Fréttablaðið - 22.10.2015, Page 80
Nú er ég ekkert að finna upp hjólið eða neitt svoleiðis, enda hægt að rekja list-formið aftur um níu þúsund ár, og þetta
sem ég geri er í kringum fimm þúsund
ára. En eitthvað er í gangi hérna,“ segir
Tinna Miljevic förðunarfræðingur
sem hefur í nægu að snúast um þessar
mundir við að mála svokölluð henna-
tattú á íslenskar stelpur, en sannkallað
henna-æði virðist hafa gripið um sig
meðal tískudrósa landsins.
Vinsælast er að fá á handarbakið
en sífellt fleiri stíga út fyrir þæginda-
rammann og fá sér til dæmis á lærið.
„Sjálfri finnst mér það virkilega flott
og gaman að sjá þegar fólk prófar
eitthvað allt annað en það er vant,“
útskýrir Tinna.
„Ég byrjaði á þessu í kjölfar þess að
ég var endalaust spurð um hvert væri
hægt að fara til að fá svona, en gat
aldrei bent á neinn. Þá er allt eins gott
að læra þetta bara og grípa gæsina.“
Undanfarin fjögur ár hefur Tinna því
verið að æfa sig, bæði á fjölskyldumeð-
limum sem og sjálfri sér. „Ég geri mjög
mikið á mig sjálfa. Þetta er sannarlega
þolinmæðisverk, en ég er líka dálítið
handóð svo þetta hentar mér ágæt-
lega,“ segir hún og skellir upp úr.
Spurð hvaðan þetta trend komi
segir Tinna erfitt að benda í einhverja
eina átt, en hún telur söngkonuna
Rihönnu ákveðinn áhrifavald í því
hvað henna-tattú virðist vera vin-
sælt. „Hún er með svoleiðis, en ég
held reyndar að hún sé með henna-
mynstrið flúrað á sig varanlega. Það
sem ég geri og sóst er í, staldrar aðeins
við í sex til tíu daga og í besta falli tólf,
ef vel er hugsað um hennað.“ Tinna
segir margar konur sækja í henna í
stað skartgripa þegar fara á eitthvað
fínt, svo sem fyrir árshátíðir eða
afmæli. Sjálf tengir hún lítið við svo-
leiðis hugsunarhátt, en hún er iðulega
skreytt frá toppi til táar. „Ég hef verið
kölluð ársskreytt jólatré, en ég hugsa
dæmið þannig að maður eigi ekkert
að vera að bíða endalaust eftir rétta
tilefninu til að skreyta sig, maður
veit til dæmis ekkert hvort maður
verður lifandi á næstu árshátíð,“
bendir hún réttilega á í lokin.
gudrun@frettabladid.is
Fimm þúsund ára
listform trendar
„Maður veit ekkert hvort maður verður lifandi á næstu árshátíð.“
Tinna Miljevic hefur ekki undan að mála mynstur á íslenskar konur
Tinna hefur í nægu að snúast og alltaf
nóg að gera. Nýlega sneri hún aftur
heim til Íslands, eftir að hafa farðað
fyrir þættina Game of Thrones, yfir
þriggja þáttaraða tímabil.
FréTTablaðið/aNToN briNk
listamaður að
störfum, þar sem
sársaukanum er
ekki fyrir að fara.
Þetta gerði
Tinna á sjálfa
sig, en hún
er gjarnan
skreytt frá
toppi til táar.
burtséð frá
tilefninu.
Poppgyðjan
rihanna hefur
mögnuð ítök
þegar kemur að
tískustraumum.
Handar-
bakið er
sívinsælt.
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r56 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð