Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 18
Við sem þetta ritum höfum lengi verið vinir. Við höfum ræktað með okkur sérstaka
vináttu sem okkur langar að deila
með öðru fólki. Um árabil hittumst
við hvern þriðjudagsmorgun kl. 10
til að lesa Biblíuna, biðja saman
og eiga gott samtal með það að
markmiði að veita hvor öðrum
aðhald til að lifa ósviknu andlegu
lífi. Það hefur orðið reynsla okkar
að sú einfalda iðkun sem fólgin
er í daglegum Biblíulestri og bæn
ásamt vikulegu trúnaðarsamtali
geri okkur betri en ella. Biblíu-
lestur gefur þekkingu á Guði og
mönnum, bænin veitir frið og
öryggi og trúnaðarsamtalið skilur
mann eftir með þá vissu að það sé
í lagi að vera maður sjálfur.
Við finnum öll að tímarnir eru
að breytast. Kristið fólk í landinu
skynjar örar breytingar í ytri þátt-
um og upplifir jafnvel kirkjuna
sína í vörn. Við sem þetta ritum
óttumst ekki þær breytingar sem
nú ganga yfir. Við sjáum fyrir
okkur kirkju Jesú Krists lifa og
Kirkjan er ávöxtur
vináttu og trúar
Bjarni Karlsson,
MA í siðfræði
og prestur við
sálgæslustofuna
Haf
dafna í fjölmenningarþjóðfélag-
inu. Við trúum því að fjölmenn-
ingin sé hluti af Guðs góðu sköpun
og að hann vilji að kristið fólk
vandi sig við að lifa í heiminum
eins og hann er. Almannarýmið
er og verður vettvangur krist-
innar kirkju. Um leið og þrengt er
að hefðbundnu kirkjustarfi með
margvíslegu móti skapast ný tæki-
færi til að lifa trúna í daglegu lífi og
bera Jesú Kristi vitni. Kristin kirkja
er ekki háð peningum, húsum eða
embættum, hún er fjöldahreyfing
þeirra sem vilja vera vinir og nem-
endur Jesú. Hann fæddist sem
fátækur flóttamaður og var á end-
anum yfirgefinn af öllum. Sigur
hans er sigur yfir ranglæti og ein-
semd og góða fréttin er sú að rétt-
læti og vinátta stendur öllum til
boða í hans nafni.
Kirkja Jesú er lífræn. Það merkir
að hún vex innan frá, líkt og fræ
sem sáð er í jörð eða grein á tré.
Hún er ekki árangur af markaðs-
setningu heldur ávöxtur vináttu
og trúar. Hún er ekki skipulag sem
komið er á heldur atburður, fólk á
ferð með góðar fréttir og veislu í
farangrinum.
Við sem þetta
ritum óttumst
ekki þær breytingar sem nú
ganga yfir. Við sjáum fyrir
okkur kirkju Jesú Krists lifa
og dafna í fjölmenningar-
þjóðfélaginu. Allt frá tímum hellamálverka hefur saga mannkyns verið skráð í myndlist. Stundum
er það saga pólitískra átaka, land-
flutninga, trúarbragða eða ham-
fara, en einnig og ekki síst saga
einstaklingsins, hversdagslífsins
og tilfinninganna. Það sem við
vitum fyrir tilstilli myndlistar er
þess eðlis að engin önnur leið hefði
getað miðlað þeirri þekkingu. Það
er af þessum sökum sem mynd-
listararfur árþúsundanna er orðinn
að einum helsta fjársjóði heims-
byggðarinnar, bæði í menningar-
legum og efnahagslegum skilningi.
Myndlist samtímans er sams-
konar afl og myndlist fortíðar og
gildir þá einu hvort hún er for-
smáð eða upphafin af þeim sem
lifa samtíða henni. Myndlistin lifir
sínu eigin lífi sem rannsakandi
afl, sem þjóðarspegill, sem áhrifa-
valdur og gagnrýnisrödd. Hún er í
eðli sínu óbugandi, ódrepandi en
um leið uppbyggjandi fyrir anda
og eðli þeirra sem eru móttækilegir
og – eins undarlega og það kann
að hljóma – einnig þeirra sem ekki
vilja taka þátt í henni. Myndlistin,
líkt og aðrar listir, mótar umhverfi
okkar allra burt séð frá því hvort
við horfum, hlustum eða neytum
lista. Michelangelo hefur um
Myndlist er þjóðarspegill
Fríða Björk
Ingvarsdóttir
rektor Lista
háskóla Íslands
árhundruð haft áhrif á líf milljóna
manna um heim allan, Frida Kahlo
breytti sjálfsmynd Mexíkó varan-
lega, Louise Bourgeoise mótaði
hugmyndir samtímans um hlut-
verk og vitund kvenna, ekki bara í
listum heldur heiminum yfirleitt.
Hér á landi á myndlist í hefð-
bundnum skilningi ekki langa hefð
að baki. En þótt arfur okkar sé rýr
miðað við marga, værum við enn
fátækari ef ekki nyti þeirra sem
mótuðu þjóðarvitund 20. aldar í
gegnum myndlist, svo sem Nínu
Tryggvadóttur, Þorvaldar Skúla-
sonar, Hildar Hákonardóttur og
Hreins Friðfinnssonar. Íslensk
myndlist 21. aldar er á fleygiferð
í hringiðu samtímalista heimsins
sem knýjandi afl ef horft er til Katr-
ínar Sigurðardóttur, Ólafs Elíasson-
ar og Ragnars Kjartanssonar – svo
ekki séu taldir allir þeir íslensku
myndlistarmenn sem enn eru
undir 35 ára aldri en hafa þegar lyft
grettistaki í hörðum heimi mynd-
listar á alþjóðavísu.
Nýtur ekki sannmælis
Í samhengi þjóðararfleifðar skul-
um við þó ekki gleyma að mynd-
list spyr ekki um þjóðerni. Hún
spyr ekki um aldur eða kyn, kyn-
hneigð, trúarbrögð eða pólitík,
þótt hún fjalli vissulega um þessi
mál þar sem ekkert er henni óvið-
komandi. Myndlist þverar mæri
tungumála, menningarheima og
jafnvel ólíkra tíma. Í þeirri víðu
skírskotun, í þessum umburðar-
lynda, upplýsandi og oft á tíðum
krefjandi miðli, er svigrúm fyrir
allar þær hugmyndafræðilegu
vangaveltur sem ögra viðteknum
gildum í fagurfræði, vísindum,
félagslegum þáttum og sjálfsmynd
samfélagsins. Í því felst gildi henn-
ar fyrir okkur öll og okkar sam-
eiginlegu arfleifð, ekki bara sem
þjóðar heldur sem þátttakenda í
stærra samhengi.
Þótt íslensk myndlist standi
styrkum stoðum í hugmyndafræði-
legum skilningi nýtur hún ekki
sannmælis hér á landi sem það
hreyfiafl sem hún sannarlega er.
Myndlistarsöfn og sýningarstaðir
búa við fjársvelti, myndlistarmenn
fá ekki laun fyrir vinnu sína á opin-
berum söfnum, en búa árvisst við
það ámæli sem fylgir neikvæðri
umræðu um listamannalaun.
Við þurfum að minna okkur á að
myndlistarmenn eru hámenntaðir
sérfræðingar sem renna styrkum
stoðum undir sameiginleg auð-
æfi okkar allra með rannsóknum
sínum og listsköpun. Hugsum til
þeirra á degi myndlistar, njótum
verka þeirra og sýnum samstöðu
um framtíðaruppbyggingu á þessu
merkilega fræðasviði.
Þótt íslensk myndlist standi
styrkum stoðum í hug-
myndafræðilegum skilningi
nýtur hún ekki sannmælis
hér á landi sem það hreyfiafl
sem hún sannarlega er.Gregory Aikins
prestur og doktor
í leiðtogafræðum
B 180, árgerð 2013, ekinn 38 þús. km,
sjálfskiptur, dísil, 109 hö.
Bakkmyndavél, árekstrarvari, krómpakki, hiti í framsætum,
16" álfelgur, inniljósapakki, sætisþægindapakki o.fl.
Verð 4.490.000 kr.
Afb./mán. 41.900 kr.*
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is. Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz
Mercedes-Benz B–Class nýtur mikilla vinsælda, enda framúrskarandi
kostur. Þeir sem kaupa notaðan Mercedes-Benz í eigu Öskju í nóvember,
að verðmæti 1,5 milljónir eða meira, fá flug fyrir tvo til Þýskalands með
WOW Air í kaupbæti og vetrardekk að auki. Allir notaðir Mercedes-Benz
hjá okkur hafa fengið þjónustuskoðun fyrir veturinn.
*Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,73–10,79%
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð