markmið frumvarpsins er að
stuðla að aukinni skilvirkni og
hagkvæmni í stjórnsýslu alþjóð-
legrar þróunarsamvinnu Íslands
og gera stefnumótun málaflokksins
markvissari,“ segir í meirihlutaáliti
nefndarinnar.
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, gerði grein
fyrir minnihlutaáliti nefndarinnar
sem er á öndverðum meiði en í áliti
minnihlutans segir: „[Minnihlut-
inn] telur [frumvarpið] vanbúið,
óljóst og byggja að hluta til á mis-
skilningi.“ – srs
Telja frumvarp
vera vanbúið
2 2 . o k t ó B e r 2 0 1 5 F i m m t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð