Morgunblaðið - 23.12.2019, Síða 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
60 ára Atli er úr Háa-
leitishverfinu í Reykjavík
en býr í Garðabæ. Hann
er stúdent frá MH og er
bankastarfsmaður hjá
Landsbankanum. Atli er
fyrrverandi landsliðs-
maður og atvinnumað-
ur í handbolta og þjálfaði bæði erlendis og
innanlands.
Maki: Hildur Kristjana Arnardóttir, f. 1963,
starfsmaður bandaríska sendiráðsins.
Börn: Arnór, f. 1984, Þorgerður Anna, f.
1992, og Davíð Örn, f. 1994. Barnabörnin
eru Nóel Atli, f. 2006, Elísabet, f. 2012, og
Karítas, f. 2019, Arnórsbörn.
Foreldrar: Hilmar Guðlaugsson, f. 1930,
múrari, búsettur í Reykjavík, og Jóna
Steinsdóttir, f. 1928, d. 2019, húsmóðir í
Reykjavík.
Atli
Hilmarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert ekki viss um hvort þú vilt
tilheyra vissum vinahóp. Hugsaðu málið í
rólegheitum. Taktu eitt skref í einu.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er alveg sama hvað þú gefur í
skyn eða hversu mikið þú einbeitir þér að
þínu, fólk er alltaf að trufla þig. Með réttu
hugarfari ætti þér að takast ætlunarverk
þitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú gætir þegið hjálp annarra í
dag. Þú sérð ekki sólina fyrir nýjum fjöl-
skyldumeðlim. Söðlaðu um í vinnu, þú
hefur engu að tapa.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hvort sem þú skreytir, endurnýjar
eða breytir á heimili þínu mun það slá í
gegn hjá heimilisfólki. Varastu aulafyndni
og ódýr loforð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ástvinir þurfa á skilningi þínum að
halda meira en nokkru sinni fyrr. Gerðu
þér grein fyrir því hvert þú vilt stefna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Taktu höndum saman við aðra til
þess að ná markmiðum þínum. Hafðu ekki
samviskubit þó að þú takir þér af og til frí
til að vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhver ráðgáta heldur fyrir þér vöku
en lausnarinnar er að leita þar sem síst
skyldi. Slepptu tökum á gömlum tilfinn-
ingum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að þú látir ekki
erfiðleika þína bitna á þínum nánustu. Þér
finnst ekki leiðinlegt að vera í sviðsljósinu
og ættir að gera meira af því. Hver veit
nema svo verði síðar á nýju ári.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það eru margar listsýningar í
gangi svo þú hefur úr nægu að velja til að
auðga andann. Taktu ekki fleiri verkefni að
þér en þú getur sinnt í dagvinnu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er engin ástæða til þess að
liggja á tilfinningum sínum. Eyddu því tím-
anum ekki í volæði, heldur brettu strax um
ermarnar og taktu til þinna ráða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hættu að tala stöðugt um hlut-
ina og drífðu í framkvæmdum. Mundu að
það er hægt að ákveða að vera glaður.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að góð vinátta er gulli betri.
Í fyllingu tímans stendur þú uppi sem sig-
urvegari, þess er ekki langt að bíða.
ins 2012. Þá sameinaðist fyrirtækið
öðru fyrirtæki og nýir eigendur tóku
við. „Ég get ekki annað en verið
ánægður þegar ég lít um öxl yfir sögu
þessa fyrirtækis sem ég stofnaði og
léði mína starfskrafta í hálfa öld.
Þetta var framsækið fyrirtæki sem
veitti góða þjónustu á sanngjörnu
verði og veitti fjölda fólks atvinnu.“
Karl hefur starfað í Oddfellowregl-
unni frá 1947 eða í yfir 70 ár og gegnt
aðra aðila á sviði íslenskrar mat-
vælaframleiðslu. Þá unnum við fyrir
lyfjaiðnaðinn um langt árabil.“ Fyrir-
tækið var fyrst til húsa í Kópavogi en
flutti fljótlega í Hafnarfjörðinn og
þar var það lengst af til húsa í Bæjar-
hrauni 20. Reksturinn gekk vel,
fyrirtækið óx hratt og störfuðu þar
lengst af um 40 manns. Karl starf-
rækti fyrirtækið með sonum sínum,
Karli Magnúsi, Ara og Birni, til árs-
K
arl Jónasson er fæddur
23. desember 1919 í
Skuggahverfinu í
Reykjavík, eða nánar
tiltekið á Lindargötu
8B sem síðar varð númer 22B. Hann
ólst upp í foreldrahúsum við Lind-
argötuna til fimm ára aldurs en þá
fór hann austur að Hoffelli í Horna-
firði til móðursystur sinnar, Rögnu
Gísladóttur, og hennar manns, Leifs
Guðmundssonar. Hann var þar til tíu
ára aldurs en fór þá aftur til foreldra
sinna í Reykjavík. Fjölskyldan flutti
síðan í Miðstræti 6 þegar Karl var á
fermingaraldri. „Í Hoffelli var að-
allega fjárbúskapur en kúabú til
heimabrúks. Þarna leið mér af-
skaplega vel, enda hefur mér alltaf
þótt vænt um þetta fólk og ætíð borið
taugar til Hornafjarðar.“
Karl lauk barnaskólanámi við
Austurbæjarskólann, byrjaði að
vinna í Félagsprentsmiðjunni er
hann var þrettán ára, hóf þar nám í
prentiðn, fimmtán ára, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík og lauk
sveinsprófi 1939. Hann stundaði síð-
an nám við Flensborg í Hafnarfirði
1939-40 og lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann á Akureyri 1944.
Á menntaskólaárunum starfaði
Karl hjá Félagsprentsmiðjunni á
sumrin og var auk þess blaðamaður
við dagblaðið Vísi. Vorið 1945 tók
Karl við stöðu prentsmiðjustjóra
Prentsmiðju Björns Jónssonar á Ak-
ureyri sem þá var elsta starfandi
prentsmiðja landsins, stofnuð árið
1852. Hann var prentsmiðjustjóri og
framkvæmdastjóri prentsmiðjunnar
og lengst af aðaleigandi hennar fram
á haust 1960. Fjölskyldan flutti þá
suður og varð Karl yfirverkstjóri hjá
Félagsprentsmiðjunni í Reykjavík
1960-61. Hann stofnaði prentsmiðj-
una Karl M. Karlsson og Co árið
1962 sem árið 1970 var breytt í hluta-
félagið Vörumerking. Það sérhæfði
sig snemma í ýmiss konar sérhæfð-
um umbúðum og vörumerkingum.
„Fyrst voru þetta merkingar á lím-
miða en fljótlega urðu þetta vöru-
merkingar af mjög fjölbreyttu tagi.
Við unnum mikið fyrir Mjólkursam-
söluna, Osta- og smjörsöluna, Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna og ýmsa
þar mörgum trúnaðarstörfum. Karl
hefur alltaf haft mikinn áhuga á bók-
um og á veglegt bókasafn. „Ég hef
mest gaman af ævisögum og ýmsum
fróðleik en les líka glæpasögurnar
nýju. Ég er að byrja að lesa ævisög-
una um Paul Gaimard sem kom út
núna fyrir jólin. Annars var ég ekki
með nein sérstök áhugamál. Vinnan í
mínum fyrirtækjum tók mestan tíma
og fjölskyldan.“
Karl tekur á móti gestum kl. 17 í
dag í Félagsheimilinu Borgum,
Spönginni í Grafarvogi.
Fjölskylda
Eiginkona Karls var Guðný Ara-
dóttir, f. 10.4. 1919, d. 9.2. 2018, hús-
móðir. Foreldrar hennar voru hjónin
Ari Guðmundsson, f. 25.7. 1890, d.
5.11. 1975, skrifstofustjóri hjá Tób-
akseinkasölu ríkisins í Reykjavík og
Dýrleif Sesselja Rannveig Pálsdóttir,
f. 13.1. 1887, d. 8.5. 1976, húsfreyja.
Börn Karls og Guðnýjar eru sjö: 1)
Karl Magnús Karlsson, f. 24.7. 1945,
fv. framkvæmdastjóri, búsettur í
Garðabæ, maki: Rósa Pálína Sig-
tryggsdóttir, f. 12.5. 1947, leikskóla-
kennari. Þau eiga fjögur börn; 2)
Björg Karlsdóttir, f. 20.10. 1946, fv.
Karl Jónasson, fyrrverandi prentsmiðjustjóri – 100 ára
Börnin Aðfangadagur árið 1960, frá vinstri: Gísli Stefán, Björn, Eyjólfur, Ari, Rannveig, Björg og Karl Magnús.
Byrjaður að lesa jólabækurnar
Hjónin Guðný og Karl á heimili sínu um síðustu aldamót.
50 ára Ingibjörg er
Grindvíkingur og er
hjúkrunarfræðingur
og sjúkraflutninga-
maður að mennt. Hún
er deildarstjóri á
hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð og sjúkraflutn-
ingamaður í Grindavík. Ingibjörg situr í
öldrunarráði Grindavíkur.
Maki: Gylfi Hauksson, f. 1970, flotastjóri
hjá Camp-Easy.
Börn: Lísbet Elva Gylfadóttir, f. 1997, og
Katla Sif Gylfadóttir, f. 2001. Barnabarn
hennar er Davíð Þór Sigurbjörnsson, f.
2018, sonur Lísbetar.
Foreldrar: Sjöfn Ísaksdóttir, f. 1938, d.
2019, verkakona og leigubílstjóri, og
Þórður Magnússon, f. 1940, fv. bifreiðar-
stjóri. Hann er búsettur í Kópavogi.
Ingibjörg Ragnhildur
Þórðardóttir
Til hamingju með daginn
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA
GÓLFLAMPI MEÐ LESLJÓSI
Litir: króm, svart króm,bustað stál og antík
GÓLFLAMPAR
19.995kr.
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is