Fréttablaðið - 31.10.2015, Blaðsíða 39
Papco hefur í þrjátíu ár fram-leitt íslenskan hreinlætis-pappír fyrir íslensk heim-
ili og fyrirtæki. Á þessum þremur
áratugum hefur fyrirtækið lagt
mikið upp úr vöruþróun og hefur
að leiðarljósi að ná fram bestu
gæðum á hagkvæman og um-
hverfisvænan hátt,“ segir Guð-
björg Jónsdóttir, sölufulltrúi á
styrktarsviði Papco, en hjá fyrir-
tækinu öllu starfa fjörutíu starfs-
menn.
Fjölbreytt fjáröflun
Það er hefð að íþróttafélög, kórar
og aðrir hópar selji klósettpappír
til fjáröflunar og þar kemur Papco
sterkt inn. „Við höfum reynt að
hjálpa hópum að ná markmiðum
sínum,“ segir Guðbjörg en Papco
býður upp á margt annað en
pappír fyrir slíkar fjáraflanir. „Við
erum til dæmis með lakkrís, harð-
fisk, jólapappír, kaffi, sælgæti og
margt fleira. Þannig bjóðum við
upp á heildarlausn til fjáröflunar
enda finnst fólki oft þægilegt að fá
þetta allt á einum stað,“ segir hún.
Jákvæð vöruþróun
Fjöldinn allur af nýjum vörum
hefur bæst við vöruúrval Papco
á liðnum árum. „Margar hverj-
ar hafa verið þróaðar í samvinnu
við viðskiptavini fyrirtækisins
og höfum við lagt á það mikla
áherslu að vinna með þeim til að
þróa bestu vörur á markaðinn,“
upplýsir Guðbjörg.
„Annars bjóðum við upp á
fimm mismunandi gerðir af sal-
ernispappír og því ættu allir
að finna pappír við sitt hæfi.
Lúxus pappírinn er vinsælast-
ur en einnig er De-Luxe-pappír-
inn að verða mjög vinsæll. Hann
er tveggja laga sléttur en extra
mikið er á hverri rúllu. Einnig
bjóðum við upp á þrjár tegundir
af eldhúsrúllum og eru hálfskipt-
ar orðnar mjög vinsælar.“
Papco hefur áratuga reynslu af
fjáröflun. „Við getum því aðstoð-
að fólk við að gera fjáröflunina
sem besta til að hámarka tekju-
möguleikana.“
Hægt er að nálgast styrktar-
bækling Papco á www.papco.
is. Einnig er hægt að koma við
á Stórhöfða 42 eða hafa sam-
band við sölufulltrúa í síma 587-
7788. Styrktarvörurnar eru einnig
seldar í útibúi Papco á Akureyri,
Austur síðu 2, s. 462- 6706, og á
Egils stöðum s. 660-6718.
Á þessum
þremur
áratugum hefur
fyrirtækið lagt mikið
upp úr vöruþróun og
hefur að leiðarljósi að ná
fram bestu gæðum á
hagkvæman og
umhverfisvænan hátt.
Papco býður fjölbreytt vöruúrval
Papco hefur áratuga reynslu af fjáröflunum og býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt vöruúrval. Hjá Papco geta íþróttafélög, kórar og
aðrir hópar fengið allt frá salernis- og eldhúsrúllum til sniðugra heimilispakka, harðfisks, sælgætis og jólapappírs.
Jólapappírinn er afar vinsæll fyrir jólin. Fjöldinn allur af nýjum vörum hefur bæst við vöruúrval Papco á liðnum árum, að sögn Guðbjargar Jónsdóttur hjá Papco. MynD/Anton
Styrktarsala
er góð leið til fjáröflunar!
Hafðu samband í síma 587 7788 og fáðu sendan vörulista
FJáröFlun
lAuGArDAGur 31. október 2015 Kynningarblað Papco, olís og kökugerð HP