Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 20
tindastóll rak poikola
pieti poikola var í gær rekinn úr
starfi þjálfara tindastóls í dom-
ino’s-deild karla eftir aðeins fjóra
leiki. tindastóll vann fyrstu tvo
leiki sína en tapaði næstu tveimur,
fyrir Þór Þorlákshöfn og svo
Haukum á heimavelli í fyrrakvöld.
samkvæmt heimildum íþrótta-
deildar fór aðferðafræði poikola,
sem skipti afar ört um leikmenn
á meðan leik stóð, illa í leikmenn
liðsins en þeim var þó ekki heimilt
að tjá sig um brottrekstur finnska
þjálfarans þegar eftir því var leitað
í gær.
365.is Sími 1817
LAUGARDAG KL. 12:35
Stemningin hefur verið heldur þung á Stamford Bridge
síðustu vikur. Nær Mourinho að rífa sína menn upp og sigra
Klopp og kó í mögnuðum hádegisleik í enska boltanum?
Ekki missa af þessum stórveldaslag á Stöð 2 Sport 2!
CHELSEA–LIVERPOOL
Íslenskt brons á HM fatlaðra í gær
Á palli Ármenningurinn Helgi Sveinsson vann brons í spjótkasti í Doha
í gær en hann kastaði 55,18 metra. Keppt var í sameiginlegum flokki
F42, 43 og 44 en Helgi var heimsmeistari í flokki F42 og þetta kast hans í
gær var heimsmeistaramótsmet í hans flokki. Fréttablaðið/getty
handbolti „Þetta er búið að
vera alveg ótrúlega gaman,“ segir
Hrafnhildur ósk skúladóttir,
þjálfari kvennaliðs ÍBV, en hennar
lið hefur farið frábærlega af stað í
olís-deild kvenna.
liðið er búið að vinna átta
fyrstu leiki sína í deildinni
og á fimmtudag skelltu
s t e l p u r n a r h e n n a r
Í s l a n d s m e i s t u r u m
Gróttu í uppgjöri
ósigruðu liðanna.
Byrjun liðsins er því
fullkomin en það
ke m u r m ö r g u m
á óvart enda var
ÍBV spáð fimmta
sætinu í deildinni
í árlegri spá fyrir
mótið.
„ É g h a f ð i
a l l t a f m e i r i
trú á þessum
st e l p u m e n
aðrir þjálfarar
deildarinnar
g r e i n i l e g a .
V i ð h ö f u m
aðeins fengið
e i n n l e i k -
mann síðan
spáin var birt
og sú er ekki
í byrjunarlið-
inu þó að hún
spili mikið,“
s e g i r H ra f n -
hildur og bætir
við að margir hafi
líka haft litla trú
á hinum 19 ára
gamla markverði
hennar, Erlu rós sigmarsdóttur,
sem er reynslulítil.
„Það var alltaf sagt við mig að
ég gæti ekki verið í efstu sætunum
af því mig vantaði markvörð. Ég
hafði séð hana síðan hún var 17
ára og sá strax hvað hún er mikið
efni. Það kemur mér því ekkert
á óvart að hún sé að springa út í
vetur. Hún byrjaði frábærlega í
fyrsta leik gegn Fram og hefur
síðan haldið uppteknum hætti,“
segir Hrafnhildur en Erla er dóttir
sigmars Þrastar óskarssonar,
fyrrverandi landsliðsmarkvarðar.
„Hún fær örugglega góð ráð heima
fyrir.“
Hrafnhildur er eini kvenkyns-
aðalþjálfari deildarinnar og hún er
að slá strákunum við á sínu fyrsta
ári sem þjálfari.
„Ég er í það minnsta búin að slá
þeim við í fyrstu átta leikjunum.
Það væri fínt ef þetta endaði bara
núna,“ segir Hrafnhildur og hlær
dátt. „Það er nóg eftir af mótinu
og ÍBV tók mikla dýfu eftir áramót
í fyrra. Það á mikið eftir að ganga
á áður en yfir lýkur,“ segir Hrafn-
hildur sem getur ekki neitað því að
það sé svakalega gaman að hefja
þjálfaraferilinn í meistaraflokki
svona vel.
„Fyrsti leikurinn var gegn stebba
[stefáni arnarsyni, fyrrverandi
þjálfara Hrafnhildar] og gaman að
vinna hann en ég átti nú kannski
ekki alveg von á þessari flottu byrjun
hjá okkur.“
Hrafnhildur ætlar sér stóra hluti í
þjálfuninni og halda áfram að mennta
sig í fræðunum. Í Vestmannaeyjum
getur hún einbeitt sér algjörlega að
þjálfuninni en segir að ef hún væri í
bænum hefði hún þurft að sinna fullu
starfi samhliða þjálfuninni.
„Það eru mikil forréttindi að fá að
starfa í þessu umhverfi og við þessar
aðstæður. Þetta er snilld eins og
maður segir og mér finnst þetta hrika-
lega gaman. Ég sé ekki eftir því að hafa
komið til Eyja.“
Þjálfarinn var þekktur keppnis-
maður er hún var enn að spila og
tapaði sjaldan. Hvernig hefur henni
gengið að aðlagast lífinu utan vallar-
ins?
„Það skiptir mig engu máli hvort ég
er þjálfari eða áhorfandi. Það er miklu
erfiðara að vera utan við þennan hel-
vítis völl. Ég hef þó smá áhrif sem
þjálfari og það hjálpar.“
Í dag fer Hrafnhildur með sitt lið á
fornar slóðir er ÍBV sækir Val heim.
Hrafnhildur vann allt sem hægt er að
vinna með Val og það oftar en einu
sinni.
„Það verður yndislegt að mæta
þangað. Það er alltaf vel tekið á móti
mér þarna og ég á marga vini í Val.
Það verður lagt til hliðar í 60 mínútur
samt og vonandi yfirgef ég svæðið
með tvo punkta.“
henry@frettabladid.is
Hafði mikla trú á stelpunum
Hrafnhildur Skúladóttir var ákaflega sigursæl sem leikmaður og þjálfaraferill hennar fer
af stað með miklum látum. Hún er eina konan sem er aðalþjálfari í Olís-deild kvenna og
nýtur lífsins í Eyjum. ÍBV situr nú á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir átta leiki.
Á morgun
domino’s-deild karla
Keflavík - Höttur 99-69
Stigahæstir: Valur Orri Valsson 18, Magnús
Már Traustason 16, Ágúst Orrason 14 –
Tobin Carberry 26, Mirko Virijevic 13.
nýliðar Hattar reyndust lítil fyrir-
staða fyrir keflavíkur sem tyllti sér á
topp deildarinnar með fullt hús stig
að loknum fjórum umferðum.
Kr - Njarðvík 105-76
Stigahæstir: Michael Craion 30, Þórir Guð-
mundur Þorbjarnarson 21 – Marquise Sim-
mons 24, Ólafur Helgi Jónsson 14.
Haukur Helgi pálsson spilaði sinn
fyrsta leik fyrir njarðvík en kr átti
kvöldið með hinn sautján ára Þóri
Guðmund í miklu stuði.
efst
Keflavík 8
KR 6
Grindavík 6
Haukar 4
Neðst
Stjarnan 4
Snæfell 4
FSu 0
Höttur 0
08.30 turkish airlines open Golfstöðin
13.20 Everton - Sunderland Sport 2
13.55 Carpi - hellas Verona Sport
15.50 S’ton - bournemouth Sport 2
18.30 Formúla 1 - Mexíkó Sport
19.40 lazio - aC Milan Sport 3
21.20 nFl: dallas - Seattle Sport
Nýjast
Í dag
09.00 turkish airlines open Golfstöðin
12.35 Chelsea - liverpool Sport 2
14.50 Swansea - arsenal Sport 2
14.50 Crystal P. - Man. Utd. Sport 4
14.50 Man. City - norwich Sport 5
14.50 Watford - West ham Sport 6
14.50 newcastle - Stoke Stöð 3
14.50 West brom - leicester Gullstöðin
14.55 Real Madrid - las Palmas Sport
15.55 Formúla 1 - Æfing Sport 3
16.55 Juventus - torinho Sport
18.50 Formúla 1 - tímataka Sport 3
19.25 Getafe - barcelona Sport
19.40 inter - aS Roma Sport 4
13.30 ÍR - Selfoss Austurberg
13.30 Grótta - hK Hertz-höllin
14.00 Valur - ÍbV Vodafone-höllin
15.00 Stjarnan - afturelding TM-höllin
15.00 Ka/Þór - Fjölnir KA heimilið
16.00 Valur - akureyri Vodafone-höllin
17.00 Snæfell - Keflavík Stykkishólmur
olísdeild kvenna
FH - Fram 17-26
Markahæstar: Elín Anna Baldursdóttir
5, Ingibjörg Pálmadóttir 4 – Ragnheiður
Júlíusdóttir 11, Hafdís Iura 4, Elva Arnard. 4.
Fylkir - Haukar 25-27
Markahæstar: Þuríður Guðjónsdóttir 6,
Thea Imani Sturludóttir 6 – Maria Pereira 7,
Ramune Pekarskyte 6.
efst
ÍBV 16
Fram 15
Haukar 15
Grótta 14
Neðst
FH 3
Afturelding 2
ÍR 2
KA/Þór 1
Það er nóg eftir af
mótinu og ÍBV tók
mikla dýfu eftir áramót í
fyrra. Það á mikið eftir að
ganga á áður en yfir lýkur.
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
ÍbV er enn tap-
laust eftir átta
leiki í Olísdeild
kvenna á fyrsta ári
sínu undir stjórn
Hrafnhildar
Skúladóttur.
3 1 . o K t ó b E R 2 0 1 5 l a U G a R d a G U R20 S P o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð
sport