Fréttablaðið - 22.10.2015, Page 10
NeyteNdamál Félag atvinnurek-
enda hefur sent frá sér skýrslu þar
sem lögð er til stórfelld lækkun
matartolla til hagsbóta fyrir neyt-
endur í landinu. Leggur félagið til að
almennir tollar á innfluttar búvörur
verði lækkaðir um helming, á svína-
og alifuglakjöt verði tollar afnumdir
að fullu sem og búvörur sem ekki
eru framleiddar hér á landi. For-
maður Framsýnar á Húsavík full-
yrðir að afnám tolla muni fækka
afurðastöðvum og skapa atvinnu-
leysi í greininni.
Skýrslan, sem ber heitið Matar-
tollar, verndarstefna eða samkeppni
og valfrelsi neytenda? er unnin
af starfsmönnum Félags atvinnu-
rekenda með það að markmiði að
sýna stjórnvöldum fram á hagræn
áhrif þess að lækka stórlega tolla á
matvæli. Þar kemur fram að verð á
matvælum á Íslandi gæti lækkað um
allt að 28 prósent. Í skýrslunni segir
að stór hluti verndartolla leggist
á vörur sem ýmist eru ekki fram-
leiddar hér á landi eða teljist ekki til
hefðbundinnar búvöruframleiðslu.
Verndin skaði því neytendur.
„Þetta er að okkar mati rétti
tímapunkturinn til að herða á
umræðunni, leggja fram tillögur
og hvetja stjórnvöld til að skilja
matvæli ekki út undan í áformum
sínum um afnám tolla,“ segir Ólaf-
ur Stephensen, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda.
Einnig er að finna í skýrslunni
gagnrýni á kvótafyrirkomulag í
innflutningi matvæla. Innflytj-
endur þurfi að bjóða í svokallaða
tollkvóta og hefur eftirspurnin eftir
þeim verið svo mikil undanfarin
ár að lítill sem enginn ávinningur
hefur fengist af þeim fyrir íslenska
neytendur.
Ef þessar tillögur myndu ná fram
að ganga yrði það líklegast mikið
högg fyrir alifugla- og svínarækt
í landinu. Ólafur telur samt sem
áður að til lengri tíma litið sé frjáls
verslun öllum til hagsbóta. „Ef toll-
ar yrðu aflagðir á kjúkling og svín
yrði greinin annaðhvort að hag-
ræða hjá sér eða keppa á gæðum
og bjóða þá betri vöru. Hitt er svo
annað mál að það er ástæðulaust
að vernda óhagkvæmar atvinnu-
greinar með tollum. Fyrir því eru
færð gild rök í skýrslu starfshóps
sem lagði til afnám tolla á öðrum
vörum en matvælum. Það eru hins
vegar engin önnur lögmál með
innflutt matvæli og aðrar vörur.“
sveinn@frettabladid.is
Íslendingar elska Skoda enda eru vandfundnari bílar sem henta íslenskum fjölskyldum betur. Þeir eru einstaklega rúmgóðir,
sparneytnir, endingargóðir og frábærir í endursölu. Komdu við hjá okkur í Heklu og prófaðu skemmtilega Skoda.
Nýr ŠKODA Octavia verð frá 3.390.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
SKEMMTILEGUR
Á ALLA VEGU
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
Vilja stærri skref stigin í tollalækkun
Félag atvinnurekenda hefur gefið út skýrslu um tolla á matvæli. Leggur félagið til fimmtíu prósenta lækkun almennra tolla á matvæli
og afnám að fullu á alifugla- og svínakjöti. Þótt hagur framleiðenda kunni að skerðast sé breytingin öllum til hagsbóta til lengri tíma.
Staðreyndir um
tolla á valda matvöru
Sætar kartöflur eru ekki ræktaðar
á Íslandi. Samt sem áður er lagður
þrjátíu prósenta tollur á sætar kart-
öflur sem fluttar eru til landsins.
Algengt útsöluverð í dag á kílói
af sætum kartöflum er 360-
490 krónur en með afnámi
tolla gæti kílóið lækkað
niður í 280-390 krónur.
59 prósenta verð-
tollur er lagður á
innflutt kartöflusnakk.
Tvö fyrirtæki framleiða
kartöflusnakk á Íslandi.
Neysla hérlendis á
kartöflusnakki er mun
meiri en sem nemur
framleiðslu þessara
tveggja fyrirtækja ár hvert.
Hins vegar er enginn tollur
lagður á snakk sem gert er úr maís
ef varan kemur frá EES. Enginn
framleiðir maíssnakk hérlendis.
Útgjöld meðalstórrar fjölskyldu gætu snarlækkað ef tollar á innflutt matvæli verða
afnumdir eða lækkaðir stórlega, að mati Félags atvinnurekenda. Fréttablaðið/GVa
Segir afnám tolla valdið skaða í landbúnaði
Aðalsteinn Árni Baldurs-
son, formaður Fram-
sýnar á Húsavík, telur
að afnám tolla á
matvæli gæti
stórskaðað
landbúnaðar-
héruð, fólk
misst vinnuna
og afurða-
stöðvum myndi
óhjákvæmilega
fækka.
Matvælaiðnaður á
Íslandi er með um 17 prósent
af heildarveltu í iðnaði og á
síðasta ári störfuðu um 4.000
manns við matvælafram-
leiðslu á landinu.
„Landbúnaðarráðherra hefur
stórlækkað tolla á matvæli. Ég full-
yrði það að stjórnvöld rannsökuðu
ekki á nokkurn hátt hvaða afleiðingar
þessi samningur við ESB gæti
haft í för með sér og gagn-
rýni þannig vinnubrögð.
Tollalækkun á matvæli
mun fækka starfsfólki
í greininni og valda
atvinnuleysi í land-
búnaðarhéruðum alls
staðar á landinu, ekki
bara hér á starfssvæði
Framsýnar,“ segir Aðal-
steinn Árni.
Ef tollar yrðu
aflagðir á kjúkling
og svín yrði greinin annað-
hvort að hagræða hjá sér eða
keppa á gæðum og bjóða þá
betri vöru. Hitt er svo annað
mál að það er
ástæðulaust
að vernda
óhagkvæmar
atvinnu-
greinar með
tollum.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda
Tollalækkun á
matvæli mun
fækka starfsfólki í greininni
og valda atvinnuleysi í
landbúnaðarhéruðum alls
staðar á landinu.
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I m m t U d a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð