Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 80
Illugi Jökulsson fjallar um
múftann í Jerúsalem sem
Netanyahu forsætisráðherra
Ísraels segir að hafi gefið Hitler
hugmyndina að
helförinni.
Flækjusaga
Á spjalli við Hitler.
í góðum fíling með Himmler.
Mannkynssagan er spegill okkar, ætli
megi ekki segja það? Jú, segjum það,
skarpur spegill og skýr. En svo birtist
fyrir eitthvað um viku í fréttunum dæmi
– og það skelfilegt dæmi – um hve þessi
spegill er líka brothættur. Maður kast-
aði grjóti í mannkynssöguna og hún
hefði getað sundrast. Og það var líka
ætlun þessa manns, hann ætlaði bein-
línis að nota eitt spegilbrot hennar sem
vopn gegn andstæðingum sínum, hann
ætlaði að bregða hárbeittu brotinu á
háls fjenda sinna og rista snöggt. Ég á
að sjálfsögðu við Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Ísraels.
Netanyahu var að flytja ávarp þar
sem hann fann hjá sér þörf til að segja
að Amin al-Husseini, múfti múslima í
Jerúsalem, hefði gegnt lykilhlutverki
við að hleypa af stokkunum „lokalausn“
þýskra nasista á „Gyðingavandamál-
inu“. Lokalausnin fólst, eins og menn
vita, í því að drepa þá einfaldlega, alla
þá Gyðinga í milljónavís sem Hitler og
kumpánar hans komu höndum yfir.
Hingað til hefur verið talið að Hitler
hafi verið fullfær um að koma morð-
verksmiðjum lokalausnarinnar sjálfur
á koppinn, en Netanyahu hafnaði því í
ávarpi sínu. Hann sagði að þegar múft-
inn í Jerúsalem hafi flogið á fund Hitlers
hafi nasistaforinginn alls ekki ætlað sér
að drepa Gyðinga, hann hafi bara ætlað
að gera þá burtræka.
„Hvað á ég þá að gera?“
Og þá segir Netanyahu að Amin
al-Husseini hafi sagt við Hitler: „Ef þú
rekur þá burt þá koma þeir bara allir
[til Palestínu].“
Hitler spurði þá múftann: „Hvað ætti
ég þá að gera við þá?“
Og þá sagði múftinn: „Brenndu þá.“
Og þótt sagan hjá Netanyahu hafi
ekki orðið lengri í þessu tiltekna ávarpi
þá var áheyrendum greinilega ætlað að
draga þá ályktun að þarna hefði fyrst
hvarflað að Adolf Hitler sú hugmynd
að drepa einfaldlega alla Gyðingana, og
líklega hefði honum bara aldrei dottið
slík ósvinna í hug ef Amin al-Husseini
hefði ekki stungið því að honum. Rétt
er að taka fram að fullyrðingar af þessu
tagi eru ekki alveg nýjar af nálinni.
Zíonistar í Ísrael hafa löngum hamrað á
heimsókn múftans til Hitlers sem merki
um mannvonsku hans og hatur í garð
Gyðinga. En enginn hefur áður gengið
svo langt að nánast fría Hitler af ábyrgð
„Hei Hitler, mér
datt soldið í hug“
á upphafi helfararinnar en koma henni
á herðar múftans í staðinn. Og væri sú
kenning tekin gild sem Netanyahu bar
fram í ávarpi sínu, þá væri í rauninni
allur sá mannkynssöguspegill sem
bæði Ísraelar og Gyðingar almennt hafa
speglað sig í eftir helförina mölbrotinn.
Tilgangur Netanyahus var augljós.
Hann hatar Palestínumenn, ég held
það sé alveg óhætt að segja það, og
honum er svo umhugað um að sverta
hlut þeirra í erjunum þrotlausu í Pal-
estínu að hann er meira að segja til í
að slaka ábyrgð af Adolf Hitler, sem
hingað til hefur nú ekki þótt góð latína
hjá ísraelskum stjórnmálamönnum. En
sannleikurinn er sá að sú útgáfa af sam-
tali Hitlers og múftans sem Netanyahu
flaggar nú á sér enga stoð í raunveruleik-
anum. Alls enga.
Lögspekingur?
En hver var þessi múfti og hvað var
hann að þvælast á fund Hitlers? Jú,
Amin al-Husseini fæddist 1897 í Jerú-
salem og var af miklum múfta- og
virðingarættum þar í borg. Múfti er
eiginlega helsti lögspekingur múslima
og eiginlega dómari á hverjum stað
og honum ber náttúrlega að úrskurða
ævinlega í samræmi við boðorð íslams
og því er þetta eins konar sambland
af trúarlegum og veraldlegum leið-
toga. Eftir að Bretar tóku Palestínu af
Tyrkjum í fyrri heimsstyrjöld réðu
þeir hver gegndi múftastarfinu í Jerú-
salem og þeir völdu Amin al-Husseini
árið 1921. Hann varð þar með aðeins
24ra ára gamall helsti virðingarmaður
íslamskra Palestínumanna.
Staða mála í Palestínu var þá mjög
flókin en hér skiptir aðeins máli að
Amin al-Husseini hóf þegar harða
baráttu gegn þeim sívaxandi innflutn-
ingi Gyðinga til Palestínu sem byrjaði
þegar zíonisminn kom til sögunnar
laust fyrir 1900. Bretar reyndu um tíma
að fara bil beggja en eftir því sem oftar
skarst í odda millum Araba og Gyðinga
varð stuðningur þeirra við Gyðinga ein-
dregnari. Árið 1936 gerðu Arabar blóð-
uga uppreisn sem Bretar bældu niður af
mikilli hörku. Múftinn fór þá í útlegð.
Árið 1939 reyndu Bretar að friðmælast
við arabíska íbúa í Palestínu og lögðu
fram svokallaða „hvítbók“ en í henni
fólst að miklar skorður yrðu settar við
innflutningi Gyðinga og þegar Palestína
fengi sjálfstæði eftir vissan tíma yrðu
Gyðingum tryggð full réttindi en ríkið
yrði þó arabískt. Hugmyndum um tvö
ríki Araba og Gyðinga var algjörlega
sópað út af borðinu.
Hafnaði athyglisverðu tilboði
Þessu athyglisverða tilboði hafnaði
múftinn, því þegar þarna var komið
sögu vildi hann ekkert af Gyðingum vita
í Palestínu. Zíonistar börðust reyndar
líka ákaft gegn hvítbókinni enda fannst
þeim Bretar draga þar mjög taum
Araba. Ef hugmyndir hvítbókarinnar
hefðu verið samþykktar af Aröbum er
ekki víst að Ísraelsríki hefði orðið að
veruleika í þeirri mynd sem raun varð
1948, þótt ógjörningur sé reyndar að
fullyrða um það þar eð heimsstyrjöldin
og helförin breyttu ansi miklu.
Og þar á meðal gerði múftinn Amin
al-Husseini út af við allan mögulegan
trúverðugleika sinn eftir stríðið með
óskoruðum stuðningi sínum við
Hitler og stefnu Þýskalands meðan á
styrjaldar árunum stóð. Því sá stuðn-
ingur var ótvíræður og fyrirvaralaus,
það verður að viðurkennast þótt hinni
nýju söguskoðun Netanyahus hljóti
menn samt að hafna algjörlega. Þar á
meðal var það að frumkvæði múftans
sjálfs sem hann fór á fund Hitlers 28.
nóvember 1941. Erindi hans var að
biðja um opinberan stuðning Hitlers
við „sjálfstæði og frelsun Araba“ og að
upprætt yrði heimaland Gyðinga í Pal-
estínu. Hitler neitaði að gefa slíka opin-
bera yfirlýsingu. Ástæðan sem hann gaf
Amin al-Husseini upp var sú að hann
vildi ekki styggja frönsku leppstjórnina
sem kennd var við Vichy en hún réð
málum í Sýrlandi og mátti ekki heyra
minnst á sjálfstæðistilburði Araba.
Illmenni
Ugglaust var Hitler líka með bak við
eyrað að hann ætlaði hersveitum sínum
að ráðast yfir Kákasusfjöll og inn í Mið-
austurlönd og þegar hakakrossinn væri
farinn að blakta þar vildi hann ekki fá í
bakið yfirlýsingar um stuðning við sjálf-
stæði Araba, þótt Hitler fullyrti raunar
við múftann að hann mætti gera ráð
fyrir slíkum stuðningi þegar til kæmi.
Hitler masaði svo heilmikið að venju
um nauðsyn þess að „leysa Gyðinga-
vandamálið“ og yrðu Evrópuþjóðirnar
fengnar til þess hver af annarri og síðan
þjóðir í öðrum heimshlutum líka. Full-
ljóst var auðvitað um hvað hann var að
tala og ekkert í vitnisburði manna af
þessum fundi – ekki einu sinni vitnis-
burður múftans sjálfs – styður að hann
hafi með einhverjum hætti stungið
þeirri áður óþekktu hugmynd að Hitler
að „brenna“ Gyðinga.
Múftinn var vissulega illmenni. Er
fram í sótti vissi hann fullvel að Þjóðverj-
ar voru að drepa Gyðinga í milljónavís.
Hann hitti til dæmis Heinrich Himmler
foringja SS sumarið 1943 þar sem þetta
var beinlínis rætt. Og múftinn sagði
opinberlega að múslimar ættu að fylgja
fordæmi Þjóðverja með „endanlegri
lausn á Gyðingavandamálinu“. Múft-
inn lagðist líka mjög eindregið gegn
hugmyndum, sem á kreiki voru seint í
stríðinu, um að 4.000 Gyðingabörn frá
Búlgaríu, Ungverjalandi og Rúmeníu
fengju að sleppa undan útrýmingar-
búðunum með því að fá farar leyfi til
Palestínu. Og í Berlínar útvarpinu
ávarpaði múftinn múslima hinn
1. mars 1944 og sagði: „Arabar, rísið upp
sem einn maður og krefjist heilagra rétt-
inda ykkar. Drepið Gyðinga hvar sem
þið finnið þá. Það gleður guð, söguna
og trúna. Það bjargar heiðri ykkar. Guð
sé með ykkur.“
Peningar frá Hitler
Eindreginn stuðningur múftans við
Hitler og nasista var raunar ekki bara
af „hugmyndafræðilegum“ ástæðum.
Hann þáði líka gríðarlega peninga
af Þjóðverjum á stríðsárunum. Sam-
kvæmt Wikipedíu nam upphæðin
sem svarar 1,5 milljörðum króna á ári.
Eftir að stríðinu lauk reyndi múft-
inn að verða að nýju forsvarsmaður
múslima í Palestínu. En stuðningur
hans við Hitler olli því að eftir það
tóku fáir mark á honum. Fram á
þennan dag kunna múslimskir Pal-
estínumenn illa við að gagnrýna hann
opinberlega af því að þrátt fyrir allt er
litið á hann sem mikilvægan þátt í að
efla þjóðarvitund Palestínumanna
milli heimsstyrjaldanna tveggja. En
minning hans er að eilífu flekkuð af
fundinum með Hitler. Hann lést í
útlegð í Líbanon 1974.
En þótt múftinn hafi stutt Hitler
dyggilega og verið hæstánægður
með helförina, þá átti hann ekki hug-
myndina að henni. Ömurleg tilraun
Netanyahus til að varpa sök af hel-
förinni á hann og þar með palestínsku
þjóðina er hins vegar til marks um að
sagan er brothætt. Og til þess að hún
sé ekki notuð til áróðurs og illra verka
verðum við að þekkja hana vel. Að
æðsti valdamaður í ríki þar sem sagan
skiptir jafn miklu máli og í Ísrael skuli
geta hugsað sér að misbrúka hana svo
hrottalega, það sýnir að menn skulu
alltaf vera á varðbergi.
Yfir 13.000 eignir á skrá
fasteignir.is á
MúftInn lagðIst líka
MJög eIndregIð gegn
hugMynduM, seM á
kreIkI voru seInt í
stríðInu, uM að 4.000
gyðIngabörn frá búlg-
aríu, ungverJalandI
og rúMeníu fengJu
að sleppa undan
útrýMIngarbúðunuM
Með því að fá farar-
leyfI tIl palestínu.
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r44 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð