Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 12

Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 12
Suðurlandsbraut 34 / S. 517 3900 / f lexor.is GILDIR TIL 30. OKTÓBER Skósprengja Bandaríkin Í nýbirtum skjölum sem lekið var frá bandaríska varnarmála- ráðuneytinu er að finna margvíslegar upplýsingar um drónaárásir á vegum Bandaríkjahers og bandarísku leyni- þjónustunnar CIA, sem hafa ekki komið fram áður. Þar kemur meðal annars fram að upplýsingarnar, sem byggt er á þegar skotmörk eru ákveðin, eru iðulega ófullkomnar. Einnig kemur fram að hátt hlutfall þeirra einstaklinga, sem drepnir eru í þessum árásum, eru almennir borgarar sem ekki var ætl- unin að drepa. Þetta hlutfall hefur stundum verið mun hærra en áður hefur komið fram. Í sumum tilfellum allt að níu af hverjum tíu. Þá fer ekkert á milli mála í þessum skjölum að Bandaríkjaforseti á þátt í ákvarðanatöku um það, hverja eigi að drepa í þessum árásum. Það eru rannsóknarblaðamenn á vefmiðlinum The Intercept, sem birtu leyniskjölin í lok síðustu viku. Meðal ritstjóra The Intercept eru þau Glenn Greenwald og Laura Poitras, sem upphaflega komu uppljóstrunum Edwards Snowden um víðtækar hler- anir bandarísku leyniþjónustunnar á framfæri við almenning. Að þessu sinni eru leyniskjölin þó ekki fengin frá Snowden, heldur öðrum uppljóstrara sem ekki er nafn- greindur. Drónaárásir Bandaríkjahers hafa frá fyrstu tíð verið umdeildar og stjórnvöld í Pakistan hafa meðal annars harðlega gagnrýnt Banda- ríkin fyrir að gera þessar árásir til að drepa einstaklinga innan landamæra annars ríkis án dóms og laga. Bandarísk stjórnvöld telja sér þetta heimilt ef Bandaríkjunum stafar raunveruleg hætta af þessum einstak- lingum, og ef ríkin, sem þeir hafast við í, annaðhvort vilja ekki eða geta ekki skipt sér af þeim. Tölur um drónaárásir og mannfall eru reglulega teknar saman á frétta- vefnum thebureauinvestigates.com, sem rannsóknarblaðamennirnir á The Bureau of Investigative Journal- ism halda úti. Þar kemur fram að Bandaríkjamenn hafa frá árinu 2002 gert samtals að minnsta kosti nærri 700 árásir með drónum í Pakistan, Jemen, Sómalíu og Afganistan. Samkvæmt þessu hafa drónaárás- irnar kostað að minnsta kosti 3.500 manns lífið, og þar af voru almennir borgarar að minnsta kosti rúmlega 500, eða einn af hverjum sjö. Tölurn- ar eru fengnar úr frásögnum í fjöl- miðlum, en þegar skoðuð eru leyni- skjöl Pentagon, sem birt voru hjá The Inter cept, birtast aðrar tölur og verri. Eitt skjalanna nær til árása með drónum í Afganistan á tímabilinu frá 1. maí 2012 til 15. september sama ár. Samkvæmt skjalinu voru gerðar samtals 27 árásir með drónum þenn- an fimm og hálfa mánuð, og kostuðu þær árásir samtals 155 manns lífið. Einungis  19  af þeim voru þeir ein- staklingar, sem ætlunin var að drepa. Hinir 136 voru þar með einstaklingar, sem ekki var ætlunin að drepa með árásum þessum.  Hlutfall  annarra, en þeirra sem ætlunin var að drepa,  er þarna orðið næstum því níu af hverjum tíu látnum. gudsteinn@frettabladid.is Nýju ljósi varpað á drónaárásirnar Bandaríkin hafa árum saman sent dróna til að drepa einstaklinga í öðrum löndum, án dóms og laga. Í ný- birtum leyniskjölum Bandaríkjahers kemur fram að allt að níu af hverjum tíu, sem látast í drónaárásum, eru aðrir en þeir sem ætlunin var að drepa. Fólk safnast saman við skóla, sem sprengju var varpað á úr bandarískum dróna í Hangu í Pakistan í nóvember árið 2013. Fréttablaðið/EPa 136 af þeim 155 einstaklingum, sem féllu í drónaárásum í Afganistan sumarið 2012, áttu ekki að láta lífið í þeim árásum. Hinir 19 voru meðal skotmarkanna, sem átti að drepa. Stjórnmál Gerð hefur verið fýsi- leikakönnun á því að færa verkefni fjölmiðlanefndar undir Póst- og fjar- skiptastofnun. Í síðustu viku sagði forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, Hrafnkell V. Gíslason, í ársskýrslu frá þreifingum um sameiningu Samkeppniseftir- litsins við stofnunina og sagði þær varhugaverðar. „PFS hefur bent á þætti í starfi stofnunarinnar sem samrýmast illa starfi annarra stofnana sem rætt hefur verið um í þessu sambandi,“ sagði hann í skýrslunni og tiltók sérstaklega sameiningu við Sam- keppniseftirlitið. Framkvæmd fýsileikakannan- anna er í höndum ráðgjafarfyrir- tækisins Capacent og eiga þær rætur í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í nóvember 2013. Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmda- stjóri fjölmiðlanefndar, segir nefnd- ina ekki mótfallna breytingum, þvert á móti geti falist kostir í fag- lega ígrunduðum breytingum. Hún segir sporin hins vegar hræða þegar kemur að hugmyndum um að sam- eina fjölmiðlanefnd og Póst- og fjarskiptastofnun Samkeppniseftir- litinu. „Það er ekki víst að starfsemi Sam- keppniseftirlits og fjölmiðlanefndar fari saman því nálgun á viðfangsefni stofnananna er ólík,“ segir hún, en bendir um leið á að til sé fjöldinn allur af stofnunum þar sem póst- og fjarskiptamál hafi verið sameinuð fjölmiðlaeftirliti. „Eina landið sem hefur farið þá leið að sameina póst og fjarskipti samkeppnismálum er Spánn og sporin hræða.“ Elfa segir fjölmiðlanefnd hafa tekið þátt í þessu sama ferli og aðrar stofnanir og lagt mat á ýmsar sviðs- myndir. „Hvernig þetta gæti litið út og svo framvegis. Í þeirri vinnu höfum við haldið á lofti grund- vallargildum. Ég nefni sérstaklega sjálfstæði fjölmiðlanefndarinnar. Það er nauðsynlegt að hún sé sjálf- stæð frá hinu pólitíska valdi og að það sé fjölskipað stjórnvald sem hefur þekkingu á málaflokknum. Þetta er stórmál og það verður að tryggja þetta.“ Um ólíka nálgun stofnananna sem áform eru um að sameina segir Elfa að hjá Samkeppniseftirlitinu sé horft á samkeppni og markaði, þá taki eftirlitið ákvarðanir eftir ein- hverja tiltekna atburðarás. „Okkar hlutverk er hins vegar ekki síður að leiðbeina og tryggja tjáningar- og upplýsingafrelsi. Nefndin hefur ekki bara eftir- lit með brotum, það er lítill hluti starfseminnar.“ Ekki sé bara fylgt eftir boðum og bönnum heldur sé nefndinni ætlað margþætt hlutverk til að tryggja að hér á landi séu sjálf- stæðir og burðugir fjölmiðlar. – kbg Hræðist sameiningu við Samkeppniseftirlitið Það er ekki víst að starfsemi Sam- keppniseftirlits og fjölmiðla- nefndar fari saman því nálgun á viðfangsefni stofnananna er ólík. Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmda- stjóri fjölmiðla- nefndar Forstjóri Póst- og fjar- skiptastofnunar greindi frá því í ársskýrslu stofnunar- innar í síðustu viku að þreifingar væru í gangi um sameiningu Samkeppnis- eftirlitsins við stofnunina. hann sagði hugmyndirnar varhugaverðar. 2 2 . o k t ó B e r 2 0 1 5 F i m m t U d a G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.