Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 4
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Netverð á mann frá kr. 59.900 m.v. 2 í herbergi.
Sevilla
6. nóvember í 3 nætur
ST
ÖK
KT
U
Frá kr. 59.900
m/morgunmat
Tölur vikunnar 26.10.2015 - 1.11.2015
207
manns
standa að málsókn gegn Björgólfi
Thor Björgólfssyni.1.673
Tilkynningar
um vanrækslu bárust Barnavernd
fyrstu sex mánuði ársins 2015.
900
milljarða
höfðu 10 stærstu fyrirtæki landsins í
tekjur í fyrra.150 milljónir
ráðgerir þjóðkirkjan
að nota til að laða til
sín fleiri sálir.
240
rafmagnsbílar
hafa selst á árinu.
28%
samdráttur hefur
verið í sjónvarps-
áhorfi frá 2009. 20
ár
eru liðin frá
frumsýningu
kvikmyndarinnar
Toy sTory
6
landsliðskonur
hafa leikið
100 landsleiki
í knattspyrnu
fyrir Ísland.
kr
Stofnfiskur er annað af stærstu fyrirtækjum heims í framleiðslu lifandi laxahrogna
og hefur setið eitt að markaði í Síle. mynd/StofnfiSkur
viðskipTi Yfirvöld í Síle hafa fyrir-
skipað tímabundið innflutnings-
bann á íslenskum laxahrognum.
Ástæðan er veirusýking sem
greindist nýlega í hrognkelsum hjá
Tilraunastöð Hafrannsóknastofn-
unar í Grindavík sem ætluð voru til
undaneldis á seiðum sem flytja átti
til Færeyja þar sem þau eru nýtt af
þarlendum laxeldisfyrirtækjum til
að halda niðri laxalús í sjókvíaeldi.
Bannið snertir fyrirtækið Stofn-
fisk beint, stærsta framleiðanda
laxahrogna hér á landi, sem eitt
fyrirtækja í heiminum hefur haft
heimild til að selja laxahrogn til
Síle. Undanfarin ár hefur heildar-
sala Stofnfisks á laxahrognum til
Síle verið verulegur hluti af fram-
leiðslu fyrirtækisins, og þar af leið-
andi tekjum. Stofnfiskur framleiddi
laxahrogn fyrir vel á annan milljarð
í fyrra.
Í frétt Stofnfisks vegna málsins
á heimasíðu fyrirtækisins er það
skýrt tekið fram að um tímabundið
Síle lokar á innflutning laxahrogna
kjaramál Viðræður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar við viðsemjendur
hefjast eftir helgi, að því er fram kemur
á vef félagsins. „Nú þegar stór hópur
innan BSRB hefur náð samningum við
ríkið eykst bjartsýni á að gangur komist
á viðræður við Reykjavíkurborg, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga og ríkið,“
segir þar. Á sama tíma kvarta skóla-
stjórnendur og prófessorar ríkisháskóla
undan seinagangi í viðræðum við ríkið.
Væntingar eru um að vel gangi að ná
samningum við þau félög sem SALEK-
samkomulagið svokallaða nær til, en í
því er mörkuð launastefna til ársloka
2018. Stefnan miðast við að launa-
kostnaðarvísitala einstakra hópa
hækki ekki á tímabilinu um meira en
32 prósent, talið frá nóvember 2013.
Þó nokkur félög standa hins vegar
fyrir utan samkomulag SALEK. Bryn-
dís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari
áréttar að þótt margir samningar séu
fyrir utan samkomulagið þá nái það
samt til 70 prósenta félagsmanna
stéttarfélaga. „Vissulega eru þessir
hópar þarna fyrir utan sem eiga ósamið
og verður bara að koma í ljós hvernig
það vinnst,“ segir hún.
Af þeim stéttarfélögum sem fyrir
utan SALEK-samkomulagið standa
eru tólf hjá Bandalagi háskólamanna
(BHM) sem eiga ósamið við sveitarfé-
lögin. Þar á meðal eru Félag prófessora
hjá ríkisháskólum og Félag háskóla-
kennara, sem á ósamið við ríkið.
Innan Kennarasambandsins (KÍ) er svo
ósamið við skólastjórnendur í leik- og
grunnskólum, auk Félags tónmennta-
kennara og Félags leikskólakennara. Þá
eru ótaldir samningar sveitarfélaganna
við stéttarfélög sem standa utan banda-
laga, svo sem við hjúkrunarfræðinga,
verkstjóra og verk- og tæknifræðinga.
Kvarta undan seinagangi í
kjaraviðræðum við ríkið
Nokkur hópur stéttarfélaga sem enn hefur ekki verið samið við stendur fyrir utan SALEK-samkomulagið um
breytta nálgun við kjarasamninga. Leiðrétta þarf samninga á almenna markaðnum, segir formaður SGS.
utan SALEk-samkomulagsins standa stéttarfélög utan bandalaga, tólf innan BHm og kennarasambandið. fréttABLAðið/PjEtur
Innan margra félaganna er farið að
gæta töluverðrar óþreyju vegna dráttar
á samningum, svo sem hjá félagi pró-
fessora sem undirbýr atkvæðagreiðslu
um verkfallsaðgerðir sem grípa á til í
desember. Svipað er ástatt um skóla-
stjóra, nema hvað þeir hafa ekki verk-
fallsrétt. Í pistli á vef KÍ segir Ólafur Arn-
grímsson, skólastjóri Stórutjarnaskóla,
tilfinninguna líkt og félagið sé út undan
og gleymt. „Samninganefnd sveitarfélag-
anna neitar að tala við samninganefnd
SÍ um nokkuð það sem hægt er að segja
að skipti máli þegar samið er um kaup
og kjör,“ segir hann. olikr@frettabladid.is
innflutningsbann sé að ræða og
standa vonir forsvarsmanna þess til
að niðurstaða rannsókna yfirvalda í
Síle liggi fyrir sem allra fyrst, eða í síð-
asta lagi fyrir áramót. Eins er hnykkt á
því að eldi hrognkelsa í Grindavík, en
Stofnfiskur er samstarfsaðili Hafró í
því verkefni, komi framleiðslu á laxa-
hrognum í raun ekkert við og smit á
milli eldisstöðva í raun illmögulegt
eða útilokað. Aðeins sé um varúðar-
ráðstöfun að ræða.
Innflutningsbannið var sett á
af Sernapecska eftir flöggun frá
Alþjóðadýraheilbrigðismálastofn-
uninni í París. – shá
Þrír í fréttum
Heimsókn, leki
og nýbyggingar
David
Cameron, for-
sætisráðherra
Bretlands,
kom til Íslands
á miðviku-
dag og hélt
meðal annars
erindi á ráðstefnunni Northern
Future sem haldin var á Grand
hóteli í gær. Þátttakendur í ráð-
stefnunni voru forsætisráðherrar
Norðurlandanna, Bretlands og
Eystrasaltsríkjanna. Sagði hann
að nauðsynlegt væri að miklar
breytingar yrðu gerðar á Evrópu-
sambandinu.
Félagsráð-
gjafi á Land-
spítalanum lak
upplýsingum
um víetnömsku
hjónin Thi
Thuy Nguyen
og Hao Van Do
til Útlendingastofnunar. Útlend-
ingastofnun óskaði eftir lögreglu-
rannsókn á hjónabandinu. „Að sögn
umbjóðanda míns hittu þau hjónin
félagsráðgjafa hjá Landspítalanum í
tengslum við meðgöngu og fæðingu
dóttur þeirra. Sá ráðgjafi hlýtur að
hafa lekið upplýsingum til Útlend-
ingastofnunar,“ segir björg val-
geirsdóttir, lögmaður hjónanna.
Til skoðunar er
innan forsætis-
ráðuneytisins
að dusta rykið
af gömlum
hugmyndum
um að reisa
nýbyggingar
fyrir ráðuneytin á stjórnarráðs-
reitnum. stefán Thors, nýskip-
aður húsameistari ríkisins,
segir stöðuna í húsnæðismálum
ráðuneytanna vera nokkuð
erfiða enda séu þau oft dreifð og í
mörgum byggingum.
Samningur sem þarf að leiðrétta samþykktur
Ríkisstarfsmenn í fimmtán aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins (SGS)
samþykktu með tæplega 82 prósentum atkvæða kjarasamning sem undirrit-
aður var 7. október síðastliðinn. Samningurinn er á svipuðum nótum og samið
var um á almennum vinnumarkaði í vor.
Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, sagði hins vegar í viðtali við frétta-
stofu í gær augljóst, miðað við forsendur SALEK-samkomulagsins, að leið-
rétta yrði laun allra stéttarfélaga innan sambandsins upp úr áramótunum.
Hann reiknar með að það geti gerst án átaka og vill ljúka viðræðum við
Samtök atvinnulífsins þar að lútandi fyrir 1. febrúar. „Ef ekki næst samkomu-
lag þá er uppsagnarheimild fyrir hendi. Þannig að þá fellur þetta bara ef ekki
er hægt að ná samkomulagi.“
3 1 . o k T ó b e r 2 0 1 5 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð