Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 82
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
Björn Jónasson
Stóragerði 29, 108 Reykjavík,
jarðfræðingur og framkvæmdastjóri
hjá Varahlutaversluninni Kistufelli,
lést á Landspítalanum þann 24. október
síðastliðinn. Útför hans fer fram frá
Hallgrímskirkju þann 4. nóvember kl. 15.00.
Jóhanna Kristín Björnsdóttir Þórir Ingþórsson
Þórunn Jóhanna Þórisdóttir Elísabet Hildur Þórisdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir og systir,
Rebecca Louise
Engilbertsson
lést á Valley Care Medical Center í
Pleasanton, California, föstudaginn
23 . október.
Guðmundur Már Engilbertsson
Bill og Connie Cosby
Jane Cosby Cooper
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Magnúsar Aspelund
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
krabbameinsdeildar Landspítalans og
Karitas hjúkrunarþjónustu.
Daðína Rannveig Friðriksdóttir
Friðrik Aspelund Björg Gunnarsdóttir
Helga Aspelund Guðmundur G. Guðmundsson
Harald Aspelund Ásthildur Björg Jónsdóttir
Kristinn Arnar Aspelund Karólína Stefánsdóttir
Elín Arna Aspelund Jóhannes Þorleiksson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
Halldór Halldórsson
bifvélavirki frá Ísafirði,
lést þriðjudaginn 27. október á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 7. nóvember kl. 11.
Ingibjörg Halldórsdóttir Hannes Guðmundsson
Sigrún Halldórsdóttir Björn Jóhannesson
Marta K. Halldórsdóttir Valur Þór Norðdahl
Einar Halldórsson Lanilyn Galo Secuya
afa- og langafabörn og systur hins látna.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og
samúð við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, dóttur og ömmu,
Lilju Aðalsteinsdóttur
hjúkrunarfræðings frá Neskaupstað,
sem jarðsett var frá Dómkirkjunni
19. október. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Karitas
fyrir frábæra umönnun, vinsemd og hlýju.
Einar Þórarinsson
Þórarinn Einarsson
Katrín Einarsdóttir Jón Egill Sveinsson
Karólína Einarsdóttir Ásgeir Ástvaldsson
Þorvaldur Einarsson Erla Sif Ástþórsdóttir
Auður Bjarnadóttir
barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma,
systir og tengdadóttir,
Sjöfn Magnúsdóttir
Skógarbraut 1103,
Ásbrú,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
laugardaginn 17. október. Útförin fer fram
frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 3. nóvember kl. 13.00.
Óskar Gunnarsson
Ellen Dana Guðmundur
Jóna Petra Kristinn Páll
Magnús Þór Benta Magnea
Hólmfríður Ósk Elvar
Elís Barri
barnabörn, systkini og Gunnar Haraldsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
Guðmundur Árni svarar síma í útlönd-
um þegar hann er beðinn um afmælis-
spjall á tímamótasíðuna í tilefni sex-
tugsafmælisins sem er í dag. „Oooh, ég
er að reyna að gleyma þessu!“ eru fyrstu
viðbrögðin. En svo lætur hann tilleiðast.
Við byrjum á að ræða myndamálin. Þar
sem hann er staddur í Varsjá hef ég ekki
tök á að senda til hans ljósmyndara. „Þú
hlýtur að eiga einhverja mynd frá því
ég var ungur og slank að leika með FH í
handboltanum í gamla daga,“ segir hann
léttur.
Hann kveðst vera rótgróinn Gaflari
og FH-ingur og hafa notið þess að vera
stjórnarformaður í fótboltanum þar
þegar strákarnir urðu fyrst Íslands-
meistarar 2004. „Sú velgengni ætlaði
engan endi að taka.“ Guðmundur
Árni gekk ungur til liðs við Alþýðuflokk-
inn. Hann var bæjarstjóri í Hafnarfirði
á árunum 1986 til 1993, þá fór hann
á þing og sat þar til 2005. Kom líka að
stjórn tveggja ráðuneyta snemma á
þingmannsferlinum, félagsmála og
heilbrigðis. „Pólitíkin er snar þáttur í
lífi margra og hjá mér var hún gríðarlega
skemmtilegur tími,“ segir hann og bætir
við: „Pólitíkin er lífið og unga fólkið þarf
að vita það.“
En var hann ekki í útvarpinu um
tíma? „Jú, við séra Önundur Björnsson
vorum með mannlega og huggulega
útvarpsþætti. Svo er ég gamall hundur
í blaðamannastétt því ég var rann-
sóknarblaðamaður á Helgarpóstinum
fyrri, með Árna Þórarinsson og Björn
Vigni Sigurpálsson við stjórnvölinn.
Það voru frábærir tímar, gaman að
reyna fá eitthvað upp úr pólitíkusum
sem vildu engu svara. Svo varð það mitt
hlutskipti að fá fréttamannagamma yfir
mig síðar. Það er bara eins og lífið er,“
rifjar hann upp.
Síðustu tíu ár hefur Guðmundur
Árni starfað í utanríkisþjónustunni,
fyrst sem sendiherra í Svíþjóð, síðan í
Bandaríkjunum. „Nú er ég svokallaður
heimasendiherra og bý í Hafnarfirði hjá
minni konu en meginverkefni mitt er
að vera fulltrúi utanríkisráðuneytisins í
Eystrasaltsráðinu sem er samband ellefu
ríkja. Það er að mörgu leyti skemmtilegt.
Við Íslendingar erum að taka við for-
mennsku í því ráði á næsta ári,“ segir
hann og kveðst einmitt vera í Varsjá í
embættiserindum. Hann ætlar samt að
vera mættur heim á afmælinu en ekki
halda upp á það. „Ég hugsaði um það,“
viðurkennir hann. „Ákvað að gera það
annaðhvort með stæl eða gera ekki neitt
og valdi það síðarnefnda. En auðvitað
hitti ég mitt nánasta fólk.“
gun@frettabladid.is
Ætlaði að gleyma afmælinu
Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi blaðamaður, bæjarstjóri, þingmaður og ráðherra,
er sextugur í dag. Þótt titlarnir séu margir er hann þó fyrst og fremst gallharður FH-ingur.
Guðmundur Árni með einu af fimm barnabörnum sínum, dóttursyninum Guðmundi Loka.
Mynd/Jóna dóra KarLsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og tvíburasystir,
Ása Karen Ásgeirsdóttir
Vatnsstíg 21,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 27. október. Útför hennar
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
5. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Alzheimersamtökin.
Kristín Jóhannesdóttir Sigurður Rúnar Sveinmarsson
Jón Ásgeir Jóhannesson Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir
Ása Karen, Gunnhildur, Anton Felix, Berglind, Stefán Franz
Anna Guðlaug Ásgeirsdóttir
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r46 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót