Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 36
Fólk|
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kr. 17.900.- Str. S-XXL
Nýtt kortatímabil
Jakkar
Ný sending
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
AFSLÁTTARDAGAR
-20% Söfnunar- stell - glös - hnífapör
Mikið úrval af fallegum
vörum á tilboði.
Allt að 50% afsláttur.
-15%
Helena Reynisdóttir förðunarfræðingur segir það vera í tísku í haust og vetur að „baka“ á sér andlitið. „Þá er laust púður sett yfir
hyljara á þeim stöðum sem eiga að lýsast upp. Því
er svo leyft að „bakast“ í fimm mínútur og síðan
dustað af. Þá kemur nokkurs konar „Kim Kar-
dashian-ljómi“ á andlitið. Svo er mikið um það að
andlitsdrættir séu ýktir (highlight-aðir) með því að
skyggja mikið undir kinnbein, meðfram nefi, til að
minnka það, meðfram kjálkalínu og hárlínu. Þetta
er hægt að gera bæði með krem- og púðurvörum.
Síðan er andlitið lýst upp á móti, ofan á kinnbeinin,
framan á nefið og ofan á varirnar,“ lýsir Helena.
Mattar varir og augu
Helena segir eyeliner með miklum væng alltaf vera
inni. Auk þess séu áberandi augnhár að koma sterk
inn. „Dökkir augnskuggar verða áberandi,
brúnir, rauðleitir og jafnvel appelsínugulir.
Þeir henta samt ekki öllum, aðallega blá-
og brúneygum. Mattir litir eru áberandi,
að minnsta kosti verða skyggingar mattar
og kannski smá glans á augnalokinu.
Það sama má segja með varalitina, þeir
eru líka mattir en mikið er um fljótandi
varaliti þannig að þeir eru blautir þegar
þeir eru settir á en mattast svo með tím-
anum. Hlýir tónar haustsins verða sem
sagt allsráðandi í haust en ég hef þó
tekið eftir því að förðunin er ýktari en
oft áður.“
góð ráð
Helena útskrifaðist úr Reykjavík Make-
up School í fyrra og var hæst á prófi
í „beautyförðun“. Hún hefur síðan þá
tekið alls kyns förðunarverkefni að
sér, farðað fyrir bæði tískusýningar og
myndatökur og fleira. Spurð um nokkur
góð förðunarráð nefnir hún að gott sé að setja
hyljara meðfram vörunum þegar búið er að setja
varalit á þær, þannig verða þær þrýstnari. „Það
er sniðugt að nota ljósan eyeliner inn á votlín-
una í augunum. Þannig virka þau opnari og gefur
það ferskara útlit. Liturinn ætti helst að vera beis-
litaður en ekki hvítur, það er náttúrulegra. Með því
að skipta ljósa litnum út fyrir svartan eyeliner og
skella gerviaugnhárum á sig er svo hægt að breyta
dagförðun í kvöldförðun á auðveldan máta. Fyrir
þær sem ekki vilja nota gerviaugnháralengju er
gott að nota til dæmis stök augnhár. Það opnar
augun og gerir þau stærri án þess að þau verði of
ýkt.“
vill vera áberandi
Helena segist ekki mála sig mikið dags-
daglega. „Ég er alltaf með eyeliner
með spíss og nota þekjandi og matt
meik. Ég fíla mött meik því ég vil ekki
glansa þegar líður á daginn. Stundum
nota ég stök augnhár á ytri augn-
háralínu til að opna augun. Ég nota
ekki mikið varalit hversdags en set
stundum á mig smá varablýant og
varasalva með lit í. Við fínni tilefni
nota ég mikinn augnskugga, skyggi
andlitið mikið, nota „highlighter“ og
„baka“ stundum á mér andlitið líka.
Þá nota ég ýktari varalit en hvers-
dags og hendi augnhárum á mig og
geri eyeliner-inn ýktari líka. Ég vil
alltaf vera ýktari heldur en minna
máluð án þess þó að vera með ein-
hvers konar dragmálningu,“ segir
hún og brosir.
Hlýir Hausttónar
FÖrðun Samkvæmt hefðinni verða litirnir í förðun dekkri með haustinu.
Dökkar varir og rauðbrúnir augnskuggar verða áberandi.
Fyrir varirnar Dökkir, mattir varalitir
eru inni í dag.
Helena reynisdóttir FÖrðunarFræðingur
FÖrðun
dÖkkt í Haust Helena Reynisdóttir förðunarfræðingur segir dökka liti vera áberandi í förðun í haust og vetur. MYND/VIlHelM
tíska