Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 48
Kynning − auglýsing 22. október 2015 FIMMtUDAGUr8 Ryksugur
gullryKsuga
Dýrasta ryksuga heims er sögð
henta vel til þess að þrífa rauða
dregla, snekkjudekk og stórar
límósínur. Ryksugan dýra er föl
fyrir átta hundruð þúsund pund
eða litlar 155 milljónir rúmar.
Sugan fína er með 24 karata gull-
húð og fæst aðeins í takmörkuðu
upplagi. Hún vegur sjö og hálft
kíló og með henni fylgir uppruna-
vottorð þegar hún er keypt.
Aðeins hundrað eintök af ryk-
sugunni voru framleidd fyrir net-
verslunina Firebox.com.
Í hvert eintak er grafið
opinbert raðnúmer og
henni fylgir lífstíðar
ábyrgð.
Á síðunni sem
selur dýrgripinn,
Firebox.com, kemur
fram að „jafnvel þeir
óskiljanlega efnuðu
hafi gagn og gaman
af smávegis þrifum.
Aðalmunurinn er
að þegar þeir þrífa
gera þeir það með
gullhúðaðri, átta-
hundruð þús-
und punda,
hágæða
ryksugu.“
Betri líðan
á hreinu heimili
Það finnst ekki öllum skemmti-
legt að þrífa heimilið. Engu að
síður verða allir að þrífa í kringum
sig. Hægt er að gera þrifin auð-
veldari með því að vera skipu-
lagður. Með því að taka til eftir
sig jafnóðum, til dæmis aldrei láta
óhreint leirtau liggja í vaskinum
safnast aldrei neitt upp. Ef fólk
er ekki með uppþvottavél er
einfaldast að þvo upp strax. Það
getur komið í veg fyrir mikinn
kvíða. Það tekur um það bil 15
mínútur að þvo upp eftir matinn.
Gott er að nota þann tíma til að
hugsa eitthvað skemmtilegt eða
hlusta á góða tónlist.
Ef þú hefur áhyggjur af draslinu
í fataskápnum er best að drífa
sig í að taka til. Ánægjan er svo
mikil þegar verkinu er lokið. Taktu
öll föt sem ekki hafa verið notuð
lengi og gefðu þau til góðgerðar-
mála eða reyndu að koma þeim
í verð á sölusíðum, til dæmis á
Facebook.
Mjög mikilvægt er að þrífa bað-
herbergið reglulega. Það tekur
ekki langan tíma ef því er haldið
hreinu daglega. Gerðu það að
venju að skola vaskinn á hverju
kvöldi og fara með bursta í kló-
settið.
Ryksugan er besti vinurinn.
Auðvelt er að fjarlægja ryk á
hinum ýmsu stöðum með auka-
hlutum sem fylgja henni. Hvort
sem það er í lofti, ofan á mynd-
um, speglum, á rimlaglugga-
tjöldum eða öðrum stöðum
þar sem ryk safnast
fyrir. Gott er að nota
burstann. Athugið að
skipta um síu í ryk-
sugunni þegar
skipt er um
poka. Stífluð
sía dregur úr
krafti ryk-
sugunnar.
Nilfisk og Nilfisk
Árið 2003 var hljómsveitin NilFisk stofnuð af
fjórum 15-16 ára drengjum úr barnaskólanum
á Eyrarbakka og Stokkseyri en nafnið er dregið
af ryksuguframleiðandanum góðkunna Nilfisk.
Sveitin vann það sér helst til frægðar að leika eitt
lag á tónleikum einnar vinsælustu rokksveitar
síðasta áratugar, Foo Fighters, sem heim-
sótti Ísland í fyrsta sinn árið 2003 og
lék í Laugardalshöll fyrir fullu húsi.
Aðdraganda þess óvænta heiðurs
má rekja til þess að meðlimir Foo
Fighters sátu að snæðingi degi
fyrir tónleikana á veitingastaðnum
Við fjöruborðið á Stokkseyri þegar
þeir heyrðu til strákanna á æfingu skammt frá.
Dave Grohl, leiðtogi Foo Fighters, ruddist inn á
æfinguna og settist við trommusett NilFisk og
tók lagið með þeim. Eftir stutt spjall var þeim
boðið á tónleikana þar sem NilFisk tróð óvænt
upp og tók lag. Nokkru síðar komust lög-
fræðingar ryksuguframleiðandans á snoðir
um nafngift íslensku sveitarinnar og gerðu
athugasemdir, í formlegu bréfi, um
notkunina á nafninu. Kröfðust þeir að
allur varningur á borð við geisladiska
og boli yrði gerður upptækur. Allt féll
þó að lokum í ljúfa löð. Hljómsveitin
NilFisk lagði upp laupana árið 2008.
Gæði og aftur gæði... fyrir fyrirtæki og stofnanir
Vesturhraun 3 • 480 - 0000
Sterkur félagi
í þrifum!
Cleanfix, ryksugur og tæki til þrifa.
Tækin eru framleidd í Sviss.
Sterkar vélar, þola mikla notkun.
Varahlutir og þjónusta hjá Aflvélum.