Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty WARMWARE Síðerma bolur S-XL Verð 6.990,- Rúllukragabolur Stærðir S-XL Verð 6.990,- Leggingsbuxum Stærðir S-X. Verð 7.990,- Matarholur skattheimtunnarleynast víða og full ástæða fyrir almenning til að vera á varð- bergi. Í gær sagði Morg- unblaðið frá því að stjórn- völd hefðu í frumvarpi út- fært tillögur um að tekinn yrði upp skattur á urðun úrgangs og að Samband íslenskra sveitarfélaga gagnrýndi frumvarpið harðlega. Sambandið segir frumvarpið ótímabært og óútfært og stjórn þess „leggst því eindregið gegn því að frumvarp um urðunarskatt verði lagt fram á haustþingi og kallar eftir víðtæku samráði um mögulega útfærslu slíkrar skatt- heimtu áður en ákvörðun er tekin um lagabreytingar“, segir í bókun stjórnarinnar.    Í frumvarpinu er gert ráð fyrirað urðunarskatturinn verði lagður á frá 1. janúar nk. og gerir Samband íslenskra sveitarfélaga ráð fyrir því í umsögn sinni að nýi skatturinn gæti skilað ríkissjóði um þremur milljörðum króna á ári.    Það kann að hljóma vel að rík-issjóður fái aukið fé, alveg þangað til á það er bent, eins og Samband íslenskra sveitarfélaga gerir, að um er að ræða nýjar álögur á heimili og fyrirtæki.    Nýir skattar eru stundum settirí þann búning að þeir eigi að stuðla að bættu umhverfi og það er út af fyrir sig jákvætt, en vand- inn er sá að það er almenningur sem borgar brúsann. Og almenn- ingur þarf ekki á því að halda að ríkissjóður taki af honum þrjá milljarða króna á ári til viðbótar, jafnvel þó að það sé gert í nafni umhverfisins. Nýjan skatt í nafni umhverfisins? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kópavogsbær hefur opnað samráðs- gátt fyrir íbúa um innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð- anna um sjálfbæra þróun. Í sam- ráðsgáttinni er hægt að koma á framfæri ábendingum um áherslur við innleiðingu á hverju markmiði fyrir sig. „Þátttaka íbúa við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð- anna er mikilvægur þáttur í því að innleiðing markmiðanna takist vel. Við höfum verið að auka áherslu á íbúasamráð og þátttöku almennings og er samráðsgáttin liður í því,“ er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs, í fréttatil- kynningu. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti haustið 2018 að innleiða heimsmark- mið Sameinuðu þjóðanna í nýrri stefnu bæjarins. Stefnan saman- stendur af hlutverki, framtíðarsýn og gildum auk yfirmarkmiða úr heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóð- anna. Er Kópavogur fyrst sveitar- félaga á Íslandi til að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með formlegum hætti. Markmiðið með stefnunni er að tryggja lífsgæði íbúa Kópavogs og taka um leið þátt í átaki þjóða heims um innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Samráðsgátt um heimsmarkmiðin  Kópavogur býður íbúum bæjarins að koma með ábendingar og tillögur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kópavogur Bæjarstjórnin leitar eftir hugmyndum íbúanna. Borgarráð samþykki á síðasta fundi sínum að gera kröfu um aðgengi að endurgjaldslausu vatni á tónlistar- hátíðum í borgarlandinu. Slíkt ákvæði verði framvegis að finna í öll- um samningum og leyfum Reykjavík- urborgar og verður hluti af öryggis- viðbúnaði Gott aðgengi að endurgjaldslausu vatni á tónlistarhátíðum í borgarland- inu sé mikilvægt vegna skaðaminnk- unarsjónarmiða til að tryggja öryggi gesta, standa vörð um þeirra líkam- legu og andlegu heilsu sem og að stuðla að jákvæðri útkomu viðburða fyrir gesti og umhverfi. Vitnað er í minnisblaði Miðbæjar- athvarfsins, sem er samstarfsverk- efni velferðarsviðs, skóla- og frí- stundasviðs og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í tengslum við tónlistarhátíðina Secret Solstice sem haldin var í jún í 2019. Þar komi fram að þörf fyrir sé betra aðgengi að vatni. Þetta álit styðji mikilvægi þess- arar tillögu. Borgarráðsfulltrúar meirihluta- flokkanna í borgarstjórn Reykjavík- ur fluttu tillöguna. Í bókun þeirra með tillögunni kem- ur fram að með því að tryggja að- gengi að endurgjaldslausu vatni sé hægt að draga úr skaða vegna notk- unar áfengis og annarra vímugjafa. „Ef þú þarft að kaupa vatn á verði sem er ekki svo langt frá verði á áfengi þá er það freistandi að sleppa því að drekka vatn á milli áfengra drykkja, sérstaklega fyrir efnalítið fólk og stúdenta. Að auki getur það að þurfa að standa í langri röð til að geta neytt vatns verið letjandi hvað varðar vatnsneyslu og þar með er að- gengið skert,“ segir í bókuninni. Tillagan sé að auki til þess fallin að draga úr plastnotkun og því sé einnig um umhvefismál að ræða. sisi@mbl.is Tónleikagestir fái ókeypis vatnssopa Morgunblaðið/Styrmir Kári Tónlist Gestir á hátíðinni Secret Solstice hafa þörf fyrir vatnssopa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.