Morgunblaðið - 07.09.2019, Page 40

Morgunblaðið - 07.09.2019, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 ✝ Guðrún BjörgBjörnsdóttir (Gígja) fæddist í Torfmýri, Blöndu- hlíð í Skagafirði, 23. mars 1929. Hún lést 27. ágúst 2019 í Brákarhlíð í Borg- arnesi. Foreldrar henn- ar voru Björn Björnsson og Guð- rún Jónsdóttir frá Bakkakoti. Alsystkin hennar voru: Jónas, f. 1924, d. 2015. Hilmar, f. 1926, d. 1996. Sigurður, f. 1927, d. 1993. Sammæðra Sveinsbörn: Sig- urjón f. 1908, d. 2006. Helga Guðrún, f. og d. 1911. Hjálmar, f. 1913, d. 2004. Helga, f. 1914, andi maki Eiríkur G. Guð- mundsson. Börn þeirra: Hrefna María, Lilja Björg og Heiðrún Dagmar. Barnabörnin eru tvö. 3. Hrafnhildur, f. 1955, fyrr- verandi maki Einar Karelsson. Börn þeirra: Harpa og Gígja Dögg. Barnabörnin eru fimm. 4. Ólafur, f. 1958, maki Gunn- þórunn B. Gísladóttir. Börn þeirra: Jóhann, Gísli Valur, Bjarni Ívar, Hafþór Ingi, Krist- inn Már og Kristín Björg. Barnabörnin eru tíu. 5. Kári, f. 1959. 6. Brynja, f. 1965, maki Ragnar H. Jónsson. Börn þeirra: Reynir Bragi, Jón Bjarki og Kjartan Jóhann. Gígja og Jóhann hófu búskap sinn á Breiðási í Garðahreppi. Fjölskyldan fluttist í Borgarnes árið 1969 og bjuggu Gígja og Jó- hann þar til dauðadags. Gígja var lengst af heimavinnandi húsmóðir en vann einnig í mörg ár á leikskóla. Guðrún verður jarðsungin frá Borgarneskirkju í dag, 7. sept- ember 2019, klukkan 14. d. 2002. Hjördís Gunnarsdóttir, f. 1919, d. 2004. Samfeðra: Hulda, f. 1920, d. 2003. Björn, f. 1951, Guðrún, f. 1953, Sigríður, f. 1957, og Heiðar Borgar, f. 1960. Gígja giftist Jó- hanni Waage trésmíðameistara frá Selárdal í Arnarfirði á af- mælisdegi sínum árið 1954. Börn þeirra: 1. Rúnar, f. 1951, maki Krist- ín Guðjónsdóttir. Börn þeirra: Guðjón, f. 1974, d. 1993. Björg Jónína og Róbert. Barnabörnin eru fjögur. 2. Jensína, f. 1954, fyrrver- Elsku fallega amma Gígja kvaddi þann 27. ágúst síðastlið- inn, og hafa þau afi nú sameinast á ný umvafin englum eftir ein- ungis átta mánuða aðskilnað. Amma Gígja var engri lík, smá- vaxin og fíngerð kona, ávallt glöð og flissandi, með hjarta á við stærð sína margfalda. Það sýndi sig einna best í ómældri um- hyggju sinni fyrir eigin fjölskyldu og afkomendum og spurði hún af þeim fregna allt fram á síðasta dag. Árin urðu níutíu og börnin sex, barnabörnin sautján og barnabarnabörnin tuttugu og eitt. Stoltar erum við partur þeirra sautján barnabarna og er- um svo lánsamar að hafa átt þessa einstöku konu sem ömmu í svo langan tíma. Amma var þessi ekta amma sem var alltaf bakandi og munum við sjaldan eftir ömmu öðruvísi en að vera nýbúin að skella í skonsur eða vera akkúrat að slumpa í brúnköku eða jafnvel steikja kleinur. Frystirinn ávallt troðfullur af heimabökuðu ef ske kynni að einhver myndi reka inn nefið. Fullar Quality Street-doll- ur í eldhússkúffunum af kexi og öðrum smákökum gat maður einnig gengið að vísum. Aldrei minnumst við þess að uppskrifta- bók hafi verið við hönd. Á milli sorta gafst svo tími til að prjóna, en hún var alger listamaður í að prjóna lopapeysur og sokka og reiddi hún þær gersemar fram fyrir okkur fjölskylduna nánast allt til síðasta dags. Hennar ástríða var að gleðja og átti hún erfitt með að kveðja án þess að læða að manni einu pari af ull- arsokkum, jafnvel fallegri skál eða kertastjaka smíðaðan af afa eða bara af heimabökuðu, stund- um fékk maður seðil. Bara að maður fengi eitthvað. Sem barn eigum við ótal minningar frá Böðvarsgötu 13, skóskápurinn hennar ömmu sem við læddumst oft í og lékum okkur með, ferð- irnar í mjólkurbúðina með bréf- pening ef upp á mjólkina vantaði í baksturinn. Gleðina sem ríkti þegar amma kom með fullan poka af vídeóspólum heim upp á Akra- nes þar sem búið var að taka upp sjónvarpsefni af Stöð 2 handa mömmu og pabba, og barnaefni handa okkur systrum. Þá var sko tilefni til þess að poppa. Fullu ferðatöskurnar af bolum, fötum og af öðru góðgæti handa öllum barnabarnaskaranum þegar heim var komið eftir för erlendis. Minningar af þessum toga eru fleiri en þegar horft er yfir þá skín skært ofar öllu öðru tær góð- mennskan, ósérhlífnin og gjaf- mildið sem einkenndi þessa fal- legu sterku konu. Við kveðjum ömmu okkar með djúpu þakklæti og virðingu frá innstu hjartarót- um, takk elsku amma fyrir að hafa verið besta amma sem barnabarn getur óskað sér. Hvíl í friði. Lilja Björg Eiríksdóttir, Hrefna María Eiríksdsóttir, Heiðrún Dagmar Eiríksdóttir. Elsku yndislega og fallega amma Gígja, nú ert þú búin að kveðja okkur og farin yfir í sum- arlandið þar sem elsku afi Jói mun taka vel á móti þér með opnu faðmlagi. Þó þú hafir náð þeim háa aldri að verða 90 ára, þá er það alltaf sárt og erfitt að kveðja ástvini sína, en samt huggar maður sig við það að þú hafir fengið hvíldina þar sem þér leið ekki vel síðustu mánuði, kvalin og verkjuð en allt- af brostir þú í gegnum allt. Þú varst með einstaklega hlýtt og gott hjartalag og þið afi Jói tókuð alltaf svo vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn til ykkar. Þú passaðir vel upp á að enginn færi svangur heim frá þér. Það var alltaf stórveisla og fullt borð af dýrindis kræsingum sem við barnabörnin nutum góðs af og eigum góðar minningar af ljúf- fengu súkkulaðikökunni, hjóna- bandssælunni, skonsunum, soð- brauðinu og svo mætti lengi telja. Þú varst ekki bara handlagin í eldhúsinu, þú varst snillingur í höndunum, prjónaðir og saumað- ir hverja flíkina af annarri, sem við barnabörnin og barna- barnabörnin höfum notið. Minn- isstæðir eru jólakjólarnir sem við frænkurnar klæddumst allar eins með veski saumað í stíl. Svo saumaður þú á mig adidas-apask- inns-galla sem var svo vinsæll á sínum tíma og það var erfitt að sjá að hann væri ekki keyptur út úr búð, svo líkur var hann. Elsku amma, þú varst góð fyr- irmynd, lífsglöð, glaðlynd, bros- mild og einstaklega félagslynd. Þú varst dugleg að gera það sem þér þótti skemmtilegt og rækt- andi fyrir sjálfa þig. Söngst í kór, stundaðir sundleikfimi, spilaðir félagsvist og hafðir gaman af svo mörgu. Þú elskaðir að hlusta á góða og fallega tónlist, fylgdist mjög mikið með alls konar íþrótt- um og vissir miklu meira en margur um stöður í ýmsum leikj- um bæði í handbolta og fótbolta. Það rifjast upp svo margar ynd- islegar, ljúfar og skemmtilegar minningar um þig og afa þegar maður sest niður og skrifar. Mik- ið sem ég er þakklát fyrir þann langa og dýrmæta tíma sem ég og mín fjölskylda höfum fengið og átt með þér og elsku afa. Það er ekki sjálfgefið. Elsku amma Gígja. Ástarþakkir fyrir allar okkar samverustundir, ljúfar og yndis- legar minningar lifa í hjörtum okkar allra. Kossar og knús. Björg J. Rúnarsdóttir og fjölskylda. Ein fallegasta og yndislegasta kona sem ég hef þekkt hefur kvatt okkur í hinsta sinn. Hún elsku amma mín, Gígja, kvaddi þennan heim 27. ágúst síð- astliðinn. Við fjölskyldan fórum og heimsóttum hana tíu dögum áður og sáum þá að blessunin hún amma var orðin afar þreytt. Hún var stoð og stytta afa alla tíð en þegar hann féll frá í desember og maður lítur til baka, þá er eins og að henni hafi hrakað umtalsvert á stuttum tíma. Amma var öllum góð. Þegar ég var að alast upp vann hún á leik- skólanum í Borgarnesi og ein af mínum fyrstu bernskuminning- um var sú hversu illur ég varð öðrum krökkum fyrir að kalla hana ömmu Gígju, því fyrir mér var hún bara amma mín, en svona var hún vinsæl að hún var í raun amma allra. Amma og afi áttu stóran hóp barnabarna og þegar við vorum yngri og amma og afi bjuggu á Böðvarsgötunni vorum við oft þar, risastór hópurinn, ýmist að gæða okkur á bakkelsi sem amma bakaði, horfandi á gömul ára- mótaskaup í stofunni, að glamra á píanóið, lesa Andrésblöð eða leika okkur í sundlauginni í bakgarð- inum. Ég var mikill ömmustrákur og eyddi miklum tíma í eldhúsinu hjá ömmu að spjalla við hana á meðan hún steikti kleinur eða bakaði kökurnar sínar. Ég var seinn til lesturs og amma og afi höfðu frumkvæði að því að byrja sem áskrifendur að Andrési á ís- lensku, sem varð til þess að ég fór loks að lesa og eyddi heilu dög- unum við lestur þeirra, oftast með ömmuköku mér við hlið og glas af kókómalti. Amma skipti nánast aldrei skapi, a.m.k. ekki svo ég sæi. En ein skemmtileg minning sem ég hef af ömmu er frá því þegar hún talaði í símann. Henni lá afar hátt rómur þegar hún talaði í símann og oftar en ekki var viðmæland- inn einhver dætra hennar sem lá jafn hátt rómur og var maður óaf- vitandi orðinn þátttakandi í sím- talinu þó maður væri inni í öðru herbergi. Amma var líka mikið fyrir hannyrðir og saumaði apaskinns- galla á okkur bræðurna og prjón- aði nánast viðstöðulaust. Geymi ég sokka sem hún prjónaði handa mér sem sjáaldur augna minna. Svo þegar langömmubörnin fóru að koma og amma og afi voru flutt í eldri borgaraíbúð, þá átti amma alltaf sleikjó, litli nammi- grísinn minn hún Ylfa sá lang- ömmu sína í þvílíku dýrðarljósi, því hún átti alltaf gúmmelaði handa henni. En nú ertu komin í sumarland- ið til hans afa, þar eruð þið án efa að sinna blómum og uppskeru eins og þið svo oft gerðuð í fallega garðinum ykkar. Þín verður afar sárt saknað, elsku amma mín, en minning þín mun lifa, enda er um fullt af fallegum minningum að ræða. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur Halldórsson) Við sjáumst aftur þótt síðar verði, elsku amma mín. Þín, Jóhann, Svandís, Birna Rún, Ólafur Leó og Ylfa. Guðrún Björg Björnsdóttir, Gígja, húsmóðir í Borgarnesi, var tengdamóðir mín í nærri þrjá áratugi, þann tíma sem við Jens- ína vorum samferða. Hún var amma þriggja dætra okkar og langamma tveggja barnabarna. Gígja hefur nú kvatt þennan heim eftir langa og farsæla ævi, níræð að aldri. Hún fylgir þannig eiginmanni sínum, Jóhanni Waage, sem lést í desember síð- astliðnum. Það er skammt stórra högga í milli í fjölskyldunni. Gígja reyndist mér og fjöl- skyldu okkar Jensínu frábær- lega. Hún var mikil gæðakona sem ég met mikils og virði eftir okkar löngu og góðu kynni. Gígja var mér góð tengdamóðir og frá- bær amma dætra minna. Hún sýndi sínum nánustu alltaf mikla umhyggju. Hún tók fús barna- börnin til pössunar, strauk tár af vanga og huggaði, hvatti og ráð- lagði. Gígju var í blóð borið að láta gott af sér leiða. Aðalstarfsvettvangur Gígju var lengst af heimili þeirra hjóna. Þar kunni hún svo vel til verka að vafalaust hefði hún getað fengið meistarabréf í heimilisfræðum, hefði slíkt skipulag verið við lýði. Hún þreif, þvoði þvotta, eldaði mat, bakaði, saumaði og prjónaði af alkunnri snilld, daga, kvöld og helgar. Fjölskyldan var stór og verkin því ærin. Hún bjó yfir ótrúlegum styrk og dugnaði. Hún taldi ekkert eftir sér. Það er nú ekki mikið mál að skella í eina skúffuköku. Og peysan, gallinn, buxurnar eru á lokametrunum. Allt var þetta einhvern veginn lít- ið mál. Mannkostir Gígju, góðvild, greiðvikni og umhyggjusemi nutu sín ekki síður þegar hún vann ut- an heimilis. Um árabil vann hún á leikskóla í Borgarnesi. Þar blómstraði hún og var elskuð af börnum og starfsfólki. Ekki verð- ur annað sagt en að Gígja hafi áorkað miklu á langri ævi, enda sístarfandi. Gígja var ákaflega glaðlynd og hafði gaman af því að vera innan um fólk. Að taka í spil var lengi hennar besta skemmtun. Vist var í uppáhaldi hjá henni og var hún fastur gestur við spilaborðið á elliheimilinu í Borgarnesi. Þá var glatt á hjalla og mikið hlegið. Við þessar aðstæður naut Gígja sín til fulls og var hrókur alls fagnaðar, brosmild og glaðvær. Nú er brosið horfið og hlátur- inn hljóðnaður. Gígja var góð manneskja og lifði fallegu lífi. Blessuð sé minning hennar. Ég votta börnum Gígju og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð mína. Eiríkur G. Guðmundsson. Guðrún Björg Björnsdóttir Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖSKULDUR AÐALSTEINN SIGURGEIRSSON forstjóri, Húsavík, lést á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík mánudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 16. september klukkan 14. Hólmfríður Jóna Hannesdóttir Hannes Höskuldsson Elfa Signý Jónsdóttir Páll Aðalsteinn Höskuldsson Jóhanna Björg Hansen Anna Helga Höskuldsdóttir Halldór Páll Gíslason Sigurgeir Höskuldsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVANFRÍÐUR KJARTANSDÓTTIR lést mánudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 11. september klukkan 13. Gunnlaugur Óskar Ragnarsson Gréta Hrund Grétarsdóttir Gunnar Bjarki Finnbogason Þóra Steinunn Pétursdóttir Jón Óttar Ólafsson Heiðrún Grétarsdóttir Kristján Hrafn Guðmundsson Þórunn Grétarsdóttir Björn Sighvatsson og ömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR GUNNAR ÓLAFSSON, Pósthússtræti 1, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, miðvikudaginn 4. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 10. september klukkan 13. Hrafnhildur Gunnarsdóttir Ásgeir Eiríksson Ólöf Jónsdóttir Marta Eiríksdóttir Friðrik Þór Friðriksson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRÍÐA KRISTÍN GÍSLADÓTTIR lést á Droplaugarstöðum 15. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Magni Blöndal Gísli Blöndal Ingibjörg Guðmundsdóttir Snæbjörn Pétursson ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, systir og frænka, KRISTÍN JÓHANNA AÐALSTEINSDÓTTIR, Miðvangi 6, Egilsstöðum, lést á krabbameinsdeild Landspítalans mánudaginn 26. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Björn Ágústsson Jón, Björg, Eygló og fjölskyldur Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ERNU FINNSDÓTTUR Sóltúni 2. Hallgrímur Geirsson Aðalbjörg Jakobsdóttir Kristín Geirsdóttir Freyr Þórarinsson Finnur Geirsson Steinunn K. Þorvaldsdóttir Áslaug Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.