Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 58
Stuðningsfulltrúa vantar við skólann
og í útibú skólans, Höfðaberg
Meginverkefni er aðstoð við nemendur í leik og starfi, m.a. í
búningsklefum drengja. Sérstaklega er leitað eftir karlmönnum
til starfa.
Vinnutími frá kl. 08:00. Möguleiki á vinnu í frístundaseli síðari
hluta dags og þar með hærra starfshlutfalli . Viðkomandi þurfa
að geta hafið störf sem fyrst og eigi síðan en 1.desember.
Skólaliði óskast
Meginverkefni eru ræsting, gæsla nemenda og aðstoð í
matsal. Daglegur vinnutími frá kl. 07:50 –15:00. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar um störfin er að finna á
www.lagafellsskoli.is og
http://www.mosfellsbaer.is/stjornkerfi/mannaudur/laus-storf/
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar-
félaga og Stamos. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir
skólastjóri í síma 525 9200 / 896 8230.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið
johannam@lagafellsskoli.is
Sérkennsluráðgjafi - Þjónustu- og þekk-
ingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga – Reykjavík
Sérkennsluráðgjafi
Laust er til umsóknar 100% starf sérkennsluráðgjafa hjá
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga. Um er að ræða afleysingu frá
1. desember 2015 til 1. desember 2016.
Helstu verkefni:
• Mat og ráðgjöf á félagsfærni, samskiptum,
tilfinningafærni og námstækni.
• Mat og kennsla á hjálpartæki.
• Ráðgjöf, fræðsla, kynningar og upplýsingamiðlun fyrir
kennara, starfsfólk, nemendur skóla, aðstandendur,
þjónustuaðila og samfélag.
• Þátttaka í rannsóknarvinnu og þróun nýjunga
og umbótaverkefnum.
Hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi, þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða
sambærileg menntun.
• Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða.
• Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki
og frumkvæði í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsókn skal fylgja
ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og
viðtölum við umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2015.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið
thorbjorg@midstod.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðstöfun starfsins liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir
Þorbjörg Gunnarsdóttir í síma 545 5800.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík
Starfsmaður í fjármáladeild
Starfið felst í: Menntunar og hæfniskröfur:
• Færslu á fjárhagsbókhaldi ásamt
afstemmingum.
•Útreikningar á launum og reikningagerð.
•Önnur tilfallandi verkefni.
•Góð reynsla af vinnu við bókhald er nauðsynleg.
•Menntun sem viðurkenndur bókari eða
sambærileg menntun er kostur.
•Þekking á DK- bókhaldskerfinu og launaumhverfi.
•Góð kunnátta og færni í Excel.
•Góð skipulagning, nákvæmni og sjálfstæði í
vinnubrögðum.
•Þjónustulyndi, jákvæðni og lipurð í
mannlegum samskiptum.
Arctic Adventures leitar að starfsmanni í fjámáladeild í fullt starf. Viðkomandi mun starfa í
fjármáladeild fyrirtækisins að fjölbreyttum verkefnum. Þar starfar teymi sem sér um allt sem snýr
að fjármálum fyrirtækisins og launum starfsmanna. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
www.adventures.is | Vatnagarðar 8 | 104 Reykjavík
Allar umsóknir berist til Karls Óttars í karl@adventures.is
Umsóknarfrestur er til 9. nóvember 2015
RÁÐGJAFI Í SÖLUDEILD
Öflugur ráðgjafi óskast í söludeild Brimborgar fyrir
nýja og notaða Ford bíla.
Kynntu þér starfið nánar og sæktu um í dag á www.brimborg.is
Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2015.
PIPA
R
\TBW
A
• SÍA
• 155205
Starfssvið
• Áætlunargerð og eftirfylgni innlendra og
alþjóðlegra rannsóknarverkefna
• Uppgjör og skýrslugerð rannsóknarverkefna
• Samskipti og þjónusta við stjórnendur
rannsóknarverkefna
• Upplýsingamiðlun um rekstur verkefna
Reikningshald rannsóknarverkefna
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í viðskiptafræði, fjármálum
eða skyldum greinum
• Góð þekking á áætlunargerð og vinnu
að uppgjörum er æskileg
• Reynsla af endurskoðunarstörfum og þekking
á endurskoðun er kostur
• Góð tölvufærni og þekking
á fjárhagsupplýsingakerfum
• Þjónustulund, skipulagshæfni, afbragðs samstarfs-
hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Frumkvæði í starfi
Laust er til umsóknar nýtt starf við reikningshald rannsóknarverkefna vegna aukinna umsvifa
í rannsóknum á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Starfsmaðurinn verður hluti
af fjármálateymi sviðsins.
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskólans leggja allir starfsmenn sitt af mörkum til kennslu,
rannsókna og nýsköpunar. Starfsemin er fjölbreytt og spennandi og krefst hún skipulagshæfni og
leikni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á þjónandi og hvetjandi starfsanda.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2015.
Sjá nánar www.hi.is/laus_storf
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 360 manns
við rannsóknir á heimsmælikvarða og við fjölbreytta og
metnaðarfulla kennslu. Starfsumhverfi er alþjóðlegt enda
eykst sífellt hlutfall erlendra nemenda og starfsmanna við
sviðið. Rannsóknarstofnanir sviðsins eru eftirsóttir
samstarfsaðilar erlendra háskóla og gegna veigamiklu
hlutverki í vísindasamfélaginu. Þetta eru Verkfræðistofnun,
Líf- og umhverfisvísindastofnun og Raunvísindastofnun.
Háskóli Íslands er í hópi 300 bestu háskóla heims
samkvæmt nýjum matslista Times Higher Education.
Nánari upplýsingar veita:
Sigvaldi Egill Lárusson, verkefnisstjóri fjármála,
í síma 525 4606, sigvaldi@hi.is, og Sigurður Guðnason,
framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar,
í síma 525 4810, sgudna@hi.is.