Fréttablaðið - 31.10.2015, Page 82

Fréttablaðið - 31.10.2015, Page 82
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, Björn Jónasson Stóragerði 29, 108 Reykjavík, jarðfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Varahlutaversluninni Kistufelli, lést á Landspítalanum þann 24. október síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju þann 4. nóvember kl. 15.00. Jóhanna Kristín Björnsdóttir Þórir Ingþórsson Þórunn Jóhanna Þórisdóttir Elísabet Hildur Þórisdóttir Ástkær eiginkona mín, dóttir og systir, Rebecca Louise Engilbertsson lést á Valley Care Medical Center í Pleasanton, California, föstudaginn 23 . október. Guðmundur Már Engilbertsson Bill og Connie Cosby Jane Cosby Cooper Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Magnúsar Aspelund Sérstakar þakkir fær starfsfólk krabbameinsdeildar Landspítalans og Karitas hjúkrunarþjónustu. Daðína Rannveig Friðriksdóttir Friðrik Aspelund Björg Gunnarsdóttir Helga Aspelund Guðmundur G. Guðmundsson Harald Aspelund Ásthildur Björg Jónsdóttir Kristinn Arnar Aspelund Karólína Stefánsdóttir Elín Arna Aspelund Jóhannes Þorleiksson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Halldór Halldórsson bifvélavirki frá Ísafirði, lést þriðjudaginn 27. október á hjúkrunarheimilinu Eir. Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. nóvember kl. 11. Ingibjörg Halldórsdóttir Hannes Guðmundsson Sigrún Halldórsdóttir Björn Jóhannesson Marta K. Halldórsdóttir Valur Þór Norðdahl Einar Halldórsson Lanilyn Galo Secuya afa- og langafabörn og systur hins látna. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur og ömmu, Lilju Aðalsteinsdóttur hjúkrunarfræðings frá Neskaupstað, sem jarðsett var frá Dómkirkjunni 19. október. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Karitas fyrir frábæra umönnun, vinsemd og hlýju. Einar Þórarinsson Þórarinn Einarsson Katrín Einarsdóttir Jón Egill Sveinsson Karólína Einarsdóttir Ásgeir Ástvaldsson Þorvaldur Einarsson Erla Sif Ástþórsdóttir Auður Bjarnadóttir barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og tengdadóttir, Sjöfn Magnúsdóttir Skógarbraut 1103, Ásbrú, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 17. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 3. nóvember kl. 13.00. Óskar Gunnarsson Ellen Dana Guðmundur Jóna Petra Kristinn Páll Magnús Þór Benta Magnea Hólmfríður Ósk Elvar Elís Barri barnabörn, systkini og Gunnar Haraldsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda MEÐ VIRÐINGU OG KÆRLEIK Í 66 ÁR Útfarar- og lögfræðiþjónusta www.útför.is Guðmundur Árni svarar síma í útlönd- um þegar hann er beðinn um afmælis- spjall á tímamótasíðuna í tilefni sex- tugsafmælisins sem er í dag. „Oooh, ég er að reyna að gleyma þessu!“ eru fyrstu viðbrögðin. En svo lætur hann tilleiðast. Við byrjum á að ræða myndamálin. Þar sem hann er staddur í Varsjá hef ég ekki tök á að senda til hans ljósmyndara. „Þú hlýtur að eiga einhverja mynd frá því ég var ungur og slank að leika með FH í handboltanum í gamla daga,“ segir hann léttur. Hann kveðst vera rótgróinn Gaflari og FH-ingur og hafa notið þess að vera stjórnarformaður í fótboltanum þar þegar strákarnir urðu fyrst Íslands- meistarar 2004. „Sú velgengni ætlaði engan endi að taka.“ Guðmundur Árni gekk ungur til liðs við Alþýðuflokk- inn. Hann var bæjarstjóri í Hafnarfirði á árunum 1986 til 1993, þá fór hann á þing og sat þar til 2005. Kom líka að stjórn tveggja ráðuneyta snemma á þingmannsferlinum, félagsmála og heilbrigðis. „Pólitíkin er snar þáttur í lífi margra og hjá mér var hún gríðarlega skemmtilegur tími,“ segir hann og bætir við: „Pólitíkin er lífið og unga fólkið þarf að vita það.“ En var hann ekki  í  útvarpinu um tíma? „Jú, við séra Önundur Björnsson vorum með mannlega og huggulega útvarpsþætti. Svo er ég gamall hundur í blaðamannastétt því ég var rann- sóknarblaðamaður á Helgarpóstinum fyrri, með Árna Þórarinsson og Björn Vigni Sigurpálsson við stjórnvölinn. Það voru frábærir tímar, gaman að reyna fá eitthvað upp úr pólitíkusum sem vildu engu svara. Svo varð það mitt hlutskipti að fá fréttamannagamma yfir mig síðar. Það er bara eins og lífið er,“ rifjar hann upp. Síðustu tíu ár hefur Guðmundur Árni starfað í utanríkisþjónustunni, fyrst sem sendiherra í Svíþjóð, síðan í Bandaríkjunum. „Nú er ég svokallaður heimasendiherra og bý í Hafnarfirði hjá minni konu en meginverkefni mitt er að vera fulltrúi utanríkisráðuneytisins í Eystrasaltsráðinu sem er samband ellefu ríkja. Það er að mörgu leyti skemmtilegt. Við Íslendingar erum að taka við for- mennsku í því ráði á næsta ári,“ segir hann og kveðst einmitt vera í Varsjá í embættiserindum. Hann ætlar samt að vera mættur heim á afmælinu en ekki halda upp á það. „Ég hugsaði um það,“ viðurkennir hann. „Ákvað að gera það annaðhvort með stæl eða gera ekki neitt og valdi það síðarnefnda. En auðvitað hitti ég mitt nánasta fólk.“ gun@frettabladid.is Ætlaði að gleyma afmælinu Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi blaðamaður, bæjarstjóri, þingmaður og ráðherra, er sextugur í dag. Þótt titlarnir séu margir er hann þó fyrst og fremst gallharður FH-ingur. Guðmundur Árni með einu af fimm barnabörnum sínum, dóttursyninum Guðmundi Loka. Mynd/Jóna dóra KarLsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og tvíburasystir, Ása Karen Ásgeirsdóttir Vatnsstíg 21, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 27. október. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Kristín Jóhannesdóttir Sigurður Rúnar Sveinmarsson Jón Ásgeir Jóhannesson Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Ása Karen, Gunnhildur, Anton Felix, Berglind, Stefán Franz Anna Guðlaug Ásgeirsdóttir 3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r46 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.