Morgunblaðið - 23.12.2019, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
Bláu húsin v/Faxafen
ími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Opið í dag
Þorláksmessu
kl. 10-22 og
aðfangadag
kl. 10-13.
Gleðileg
jól
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Fyrirtækið Sillukot á Þórshöfn
selur handunnar íslenskar heimilis-
vörur, þar á meðal margs konar
kerti og sápur, sem eru engar venju-
legar sápur heldur Sælusápur. Eig-
endur Sillukots eru hjónin Sigríður
Jóhannesdóttir og Júlíus Sigur-
bjartsson en þau keyptu fyrirtækið
Sælusápur í sumar af stofnendum
þess í Kelduhverfi. Systurnar Sig-
ríður og Gréta Jóhannesdætur deila
húsnæði á Þórshöfn þar sem þær
selja vörur sínar en Gréta er graf-
ískur hönnuður. Margt frumlegt og
fallegt finnst hjá þeim í litlu búðinni
við Langanesveg.
Þar má meðal annars sjá fullar
hillur af litríkum og ilmandi sápum
sem börnin verða hugfangin af.
„Hún Sirrý er örugglega hreinasta
konan á Þórshöfn, hún á svo margar
sápur,“ sagði eitt barnið með að-
dáun. Úrvalið er líka mikið, allt frá
skítverkasápu til ilmandi sælusápu
og allt þar á milli.
„Þó að Langanesið sé langt og
mjótt leynist þar fegurð víða,“ segir
í einu ljóðinu sem er utan á kerta-
krúsum í Sillukoti. Skemmtilegt
samstarfsverkefni varð til hjá systr-
unum Sigríði og Grétu, sem Jóhann-
es faðir þeirra fléttaðist einnig inn í.
Sigríður gerir kertin og Gréta hann-
ar fallega límmiða sem ljóð föður
þeirra eru prentuð á en Jóhannes á
Gunnarsstöðum yrkir gjarnan um
heimabyggðina með næmri skynjun
bóndans sem er nátengdur íslenskri
náttúru. Fleiri ljóð er að finna á
kertaglösunum sem tengjast heima-
byggðinni á Langanesi og í Þistil-
firði en kertavertíð hefur verið í há-
marki á Þórshöfn í rafmagnsleysi og
veðravíti.
„Jólasíldin er sérlega vel
heppnuð í ár,“ segja starfsmenn Ís-
félagsins á Þórshöfn sem hafa þann
sið að taka frá síld á síðustu dögum
haustvertíðar og hefja svo niðurlögn
tímanlega fyrir jólin. Eru helstu
síldarspekúlantarnir þar í húsi orðn-
ir afar lunknir við þessa matargerð
eftir sinni einkauppskrift.
Kaffistofan ilmar af síld um
þessar mundir og starfsmenn fá síld-
arfötu með sér heim. Rausnarlega
var lagt niður af síld þetta árið og
bauð Ísfélagið íbúum byggðarlagsins
að koma og næla sér í ókeypis síldar-
fötu fyrir jólin. Margir nýttu sér
þetta kostaboð enda kjörið að fá sér
síld og rúgbrauð þegar ekki er hægt
að elda neitt vegna rafmagnsleysis.
Rafmagn hefur verið óstöðugt
á Þórshöfn og nágrenni allt frá því að
óveðrið mikla skall á í síðustu viku og
Kópaskerslínan bilaði en viðgerð á
henni lauk á fimmtudagskvöld svo
keyrslu á varaaflstöð hefur verið
hætt. Það er mikið öryggisatriði að
vararafstöð sé á staðnum en raf-
magnsleysi er ekki nýtt af nálinni hér
í byggðarlaginu. Þó að hinn almenni
íbúi taki rafmagnsskorti oftast með
æðruleysi þá hefur rafmagnsbilun al-
varlegar afleiðingar í atvinnulífinu,
til dæmis í sjávarplássum á hávertíð
og víðar, og gríðarleg verðmæti geta
þá farið í súginn.
Þessi ótíð núna á síðustu metr-
unum fyrir jól kemur sér illa, margir
á leið heim í jólafrí, t.d. ungmenni í
framhaldsskólum en veðurguðirnir
kæra sig kollótta og demba ófærð og
illviðrum yfir fólk á versta tíma.
Sumarið hér á norðausturhorninu
bauð ekki heldur upp á það að fólk
gæti safnað sól í sarpinn til að ylja
sér við í skammdeginu svo vonandi
fer veturinn mildum höndum um
fólk eftir þennan hvell.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Í Sillukoti Sigríður Jóhannesdóttir, Sirrý í Sillukoti, með prjónana sína.
Hreinasta konan á Þórshöfn
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur hafnað kröfu fyrir-
tækisins Fiskmarks ehf. um veitingu
starfsleyfis fyrir heitloftsþurrkun og
pökkun fiskafurða í Þorlákshöfn til
tólf ára. Fyrirtækið hafði kært
ákvörðun heilbrigðisnefndar Suður-
lands frá því í júní á þessu ári, þar
sem veitt var starfsleyfi til sex mán-
aða í stað umbeðinna tólf ára.
Vísaði Fiskmark meðal annars til
þess að nefndin hefði í febrúar veitt
Lýsi hf. starfsleyfi til tólf ára, til að
bræða allt að hundrað tonn af hrá-
efni á sólarhring, og að starfsstöðvar
fyrirtækjanna stæðu við sömu götu.
Úrskurðarnefndin komst að þeirri
niðurstöðu að heilbrigðisnefndin
hefði við ákvarðanatöku sína um
gildistíma leyfanna byggt á fram-
bærilegum sjónarmiðum, meðal
annars þar sem henni hefði borist
mjög mikill fjöldi athugasemda
vegna starfsemi Fiskmarks, en eng-
ar slíkar hefðu borist á auglýsing-
artíma tillögu að starfsleyfi vegna
lifrarbræðslu Lýsis.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þorlákshöfn Kröfunni var hafnað.
Neitað um
12 ára leyfi
Fá sex mánuði