Morgunblaðið - 23.12.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 2 3. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 301. tölublað 107. árgangur
VINKONUR
PÆLA Í
JÓLUNUM NÝ PLATA FRÁ UMBRU
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR ÁRS-
INS VALINN
MARÍUSÖNGVAR FRÁ MIÐÖLDUM 34 ÚRSLIT Í VIKUNNI 33MARÍUR TVÆR 12
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Kertasníkir kemur í kvöld
1dagurtil jóla
jolamjolk.is
Ásatrúarfólk rétt eins og aðrir fagnaði því í gær, á vetrar-
sólstöðum, að daginn er nú aftur farið að lengja á norðurhjar-
anum. Vetrarsólstöður eru hin fornu jól norrænna manna og
af því tilefni var efnt til hátíðar, þar sem fólk úr Ásatrúar-
félaginu á Íslandi kom saman við hofbygginguna í Öskjuhlíð
með kyndla og eldker og fagnaði tímamótunum. Í dag, á Þor-
láksmessu, nýtur sólar heilum 15 sekúndum lengur en var í
gær. Lítill birtumunur sést því fyrst í stað, svo koma jól og
áramót með allri sinni gleði og tilbúnu birtu. Eftir nýárið fer
svo að sjást verulegur munur, birtustundunum fjölgar hratt
og fyrr en varir er blessað íslenska vorið komið í allri sinni
dýrð.
Morgunblaðið/Eggert
Ásatrúarfólk fagnaði í Öskjuhlíð á vetrarsólstöðum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú með morgninum átti að athuga
stöðu mála í Ljósavatnsskarði í S-
Þingeyjarsýslu en hringvegurinn
þar var lokaður í gær vegna snjó-
flóðahættu. Flóð úr hlíðinni við
Ljósavatn féll á veginn sl. fimmtu-
dagskvöld og hefur vegurinn á þess-
um slóðum verið lokaður meira og
minna síðan. Í gær voru raunar allir
vegir austan Vaðlaheiðar meira og
minna lokaðir vegna ófærðar, til að
mynda þjóðleiðin milli Norður- og
Austurlands um Mývatns- og
Möðrudalsöræfi. Sömu sögu var að
segja um veginn yfir Þverárfjall og
leiðina til Siglufjarðar úr Skagafirði.
Rafmagn fór af Húsavík um stund
í gærmorgun vegna bilunar í línu frá
Laxárvirkjun. Húsvíkingar fengu þó
fljótlega rafmagn að nýju en víða
norðanlands og austan hefur verið
unnið að hreinsun lína og tengi-
virkja.
Greiðfært milli landshluta
Í dag, á Þorláksmessu, verður
þokkalegt ferðaveður víðast hvar á
landinu í dag og greiðfært milli
landshluta, en margir eru nú á far-
aldsfæti í aðdraganda jóla. Þurrt
verður víðast hvar og hægviðri, en
allra nyrst á landinu slær vindur í 8-
13 m/sek. Norðanlands verður hiti
aðeins yfir frostmarki og þar má bú-
ast við rigningu en slyddu inn til
landsins.
Á morgun, aðfangadag, verður
hæg breytileg átt og þokkalegasta
veður, en búast má við slydduéljum
austanlands. Vestlægar áttir verða
svo ráðandi á jóladag svo gera má
ráð fyrir stöku éljum á vesturhluta
landsins. „Þar sem snjór er á land-
inu helst hann yfir hátíðina. Jólin
verða því hvít svona í stórum drátt-
um,“ sagði Daníel Þorláksson veð-
urfræðingur í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Vegir verða opnaðir í dag
Óveðurstíð á Norðurlandi Allar leiðir austan Vaðlaheið-
ar voru lokaðar Þokkalegt ferðveður í dag Jólin hvít