Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Gunnar
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Ég nenni yfirleitt ekki að tjá mig um tilvist guðs – ekki frekar en um jólasveininn eða samsæris-kenningar um hver stóð í alvörunni á bak við
árásirnar á tvíburaturnana í New York. En mér er
ekki sjálfrátt. Ég er með hita, sýkingu í ennisholum
og er heyrnarlaus á öðru eyra. Þráðurinn er því jafn
stuttur og væri ég gölluð raketta á gamlárskvöldi sem
var keypt til að dreifa skipulega úr sér á næturhimn-
inum en lyftist svo ekki einu sinni upp af bílaplaninu
áður en hún sprakk með pirrandi hvelli og ófáguðum
blossa. Sorrí.
En svo ég haldi nú áfram að barma mér yfir létt-
vægri kvefpest minni: Ég á tveggja ára dóttur sem ég
reyni af þráhyggju að skýla fyrir allri eymd og volæði
sem fyrirfinnst í veröldinni. Til að hlífa henni við
kvalræði mínu set ég í túrbó-gír þegar hún er nálægt
og hendist í kringum hana eins og trúður á spítti.
Ég hélt að dóttirin væri að leika sér inni í her-
berginu sínu. Ég sat í keng á sófanum, samfallin af
sjálfsvorkunn, og sá hana ekki strax þegar hún kom
inn í stofuna. Ég kipptist við þegar ég heyrði hana tví-
stíga í dyragættinni og mundaði hugræna amfetamín-
sprautuna. En það var um seinan. Stelpan var búin
að koma auga á ræfildóminn. Tálmyndin af skýrum,
hnökralausum heimi sem ég hafði keppst við að mála
síðan hún fæddist skolaðist til á augabragði. Viðbrögð
dótturinnar við köldum raunveruleikanum komu
mér hins vegar í opna skjöldu.
Óræð á svipinn gekk hún að sófanum og prílaði
upp í hann. Fumlaust vafði hún stuttum hand-
leggjunum um hálsinn á mér og faðmaði mig að sér.
Þvínæst teygði hún sig í glanstímarit sem lá ólesið
á sófaborðinu. Venjulega reyndi hún að rífa af mér
allt lesefni. En að þessu sinni rétti hún mér blaðið og
sagði: „Mamma lesa.“
Ég furðaði mig enn á því flókna, breyska en kær-
leiksríka náttúruundri sem mannskepnan er þegar
þolinmæði mín sprakk með þeim hvelli sem dreifir
sér nú um síðu þessa blaðs. Tilefnið var aðsend
grein sem birtist í Fréttablaðinu fyrr í vikunni eftir
mætan mann, Þóri Stephensen, fyrrverandi dóm-
kirkjuprest og staðarhaldara í Viðey. „Ég er orðinn
hundleiður á sífelldum og algerlega órökstuddum
yfirlýsingum í Fréttablaðinu og fleiri miðlum, að
það sé enginn Guð,“ ritaði Þórir. „[A]llt virðist þetta
gert til þess að eyðileggja hin fornu andlegu gildi,
sem hafa haldið uppi menningu og siðgæði þjóðar
okkar um aldir.“
Pizza með skinku, osti og ananas
Fyrst Þórir velur orð sín eins og önugur siðapostuli
sem gleymdi umburðarlyndinu heima – kannski var
hann með kvef – ætla ég að leyfa mér að gera slíkt
hið sama: Ég er orðin hundleið á sífelldum og alger-
lega órökstuddum yfirlýsingum sumra geistlegra
manna um að siðferðiskennd, kærleikurinn og andleg
þrekvirki mannkynsins séu þeirra eign. Ég er orðin
hundleið á að sitja þegjandi undir fullyrðingum þess
efnis að við sem aðhyllumst ekki þá lífssýn sem þeir
kusu sér séum óheflaðir, kærleiksheftir bavíanar sem
teljast ekki til uppréttra manna.
Fyrir dóttur minni er ljós heimsins flöktandi
bláminn af iPadinum. Tilgang lífsins er að finna í
næsta Kinder-eggi. Heilög þrenning er pizza með
skinku, osti og ananas. Engu að síður leyfi ég mér
að fullyrða að hún búi yfir meiri siðferðiskennd og
kærleik í sínum tveggja ára litla fingri en margur sem
kennir sig við Krist.
Það besta
Til var siðað fólk áður en kristni var fundin upp. Siðað
fólk mun vera til löngu eftir að kristni líður undir lok.
Það er gott og blessað að trúa á guð. En að eigna
þessari ósönnuðu veru allt það besta sem í okkur
fólkinu býr er er algjörlega óverðskulduð vantrú á
mannkyninu.
Óheflaðir, kærleiksheftir bavíanar
RÚV skýrslan er tímabært innlegg í umfjöllun um framtíð fjölmiðla á Íslandi. Farið er yfir stöðuna eins og hún blasir við nefndarfólki og reynt að rýna í ástæður fyrir bágri fjárhags-stöðu RÚV.
Viðbrögð úr Efstaleiti hafa verið fyrirsjáanleg. Svo
virðist sem samanburður á rekstri RÚV og fréttastofu
365 hafi farið sérstaklega fyrir brjóstið á stjórn og starfs-
fólki. Útvarpsstjórinn gekk meira að segja svo langt
að draga í efa samanburðartölur úr rekstri 365 miðla,
en komst þó að þeirri niðurstöðu að í raun skipti litlu
hvort tölurnar væru raunsannar eða ekki því „margoft
hafi komið fram að slíkur samanburður sé illmögulegur
vegna ólíks eðlis almannaþjónustumiðla og einka-
miðla“. Ekki var tekið fram hvar þetta hefur komið fram
eða hver hefur fært óyggjandi sönnur á það að saman-
burður sem þessi sé út úr kú.
Niðurstaða skýrslunnar er sú að RÚV glímir við
rekstrarvanda sem ekki sér fyrir endann á. Félagið
fékk á síðasta ári tæplega 3,4 milljarða í forgjöf í
formi útvarpsgjalds, og viðbótartekjur upp á ríflega 2
milljarða, einkum vegna auglýsingasölu þar sem RÚV
keppir við einkamiðla, einn ríkismiðla á Norður-
löndum.
Lögformleg staða RÚV tryggir félaginu því 5,4
milljarða árlegt forskot á markaði. Samt er reksturinn
þungur. Félagið hefur tapað ríflega 800 milljónum frá
2007. Samt starfa enn helmingi fleiri fréttamenn hjá
RÚV en 365 miðlum. Fjöldi stöðugilda í samanburðar-
hæfum rekstri er ríflega tvöfaldur. RÚV notar næstum
þrefalt fleiri fermetra undir starfsemina, þrátt fyrir að
hjá 365 miðlum starfi fleiri þegar allt er talið. Kannski
er samanburður ekki sanngjarn, en varla skýrir
„almannaþjónustuhlutverkið“ allan muninn.
Niðurstaða skýrsluhöfunda er að starfsemi RÚV beri
sig ekki óbreytt. Félagið starfar með takmarkaðri ábyrgð
að nafninu til en ríkið lagði félaginu til 2 milljarða auka-
lega á árunum 2007 til 2009. Aftur þarf aukaframlag í ár.
Þegar niðurskurðarplön stjórnenda RÚV eru skoðuð er
vart raunhæft að þetta breytist í náinni framtíð. Lagt er
til að útvarpsgjald hækki, að ríkið taki yfir skuldabréf
við LSR og að kláruð verði sala á lóðarrétti í Efstaleiti.
Ekkert af þessu er í hendi, og í engu felst framtíðarlausn.
Salan á lóðarréttinum telst til einskiptishagnaðar sem í
besta falli veitir gálgafrest til að taka til í undirliggjandi
rekstri.
Stundum er sagt að stærsti gallinn á ríkisrekstri sé sá
að hluthafaaðhald vanti. Með öðrum orðum: Stjórnvöld
sem fara með almannafé eru ekki líkleg til að sjá um eign
sína með sömu ástríðu og eigandi sem á allt sitt undir.
Fimmtán ára óuppsegjanlegur samningur um úrelta
dreifiveitu rennir stoðum undir þessar kenningar.
RÚV-nefndin svokallaða var skipuð af réttkjörnum
stjórnvöldum til að rýna í rekstur RÚV. Að endingu fer sú
vinna fram í umboði eigenda RÚV – fólksins í landinu.
Viðbrögð RÚV-liða benda til þess að forsvarsmenn
RÚV skorti auðmýkt gagnvart hluthöfum sínum. Það að
benda á augljósa galla í starfseminni kallast ekki pólitík,
heldur aðhald og á að heita sjálfsagt mál.
Afneitun RÚV
Það að benda á
augljósa galla í
starfseminni
kallast ekki
pólitík, heldur
aðhald og á að
heita sjálfsagt
mál.
50-80%
OUTLET
Í HOLTAGÖRÐUM
OPIÐ: 12-18 ALLA DAGA
AFSLÁTTUR
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN