Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 74
Pekanhnetusúkkulaðikaka
Brownie-blanda:
100 g ósaltað smjör.
230 g dökkt súkkulaði, saxað
170 g sykur
100 g ljós púðursykur
3 stór egg
1 ½ tsk. vanilluextrakt
¾ tsk. salt
100 g hveiti
3 msk. ósætt kakó
Bræðið smjör og súkkulaði yfir vatns-
baði. Hrærið saman sykri, eggjum,
vanillu og salti í annarri skál. Bland-
ið báðum blöndum saman, bætið
við hveiti og kakói og blandið varlega
saman.
Pekanblanda
200 g pekanhnetur gróft saxaðar
2 msk. ósaltað smjör
100 g ljós púðursykur
4 msk. dökkt síróp
½ tsk. vanilluextrakt
Örlítið salt
Hitið ofninn í 175 gráður. Hellið
brownie-blöndunni í smurt, eld-
fast mót. Best er að nota kringl-
ótt mót með lausum botni.
Bakið í um 20 mínútur.
Á meðan er pekanblandan
undirbúin með því að hræra
öll hráefni í skál. Takið kökuna
úr ofninum, dreifið pekanblönd-
unni yfir. Bakið áfram í um 15 mín-
útur. Látið kólna áður en kakan er
tekin úr mótinu.
Stökk karamella með hnetum
250 g sykur
100 g vatn
110 g ósaltað smjör
70 g síróp
½ tsk. matarsódi
340 g ristaðar salthnetur
Sjávarsalt
Blandið sykri, vatni, smjöri og sírópi
saman í stórum potti og hitið að suðu.
Látið sjóða við miðlungshita og
hrærið í annað veifið þar til kara-
mellan er orðin ljósbrún og hit-
inn er kominn í 150 gráður.
Þetta tekur um 10 mínútur.
Takið af hitanum og hrær-
ið matarsódanum varlega
saman við. Blandið nú hnet-
unum saman við og skafið
blönduna strax á bökunarpapp-
ír. Dreifið úr blöndunni og strá-
ið salti yfir. Látið kólna í hálftíma og
brjótið karamelluna síðan í stóra bita.
Seigir haframjölsbitar
220 g ósaltað smjör
150 g hunang
100 g sykur
1 kg af haframjöli
80 g sólblómafræ
225 g ósaltaðar ristaðar möndlur
225 g þurrkuð trönuber
1 msk. hveiti
1 klípa salt
Hitið ofninn í 160 gráður. Setjið
bökunar pappír í ferkantað eldfast mót.
Setjið smjör, hunang og sykur í stór-
an pott og hitið á miðlungshita þar til
smjörið er bráðið. Takið af hitanum.
Blandið haframjöli, sólblómafræjum,
möndlum, trönuberjum, hveiti og salti
í skál. Blandið nú þurrefnunum saman
við smjörblönduna. Setjið í mótið og
þrýstið varlega ofan á blönduna. Bakið
í um 30-35 mínútur.
Látið kólna alveg. Færið kökuna á
skurðarbretti og skerið í þægilega bita.
Nokkrar góðar á kökubasarinn
Kökubasar er klassísk fjáröflunarleið. Þá sameinast hópar um að hver og einn innan hans komi með eina eða fleiri kökur til að selja.
Úrvalið á slíkum basörum er ávallt mikið en hér má finna þrjár hugmyndir sem auðvelt er að gera.
Seigir haframjölsbitar.
Pecan-hnetusúkkulaðikaka. Stökk karamella með hnetum.
Kökugerð HP býður upp á frábærar vörur í fjár-öf lun,” segir Andrea Ýr
Grímsdóttir, sölustjóri Köku-
gerðar HP á Selfossi, en fyr-
irtækið framleiðir f latkökur,
kleinur, kanilsnúða, pitsur og
einnig hið vinsæla HP-rúgbrauð,
bæði fyrir verslanir, mötuneyti
og hvers kyns fjáraflanir félaga-
samtaka og hópa.
Gott í frystinn
Andrea segir alltaf jafn vinsælt
að selja flatkökur í fjáröflun.
„Við bjóðum til að mynda
okkar einu sönnu HP flatkök-
ur, kanilsnúða, kleinur og einn-
ig pitsur í fjáröflun. Þetta er eitt-
hvað sem fólki finnst gott að
eiga í frystinum og grípa til, til
dæmis í nesti fyrir krakkana í
skólann. Bæði er hægt að selja
einstakar vörutegundir eða búa
til samsetta pakka, til dæmis
með flatkökum og kanilsnúð-
um og kleinum. Það er einn-
ig vinsælt að selja þrjár pitsur í
pakka,“ útskýrir Andrea.
Allt nýbakað
„Allar okkar vörur eru nýjar og
ferskar við afhendingu og við
leggjum okkur fram um að veita
persónulega og mjög góða þjón-
ustu. Það stendur öllum til boða
að panta hjá okkur hvar sem fólk
er statt á landinu. Við keyrum
pantanir heim að dyrum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og á flutn-
ingsaðila fyrir landsbyggðina.“
Úrvalið á heimasíðunni.
„Úrvalið má skoða á heimasíð-
unni flatkaka.is og leggja má inn
pantanir í gegnum netfangið
hpflatkokur@simnet.is. Gott er
að panta með tveggja daga fyr-
irvara. Ef fólk er með einhverj-
ar spurningar ætti það ekki að
hika við að senda okkur fyrir-
spurn á hpflatkokur@simnet.is
og við svörum um hæl.“
Flatkökur vinsæl fjáröflun
Kökugerð HP býður dýrindis flatkökur, kleinur, kanilsnúða og pitsur í fjáraflanir fyrir hvers kyns hópa og félagasamtök. Allt er
afgreitt nýbakað og vörurnar keyrðar upp að dyrum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þá sendir fyrirtækið vörur um allt land.
„Allar okkar vörur eru nýjar og ferskar við
afhendingu og við leggjum okkur fram
um að bjóða persónulega og mjög góða
þjónustu,“ segir Andrea Ýr Grímsdóttir,
sölustjóri Kökugerðar HP á Selfossi.
Vörur Kökugerðar HP á Selfossi eru frábærar til fjáröflunar. Bæði er hægt að selja einstakar vörutegundir eða búa til samsetta pakka.
Nánari upplýsingar á www.flatkaka.is. MyndiR/KöKuGERð HP
Kynning − auglýsing 31. oKtóBer 2015 LAUGArDAGUr4 Fjáröflun