Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 10
Hluthafafundur N1 hf.
Stjórn N1 hf. boðar til hluthafafundar föstudaginn 20. nóvember 2015
klukkan 15:30 á aðalskrifstofu félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.
Dagskrá fundarins:
1. Tillaga um 25,5% lækkun hlutafjár.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Tillaga stjórnar um hlutafjárlækkun í félaginu er svohljóðandi:
„Hluthafafundur N1 hf. haldinn föstudaginn 20. nóvember 2015 samþykkir að færa niður hlutafé
félagsins um kr. 120.000.000 að nafnverði, og að auki yfirverðsreikning hlutafjár um kr. 1.423.851.265,
eða samtals um kr. 1.543.851.265, og verði fjárhæðin greidd út til hluthafa félagsins hlutfallslega í
samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags. 18. desember 2015, við fyrsta mögulega tímamark
þar eftir að lögboðnar forsendur fyrir útgreiðslunni hafa verið uppfylltar.“
Greinargerð stjórnar:
N1 hf. gekk í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu um mitt ár 2011. Lánardrottnar félagsins
eignuðust allt hlutafé þess í kjölfarið. Grunnstef í þeirri vinnu sem unnin var áður en lánardrottnarnir
tóku félagið yfir var að skila inná markaðinn fjárhagslega sterku félagi sem væri vel í stakk búið til að
mæta samkeppni á eldsneytismarkaði. Nú hafa allir hlutir félagsins verið skráðir á opnum markaði eins
og að var stefnt.
Hluti af fjárhagsstefnu félagsins sem stjórn og hluthafar hafa samþykkt er að halda eigin fé þess
í kringum hlutfallið 40%. Til að ná þessu marki var hlutafé félagsins lækkað samkvæmt ákvörðun
hluthafafundar í október árið 2014 og aftur á aðalfundi 2015. Nú leggur stjórn N1 enn og aftur til
með hliðsjón af niðurstöðu árshlutareiknings fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015 að hlutafé félagsins
verði lækkað um rúma 1,5 milljarða króna og fjárhæðin verði greidd út til hluthafa þess í samræmi við
hlutafjáreign þeirra í félaginu. Með þessu er stefnt að því að hlutfall eigin fjár verði rúm 40% í lok ársins.
Ef tillagan verður samþykkt, þá hefur viðskiptabanki félagsins, Íslandsbanki hf., samþykkt fyrir sitt leyti
ráðstöfunina, vegna lána sinna til þess.
Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins
www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum
félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur
fundargögn verða afhent frá klukkan 15:00 þann dag sem hluthafafundurinn verður haldinn.
Stjórn N1 hf.
Kópavogur, 31. október 2015
Norðurál er eitt dótturfélaga Century Aluminum. fréttAblAðið/erNir
viðskipti Century Aluminum,
móðurfélag Norðuráls sem rekur
álverið á Grundartanga og hefur
áform um álver í Helguvík, tapaði
2,7 milljörðum króna á tímabilinu
frá byrjun júlí og út september. Upp-
hæðin samsvarar tæplega 80 millj-
ónum króna á dag.
Félagið á í miklum rekstrarerfið-
leikum vegna fallandi álverðs. Það
hefur þegar tilkynnt um varanlega
lokun eins af fjórum álverum sínum
í Bandaríkjunum og dregið úr fram-
leiðslu annars um 60 prósent. Þá er
von á að einu álveri til viðbótar verði
lokað vestanhafs um áramótin takist
ekki að semja um orku á nógu hag-
stæðu verði. Að hluta til skýrist tapið
af afskriftum vegna lokananna.
Náist ekki samningar um orku
verður Century Aluminum ein-
ungis með fulla starfsemi í þremur
álverum.
Hlutabréfaverð í fyrirtækinu
hríðféll eftir að uppgjörið var birt
í gærmorgun og hafði lækkað um
tæplega tuttugu prósent síðdegis í
gær. Síðasta árið hefur hlutabréfa-
verð í Century Aluminum lækkað
um nærri 90 prósent.
Samkvæmt nýlegri úttekt grein-
ingarsíðunnar Seeking Alpha á
félaginu eru líkur á að álframleið-
andinn verði gjaldþrota verði ekkert
að gert. – ih
Century Aluminum tapaði 80
milljónum á dag á síðasta ársfjórðungi
Náist ekki samningar um
orku verður Century Alum-
inum einungis með fulla
starfsemi í þremur álverum.
sýrland Tæplega fimmtíu banda-
rískir hermenn úr sérsveit Banda-
ríkjahers verða sendir til Sýrlands
á næstunni. Aðgerðin markar
tímamót vegna þess að Banda-
ríkjamenn hafa hingað til ekki haft
fasta viðveru hermanna á jörðu
niðri í Sýrlandi heldur einungis
stuðst við loftárásir í baráttunni
gegn Íslamska ríkinu (ISIS). Banda-
ríska varnarmálaráðuneytið,
Pentagon, tilkynnti um aðgerðina
í gær.
Hlutverk sérsveitarmannanna
verður að mestu að þjálfa og
aðstoða sýrlenska uppreisnar-
menn í norðurhluta landsins í
baráttunni gegn ISIS auk þess að
veita þeim ráðgjöf.
Áður hafa Bandaríkjamenn sent
sérsveitarmenn til landsins til að
vinna að sérstökum hernaðarað-
gerðum gegn Íslamska ríkinu en
ekki hafa þeir áður haft fasta við-
veru á jörðu niðri. Bandaríkja-
her og aðrir aðilar bandalagsins
gegn ISIS hafa hins vegar staðið í
ströngu við loftárásir í rúmt ár.
Josh Earnest, talsmaður forseta-
embættis Bandaríkjanna, sagði
í gær að Barack Obama Banda-
ríkjaforseti vildi styðja af auknum
mætti við sýrlenska uppreisnar-
menn. „Forsetinn er reiðubúinn
að efla þau verkefni sem vel hafa
gengið. Þessi aðgerð gengur út á að
herða á stefnu sem við höfum rætt
í rúmt ár,“ sagði Earnest. Hann
þvertók fyrir það að aðgerðin
markaði ekki stefnubreytingu.
Tilkynningin kemur í kjölfar
ákvörðunar Bandaríkjahers um að
hætta að þjálfa uppreisnarmenn í
Sýrlandi með beinum hætti heldur
verða leiðtogum uppreisnar-
manna úti um vopn í staðinn.
Þegar Earnest var spurður hvort
sérsveitarmennirnir sem sendir
verða væru ekki of fáir svaraði
hann neitandi. „Sérsveitarmenn-
irnir okkar eru mikilvægir og geta
margfaldað gildi uppreisnarmann-
anna. Forsetinn býst við því að
þeir muni efla aðgerðir okkar og
styðja vel við staðbundna upp-
reisnarmenn í Sýrlandi í stríðinu
gegn ISIS. Þetta hefur verið einn
mikilvægasti þáttur aðferðafræði
okkar allt frá byrjun, að byggja
undir staðbundin öfl,“ sagði Ear-
nest.
Ásamt því að senda menn til
Sýrlands munu Bandaríkjamenn
einnig auka viðveru sína í Tyrk-
landi með því að senda þangað
fleiri herþotur. Einnig er horft til
þess að senda sambærilegan hóp
til Íraks á næstunni í sama tilgangi.
thorgnyr@frettabladid.is
Bandarískir
hermenn sendir
til Sýrlands
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær
að senda skyldi tæplega fimmtíu sérsveitarmenn til
norðurhluta Sýrlands. Sérsveitarmennirnir eiga að
styðja við sýrlenska uppreisnarmenn í baráttunni
gegn Íslamska ríkinu. Hermennirnir eru þeir fyrstu
sem Bandaríkin senda opinberlega til Sýrlands.
bandarískir hermenn sem þessir munu brátt hafa fasta viðveru í Sýrlandi í fyrsta
Tilkynningin kemur í
kjölfar ákvörðunar Banda-
ríkjahers um að hætta að
þjálfa uppreisnarmenn í
Sýrlandi með beinum hætti
heldur verða leiðtogum
uppreisnarmanna úti um
vopn í staðinn.
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 5 l a U G a r d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð