Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 56
Listasafn Reykja- víkur efnir til samsýningar utan veggja safnhús- anna og setja fimm myndlist- armenn fram ný verk sem birtast á nýstárlegan hátt víða um Reykjavík og í ýmsum formum. Sýningin nefnist Haustlaukar og meðal lista- manna er Snorri Ásmundsson sem býður til hugleiðslustundar í Egils- höll í dag kl. 16 en þar mun dýrling- urinn meistari Hilarion líkamnast í honum. Hinir listamennirnir fjórir eru Ásgerður Birna Björnsdóttir, Berglind Jóna Hlynsdóttir, Curver Thoroddsen og Þóranna Björns- dóttir. Hilarion líkamnast í Snorra Ásmundarsyni LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 250. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda þegar liðið mætir Moldóvu í undankeppni EM 2020 á Laugardalsvelli í dag. Þetta er fimmti leikur íslenska liðsins en Ís- land er í þriðja sæti riðilsins með níu stig eftir fyrstu fjóra leiki sína, eins og Frakkland og Tyrkland, sem eru með mun hagstæðari marka- tölu. »47 Blásið til sóknar í Laugardalnum í dag Myndlistarsýning Páls Hauks Björnssonar, Ósegjanleiki, verður opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju við messulok á morgun kl. 12.15. Sýningin er á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og sýningarstjóri er Rósa Gísladóttir. Páll sýnir ný verk sem hann hefur gert sérstaklega fyrir þessa sýn- ingu. Í verkum sínum fæst Páll við myndbirtingar hins yfirskilvitlega og hvernig þær gera grein fyrir íveru- bundinni tilveru okkar og eru á ákveðinn hátt ábyrgar fyrir af- mörkun menning- ar og náttúru, eins og því er lýst í tilkynningu. Páll Haukur opnar sýn- ingu að lokinni messu ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verslunin og veitingastaðurinn Vegamót er samfélagsmiðstöðin á Bíldudal. Þar hittast íbúarnir. Vertinn hefur gaman af því að skipuleggja viðburði og tekur ósjaldan upp gítarinn og spilar og syngur við slík tækifæri. Hjónin Gísli Ægir Ágústsson og Anna Vilborg Rúnarsdóttir keyptu Vegamót fyrir tveimur árum. „Það voru breytingar hjá fyrri eig- endum. Ég var búinn að vera með það í huga að fara út í sjálfstæðan rekstur og svona tækifæri gefast ekki á hverjum degi. Við ákváðum að stinga okkur í djúpu laugina,“ segir Gísli. Fiskeldið er forsendan Þau hafa gert breytingar, stækkað verslunina til að auka vöruúrvalið. „Við reynum að hafa helstu nauðsynjar og helst aðeins meira.“ Ekki kvartar Gísli undan við- tökum íbúa á Bíldudal. Segir að vel sé mætt á alla viðburði og oft uppselt. Þá hefur verið mikið að gera á veitingastaðnum í haust vegna framkvæmda hjá tveimur stærstu fyrirtækjunum, Arnarlaxi og Íslenska kalkþörungafélaginu, oft á fjórða tug starfsmanna verk- taka í hádegismat. Öflug uppbygging fiskeldis hjá Arnarlaxi hefur snúið við byggða- þróuninni á Bíldudal og þar fjölg- ar nú eins mikið og íbúðarhúsnæði staðarins leyfir. „Ég sé að fólk hefur meiri peninga á milli handa en áður, er bjartsýnt, fjárfestir í húsunum sínum og er óhræddara að gera vel við sig. Fasteignaverð hefur snarhækkað,“ segir Gísli. Hann segir að þessi auknu um- svif í þorpinu hafi verið úrslita- atriði í huga þeirra hjóna þegar þau ákváðu að kaupa Vegamót. Því fylgdi ákveðið rekstraröryggi. „Við hefðum ekki gert þetta nema það væri næg atvinna í bænum,“ segir Gísli. Æskuheimilið innan seilingar Gísli er fæddur og uppalinn á Bíldudal og hann nýtti tækifærið þegar uppbygging fiskeldisins hófst til að snúa aftur vestur með fjölskylduna. Hann fékk vinnu hjá Fjarðalaxi og tók síðan þátt í upp- byggingu Arnarlax, með millilend- ingu í Noregi, áður en hann ákvað að snúa sér að viðskiptum. „Það fylgir því frelsi að búa hérna. Æskuheimili mitt er hinum megin við götuna og þar búa mamma og pabbi. Ég get farið þangað eftir hádegistörnina og lagt mig, ef ég vil,“ segir Gísli. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sitt lítið af hverju Gísli Ægir Ágústsson slær á létta strengi þegar hann afgreiðir viðskiptavin Vegamóta. Vertinn spilar og syngur fyrir gesti sína  Veitingastaðurinn er samfélagsmiðstöðin á Bíldudal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.