Morgunblaðið - 23.12.2019, Side 2
Gagnrýndi vinnubrögð dómnefndar
Varaforseti Landsréttar gagnrýnir endurmat á umsækjendum um stöðu dómara við Hæstarétt
Dómnefnd vegna Hæstaréttar vék í umsögn sinni frá reiknileiðinni við landsréttarvalið 2017
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Davíð Þór Björgvinsson, dómari við
Landsrétt, gerði athugasemdir
vegna niðurstöðu dómnefndar um
lausa stöðu við Hæstarétt. Nefndin
skilaði umsögn 9. desember síðast-
liðinn og var tilkynnt fyrir helgi að
dómsmálaráðherra hefði gert tillögu
um skipun Ingveldar Einarsdóttur í
embættið. Umsækjendur fengu
upplýsingar um niðurstöðuna í lok
nóvember.
Nefndin treysti sér ekki til að
gera upp á milli þriggja umsækj-
enda; Davíðs Þórs, Ingveldar og
Sigurðar Tómasar Magnússonar.
Öll eru þau nú dómarar við
Landsrétt og Ingveldur, sem fyrr
segir, á leið í Hæstarétt.
Eins og rakið var í Morgun-
blaðinu síðastliðinn föstudag er
ósamræmi í þessari niðurstöðu og
umsögn dómnefndar vegna Lands-
réttar 19. maí 2017. Þannig var Dav-
íð Þór metinn langhæfastur af 33
umsækjendum um 15 dómarastöður
við Landsrétt, sem tók til starfa 1.
janúar 2018. Umsækjendurnir voru
metnir sam-
kvæmt 12 mats-
þáttum og fékk
Davíð Þór 7,35
stig. Næstur kom
Sigurður Tómas
með 6,775 stig en
sjötta varð Ingv-
eldur með 6,3
stig. Fékk Davíð
Þór þannig 1,05
stigum meira en
Ingveldur. Til samanburðar munaði
1,025 stigum á Ingveldi í sjötta sæti
og Arnfríði Einarsdóttur í 18. sæti.
Samkvæmt heimildum blaðsins
skrifaði Davíð Þór dómnefndinni
vegna Hæstaréttar bréf um málið.
Þar mun hann hafa gert grein fyrir
þeirri skoðun sinni að engar for-
sendur væru fyrir því að víkja á svo
afgerandi hátt frá niðurstöðunni
2017. Mun hann m.a. hafa vísað til
dóma Hæstaréttar í desember 2017
þar sem ítarlega var fjallað um
stigagjöfina og vægi hennar í dóm-
aravalinu.
Þá hafi Mannréttindadómstóll
Evrópu (MDE) gert mikið úr stiga-
gjöfinni í dómi gegn íslenska ríkinu.
Fer það mál fyrir yfirdeild MDE í
febrúar.
Sem áður segir voru þau Davíð
Þór, Sigurður Tómas og Ingveldur
skipuð dómarar við Landsrétt.
Reynsla þeirra frá dómaravalinu
2017 er því sambærileg. Þá má
nefna að Davíð Þór var settur ríkis-
saksóknari fram á haustið 2018
vegna endurupptöku á Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu fyrir Hæsta-
rétti. Hann tók við stöðu varafor-
seta Landsréttar í kjölfarið. Davíð
Þór vildi í samtali við Morgunblaðið
ekki tjá sig um málið.
Davíð Þór
Björgvinsson
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
Þú finnur fallegar og
vandaðar jólagjafir
hjá Eirvík
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sjúkraþjálfurum er frjálst að breyta
verðskrá sinni eftir að gerðardómur
feldi úrskurð þess efnis að Félag
sjúkraþjálfara væri ekki lengur
bundið við útrunninn samning við
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ).
Samningurinn rann út hinn 31.
janúar sl. SÍ tilkynnti sjúkraþjálfur-
um í nóvember að stofnunin teldi
sjúkraþjálfara bundna af ákvæðum
samningsins til sex mánaða í viðbót.
Var þeirri ákvörðun skotið til gerð-
ardóms sem skilaði úrskurði sínum
fyrir helgi. Var það niðurstaðan að
hæfilegur frestur væri til 12. janúar
næstkomandi.
Unnur Pétursdóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags sjúkraþjálf-
ara, segir að frá og með þeim degi
gefist sjúkraþjálfurum heimild til
þess að breyta gjaldskrám sínum frá
því sem tilgreint var í samningnum
við SÍ. „Við gerum þó ráð fyrir því að
SÍ muni standa við sinn hluta samn-
ingsins og að ráðherra setji reglu-
gerð sem heimilar endurgreiðslur þó
að enginn samningur sé í gildi á milli
aðila. Er það samkvæmt lögum sem
skylda ráðherra til endurgreiðslu
eins og verið hefur þrátt fyrir að ekki
sé samningur sé í gildi,“ segir Unn-
ur. Hún segir fyrirséð að gjaldskrá
sjúkraþjálfara muni hækka en
ómögulegt sé að segja hve mikið þar
sem það er hverri sjúkraþjálfara-
stofu í sjálfsvald sett hve hátt gjald
hún innheimtir. „Enda væri ólöglegt
að vera með samráð um slíkt,“ segir
Unnur.
Sjúklingar koma til með að bera
þann kostnað sem auknar gjald-
heimtur bera með sér. „Það sem er
mikilvægast fyrir okkur sjúkraþjálf-
arana er það að okkur hafi verið
heimilt að segja okkur frá þessum
samningi og sú sýn SÍ að við þyrftum
að segja upp útrunnum samningi
með sex mánaða fyrirvara stóðst
ekki,“ segir Unnur.
vidargudjons@gmail.com
Gjaldskrá sjúkra-
þjálfara hækkar
Unnu mál gegn SÍ fyrir gerðadómi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjúkraþjálfun Búast má við því að
gjaldskrá hækki á næstunni.
Ekki liggur fyrir að hve miklum
hluta tryggingafé ferðaskrifstof-
unnar Farvel dugar til að bæta
tjón viðskiptavina fyrirtækisins.
Eftir að Ferðamálastofa afturkall-
aði rekstrarleyfi ferðaskrifstof-
unnar eru 22 strandaglópar í Taí-
landi. Þurfa þeir að koma sér heim
eftir öðrum leiðum og á eigin
kostnað.
Ferðaskrifstofum ber að leggja
fram tryggingu til Ferðamálastofu,
sem ætluð er til að tryggja að við-
skiptavinir fái tjón sitt bætt fari
ferðaskrifstofan í þrot. Fyrirtækið
hafði um nokkurt skeið vanrækt að
skila hækkaðri tryggingu, í sam-
ræmi við vaxandi umsvif.
„Það var búið að margítreka
það,“ sagði Helena Þ. Karlsdóttir,
forstöðumaður stjórnsýslu- og um-
hverfissviðs Ferðamálastofu, í sam-
tali við mbl.is í gær.
Ekki víst
hve mikið
fæst bætt
22 strandaglópar
Farvel í Taílandi Margir nýttu helgina til þess að
ljúka jólainnkaupum ellegar til
skemmtunar eins og tilheyrir á að-
ventunni. Líflegt var í Heiðmörk-
inni ofan við Reykjavík í gær en
þar hefur alla aðventuna verið
starfræktur markaður þar sem
hægt hefur verið að kaupa hand-
verk og fleira fallegt.
Margir hafa svo arkað út á
mörkina og sótt sér jólatré, en af
nægu er að taka í hinum víðfeðmu
skógum á þessum slóðum. Mörg
eru trén fagurlega mótuð og hæfa
því vel sem skreytt stofustáss.
Sumir krakkanna sem þarna voru
komnir með foreldrum sínum til
að velja sér tré brugðu jafnvel á
leik, mynduðu halarófu og og
dönsuðu í kringum jólatréð. Allt
var þetta í anda þeirrar heilögu
hátíðar sem nú er að ganga í garð
– en inntak hennar er fyrst og síð-
ast gleði sem sést svo vel í fasi
barnanna.
Börnin í
halarófu í
Heiðmörk
Morgunblaðið/Eggert
Jólagleði í skóginum og dansspor voru tekin við fallegt grenitréð