Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 10
NeyteNdamál Félag atvinnurek- enda hefur sent frá sér skýrslu þar sem lögð er til stórfelld lækkun matartolla til hagsbóta fyrir neyt- endur í landinu. Leggur félagið til að almennir tollar á innfluttar búvörur verði lækkaðir um helming, á svína- og alifuglakjöt verði tollar afnumdir að fullu sem og búvörur sem ekki eru framleiddar hér á landi. For- maður Framsýnar á Húsavík full- yrðir að afnám tolla muni fækka afurðastöðvum og skapa atvinnu- leysi í greininni. Skýrslan, sem ber heitið Matar- tollar, verndarstefna eða samkeppni og valfrelsi neytenda? er unnin af starfsmönnum Félags atvinnu- rekenda með það að markmiði að sýna stjórnvöldum fram á hagræn áhrif þess að lækka stórlega tolla á matvæli. Þar kemur fram að verð á matvælum á Íslandi gæti lækkað um allt að 28 prósent. Í skýrslunni segir að stór hluti verndartolla leggist á vörur sem ýmist eru ekki fram- leiddar hér á landi eða teljist ekki til hefðbundinnar búvöruframleiðslu. Verndin skaði því neytendur. „Þetta er að okkar mati rétti tímapunkturinn til að herða á umræðunni, leggja fram tillögur og hvetja stjórnvöld til að skilja matvæli ekki út undan í áformum sínum um afnám tolla,“ segir Ólaf- ur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Einnig er að finna í skýrslunni gagnrýni á kvótafyrirkomulag í innflutningi matvæla. Innflytj- endur þurfi að bjóða í svokallaða tollkvóta og hefur eftirspurnin eftir þeim verið svo mikil undanfarin ár að lítill sem enginn ávinningur hefur fengist af þeim fyrir íslenska neytendur. Ef þessar tillögur myndu ná fram að ganga yrði það líklegast mikið högg fyrir alifugla- og svínarækt í landinu. Ólafur telur samt sem áður að til lengri tíma litið sé frjáls verslun öllum til hagsbóta. „Ef toll- ar yrðu aflagðir á kjúkling og svín yrði greinin annaðhvort að hag- ræða hjá sér eða keppa á gæðum og bjóða þá betri vöru. Hitt er svo annað mál að það er ástæðulaust að vernda óhagkvæmar atvinnu- greinar með tollum. Fyrir því eru færð gild rök í skýrslu starfshóps sem lagði til afnám tolla á öðrum vörum en matvælum. Það eru hins vegar engin önnur lögmál með innflutt matvæli og aðrar vörur.“ sveinn@frettabladid.is Íslendingar elska Skoda enda eru vandfundnari bílar sem henta íslenskum fjölskyldum betur. Þeir eru einstaklega rúmgóðir, sparneytnir, endingargóðir og frábærir í endursölu. Komdu við hjá okkur í Heklu og prófaðu skemmtilega Skoda. Nýr ŠKODA Octavia verð frá 3.390.000 kr. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is SKEMMTILEGUR Á ALLA VEGU – G Ó Ð U R Á B R A U Ð – Í S L E N S K U R GÓÐOSTUR Vilja stærri skref stigin í tollalækkun Félag atvinnurekenda hefur gefið út skýrslu um tolla á matvæli. Leggur félagið til fimmtíu prósenta lækkun almennra tolla á matvæli og afnám að fullu á alifugla- og svínakjöti. Þótt hagur framleiðenda kunni að skerðast sé breytingin öllum til hagsbóta til lengri tíma. Staðreyndir um tolla á valda matvöru Sætar kartöflur eru ekki ræktaðar á Íslandi. Samt sem áður er lagður þrjátíu prósenta tollur á sætar kart- öflur sem fluttar eru til landsins. Algengt útsöluverð í dag á kílói af sætum kartöflum er 360- 490 krónur en með afnámi tolla gæti kílóið lækkað niður í 280-390 krónur. 59 prósenta verð- tollur er lagður á innflutt kartöflusnakk. Tvö fyrirtæki framleiða kartöflusnakk á Íslandi. Neysla hérlendis á kartöflusnakki er mun meiri en sem nemur framleiðslu þessara tveggja fyrirtækja ár hvert. Hins vegar er enginn tollur lagður á snakk sem gert er úr maís ef varan kemur frá EES. Enginn framleiðir maíssnakk hérlendis. Útgjöld meðalstórrar fjölskyldu gætu snarlækkað ef tollar á innflutt matvæli verða afnumdir eða lækkaðir stórlega, að mati Félags atvinnurekenda. Fréttablaðið/GVa Segir afnám tolla valdið skaða í landbúnaði Aðalsteinn Árni Baldurs- son, formaður Fram- sýnar á Húsavík, telur að afnám tolla á matvæli gæti stórskaðað landbúnaðar- héruð, fólk misst vinnuna og afurða- stöðvum myndi óhjákvæmilega fækka. Matvælaiðnaður á Íslandi er með um 17 prósent af heildarveltu í iðnaði og á síðasta ári störfuðu um 4.000 manns við matvælafram- leiðslu á landinu. „Landbúnaðarráðherra hefur stórlækkað tolla á matvæli. Ég full- yrði það að stjórnvöld rannsökuðu ekki á nokkurn hátt hvaða afleiðingar þessi samningur við ESB gæti haft í för með sér og gagn- rýni þannig vinnubrögð. Tollalækkun á matvæli mun fækka starfsfólki í greininni og valda atvinnuleysi í land- búnaðarhéruðum alls staðar á landinu, ekki bara hér á starfssvæði Framsýnar,“ segir Aðal- steinn Árni. Ef tollar yrðu aflagðir á kjúkling og svín yrði greinin annað- hvort að hagræða hjá sér eða keppa á gæðum og bjóða þá betri vöru. Hitt er svo annað mál að það er ástæðulaust að vernda óhagkvæmar atvinnu- greinar með tollum. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Tollalækkun á matvæli mun fækka starfsfólki í greininni og valda atvinnuleysi í landbúnaðarhéruðum alls staðar á landinu. 2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I m m t U d a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.