Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 112
K
O
M
D
U
O
G
FA
G
N
A
Ð
U
M
EÐ
O
K
K
U
R
Á
U
M
H
ELG
IN
A
!
K
O
M
D
U
O
G
F
A
G
N
A
Ð
U
M
EÐ
O
K
K
U
R
Á
U
M
H
EL
G
IN
A
!
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Árið 1945 gaf Jóhannes Birkiland,
þekktur blaðamaður og skáld í
Reykjavík, út bókina, „Harmsaga
ævi minnar. Hvers vegna ég varð
auðnuleysingi.“ Birkiland uppskar
einungis háð og spott fyrir bók sína.
Styrjöldinni var nýlokið og fólk
hafði engan áhuga á eymd Birki-
lands. Það var verk að vinna.
Með tímanum kom í ljós að
Birkiland var á undan sinni samtíð,
hann hefði blómstrað í harmsögu-
væðingu samtímans. Mikil velsæld
hefur aukið vitund þjóðarinnar um
eigin harm. Allir geta fundið vett-
vang fyrir eigin vanlíðan á netinu. Í
stríðslok voru menn önnum kafnir
við að finna nýjan tilgang með lífinu.
Núna er harmurinn sjálfur orðinn
að tilgangi lífsins.
Helgarfjölmiðlarnir hafa lengi birt
viðtöl, sem systir mín heitin kallaði
alltaf: Aumingi vikunnar. Viðmæl-
andi blaðsins rekur harmsögu sína,
einelti, misnotkun, ofbeldi, hælsæri
og annað sem stendur honum fyrir
þrifum.
Harmsögunni vex enn fiskur
um hrygg. Æ fleiri stíga fram með
raunasögur sínar sem þjóðin les
með áfergju. Fólki er sagt af viður-
kenndum sérfræðingum í harmi
og auðnuleysi að það sé hollt fyrir
sálartetrið að afhjúpa sig í beinni
útsendingu fyrir sem flestum.
Ég efast reyndar stórlega um gagn-
semi þess að opna sálina upp á gátt
fyrir alþjóð. Það sannreyndu margir
alkóhólistar sem hlupu í fjölmiðla
til að segja sögu sína. Þessi opna
tjáning festir menn í harminum og
hann fær eigið líf á neti eða í bók.
En það er huggun að góður harmur
selur bæði bækur og blöð. Öllum
Birkilöndum samtímans óska ég
betra gengis en fyrirmyndinni,
Jóhannesi Birkiland lífskúnstner.
Þeir geta reyndar tekið undir með
Kristjáni fjallaskáldi þegar hann
segir: ég er sæll og bý við harm.
Harmsaga
ævi minnar
23 ÁRA
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka