Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 20
BÆJARLÍFIÐ Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbæ Í Reykjanesbæ stendur nú yfir menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt. Hún var sett á miðviku- dag og í kjölfarið rak hver viðburð- urinn annan. Almenn ánægja er með Ljósanótt, nú sem endranær og dagskrárliðir hafa aldrei verið fleiri en nú, um 150 talsins.    Laugardagurinn er jafnan að- aldagur Ljósanæturhátíðar og sá dagur er einmitt í dag. Íbúar og nærsveitungar skella sér í árganga- göngu eftir hádegi og þegar komið verður að hátíðarsvæði hefst við- stöðulaus dagskrá sem endar með stórtónleikum á sviði og flugelda- sýningu. Með lýsingu Bergsins í dagskrárlok taka bæjarbúar á móti skammdegi hausts og vetur.    Þessi Ljósanótt er um margt sérstök. Hún er nú haldin í 20. sinn á 25 ára afmæli Reykjanesbæjar. Og plastlaus skyldi hún vera. Síðasti liðurinn í afmælisfagnaði Reykja- nesbæjar þjófstartaði Ljósanótt þetta árið og gerði góða menning- arveislu enn betri. Sinfóníu- hljómsveit Íslands hélt tónleika í Stapa Hljómahöll, sem íbúum var boðið til. Heppnuðust þeir frábær- lega vel. Nú vita bæði skipuleggj- endur og sveitin að Hljómahöll hentar vel fyrir stærstu hljómsveit landsins.    Á afmælisárinu hefur bærinn líka lagt í stærsta einstaka verkefni frá upphafi, byggingu Stapaskóla. Skólinn hefur verið í rekstri í bráða- birgðahúsnæði undanfarin misseri en fyrr á árinu hófst bygging skóla- húss, sem fullklárað verður um 7.000m² og kostar um fimm millj- arða króna. Skólinn verður í senn grunnskóli, leikskóli og íþróttahús.    Atvinnuleysi hefur aukist hratt á Reykjanesi á undanförnum mánuðum. Teikn mátti merkja á lofti fyrir ári þegar vandræða fór að gæta í rekstri WOW air. Stærsta at- vinnusvæði Reykjanesbæjar og ná- grannasveitarfélaga er jú á og við flugvöllinn. Frá því í september í fyrra hefur atvinnuleysi aukist um 3%, fór úr 3% í 6%.    Ekki er ljóst hvernig atvinnu- leysið mun þróast á næstunni, enda áhrifin af falli WOW air ekki að fullu komin fram.    Þegar rýnt er í áföll liðinna ára sést að flugvöllurinn hefur verið fljótur að jafna sig. Í skýrslu sem Aton tók saman fyrir Isavia sjást þrjár niðursveiflur í rekstri á 30 ára tímabili, 1985-2015. Fyrst er að geta endurskipulagningar leiðarkerfis Icelandair árið 1989 sem minnkaði heildar farþegafjölda til skamms tíma. Hryðjuverkin í Bandaríkj- unum 9/11 2001 kölluðu aftur fram niðursveiflu, sem jafnaði sig fljótt.    Dýfan varð mest eftir eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 en það varð jafnframt mikil landkynning fyrir Ísland. Farþegum fjölgaði eftir dýfuna sem aldrei fyrr. Hver man ekki eftir ævintýrinu kringum Eyjafjallajökul, ekki síst framburðaræfingar erlendra gesta. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Söngur Margir lögðu leið sína á opna söngstund í ráðhúsi Reykjanesbæjar sem er meðal viðburða á Ljósanótt. Ljósanótt er gengin í garð 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is INTERFLON Matvælavottaðar efnavörur Nýjar umbúðir, sömu gæða efnin Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Rannsóknir sumarsins gefa ekki ástæðu til bjartsýni um að humar- stofninn við landið sé að rétta úr kútnum. Talsvert þurfti að hafa fyr- ir veiðum sumarsins þó svo að afla- heimildir hafi verið í sögulegu lág- marki og aðeins hluti af því sem var þegar best lét. Umhverfisbreyting- ar eru taldar helstu ástæður brests í nýliðun og gætu ýmsir þættir haft áhrif. Jónas Páll Jónasson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, segir að niðurstöður rannsókna og afla- ráðgjöf fyrir næsta ár verði væntan- lega kynntar fyrir áramót. Hann segir að rannsóknir sumarsins hafi gengið vel, en þær felast m.a. í taln- ingu humarholna á botninum með neðansjávarmyndavélum, togum á veiðislóð og sýnatöku úr lönduðum afla til að afla upplýsinga um út- breiðslu og stærðarsamsetningu stofnsins. Niðursveiflan endurspeglast í veiði og vísitölum Jónas segir að engar vísbending- ar hafi komið fram um breytingar, en unnið er að úrvinnslu gagna frá sumrinu. Miðað er við að humar sé fimm ára þegar hann kemur inn í veiðina og samkvæmt rannsóknum hefur verið nýliðunarbrestur frá 2005 til 2014. „Stóra myndin er sú að við sjáum engar breytingar og niðursveiflan þessi ár endurspeglast í veiðinni og þeim vísitölum sem við erum að mæla,“ segir Jónas. Í skýrslu með ráðgjöf sem gefin var út síðasta vetur kemur fram að þéttleiki humarholna við Ísland hafi mælst með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Al- þjóðahafrannsóknaráðið veitir ráð- gjöf fyrir. Þar kom fram að nýliðun væri í sögulegu lágmarki og yrði ekki breyting þar á mætti búast við áframhaldandi minnkun stofnsins. Ekki ástæða til bjartsýni um humarstofninn  Engin merki um breytingar í nýliðun  Aflaráðgjöf 2020 kynnt fyrir áramót Ljósmynd/JPJ Humarrannsóknir Myndavél gerð klár á sýnatökusleða um borð í rs. Bjarna Sæmundssyni í júnímánuði. Samdráttur » Humarafli nærri tvöfaldaðist frá árinu 2004 til ársins 2010 þegar hann náði 2.500 tonnum. » Síðan hefur aflinn minnkað. Hann var 728 tonn árið 2018 og var afli á sóknareiningu þá í sögulegu lágmarki. » Í ár var aflinn um 250 tonn, sem er langminnsti afli frá upp- hafi veiða árið 1957. » Sókn í stofninn var nokkuð stöðug frá árinu 2009 fram til 2018 en dregið var úr sókn í sumar. Gert er ráð fyrir því að um 20 starfsmenn Arnarlax hefji í haust nám á námsbraut í fiskeldi í Bíldu- dal og öðrum starfsstöðvum fyrir- tækisins á Vestfjörðum. Námið á að vera hagnýtt starfsnám með það að markmiði að auka sérþekkingu starfsfólks á rekstri og öryggis- málum. Arnarlax og Fisktækniskóli Ís- lands hafa gert með sér samning um fræðslu starfsfólksins. Arnarlax setur sér það markmið, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu, að 50% starfsmanna fyrirtækisins ljúki umræddu námi. Mikilvægt sé að auka sérþekkingu starfsmanna til að hámarka fram- leiðsluna í þeirri öru þróun sem er í laxeldi. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Pökkun Laxi er slátrað allt árið í vinnslu Arnarlax á Bíldudal. Nám hjá Arnarlaxi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.