Fréttablaðið - 09.12.2002, Side 1
MYNDLIST
Lífsglaður
æringi
bls. 24
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 9. desember 2002
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Bíó 34
Íþróttir 18
Sjónvarp 38
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
VERÐLAUN Í dag verða í Stokkhólmi
afhent verðlaun sem nefnast á
ensku „Right Livelihood“. Þau eru
gjarnan nefnd „hin Nóbelsverð-
launin“ og eru veitt einstaklingum
og samtökum sem þykja hafa skar-
að fram úr í baráttunni fyrir friði,
mannréttindum og náttúruvernd.
Annars konar
Nóbelsverðlaun
OPINBERAR HEIMSÓKNIR George W.
Bush Bandaríkjaforseti fær Paavo
Lipponen, forsætisráðherra Finn-
lands, í heimsókn til sín í Was-
hington í dag. Í Moskvu tekur Vlad-
imír Pútín Rússlandsforseti hins
vegar á móti Leoníd Kútsma, for-
seta Úkraínu.
Forsetar fá gesti
Við getum haft
áhrif
RÁÐSTEFNA Klukkan fjögur síðdegis
hefst í Norræna húsinu ráðstefna
sem ber yfirskriftina „Forðum
börnum okkar frá eiturlyfjum – við
getum haft áhrif“. Rætt verður um
tengsl uppeldisaðferða við áfengis-
og vímuefnaneyslu barna og ung-
linga. Fyrirlesarar eru dr. Sigrún
Aðalbjarnardóttir prófessor, Hulda
Guðmundsdóttir hópmeðferðar-
stjóri, Dóra Guðrún Guðmunds-
dóttir, verkefnisstjóri Geðræktar,
og Marsibil Sæmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Götusmiðjunnar.
FRÉTTAVIÐTAL
Þurfum ekki
Golden Gate
MÁNUDAGUR
248. tölublað – 2. árgangur
bls. 30
BÆKUR
Að verða
stórskáld
bls. 40
FÓLK
bls. 34
Cruise er
stóra ástin
TÓNLIST
Eins og í
ævintýri
bls. 36
REYKJAVÍK Suðaustlæg átt
8-13 m/s og rigning öðru
hvoru. Hiti verður á bilinu 2
til 7 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Skýjað 5
Akureyri 3-8 Rigning 3
Egilsstaðir 8-13 Skýjað 3
Vestmannaeyjar 10-15 Rigning 5➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
FERÐALÖG Helgi Jóhannsson, fyrr-
um framkvæmdastjóri ferðaskrif-
stofunnar Samvinnuferða – Land-
sýnar, hefur sótt um ferðaskrif-
stofuleyfi til samgönguráðuneytis-
ins. Helgi hyggst stofna nýja
ferðaskrifstofu í samvinnu við son
sinn og gamlan samstarfsfélaga
hjá Samvinnuferðum:
„Ég vonast til að fá leyfið fyrir
áramót,“ segir Helgi og leggur
áherslu á að hvort sem hann geri
eitthvað nýtt eða gamalt í ferða-
málum þá ætli hann örugglega
ekki að fara troðnar slóðir: „Ég
ætla að byrja á því að afsanna þá
kenningu að ekki sé hægt að fá Ís-
lendinga til að taka sér orlof yfir
vetrartímann og ferðast innan-
lands. Hér liggja tækifærin út um
allt land – ónýtt,“ segir hann.
Helgi var framkvæmdastjóri
Samvinnuferða – Landsýnar í 19 ár
og er einn reyndasti ferðaskrif-
stofumaður landsins. Eftir að hann
dró sig í hlé frá ferðamálum fyrir
nokkrum árum hóf hann nám í Há-
skólanum í Reykjavík en er nú
komin í startholurnar á ný. Nýja
ferðaskrifstofan á að heita Exit. ■
Sækir um ferðaskrifstofuleyfi:
Ferðakóngur ætlar ótroðnar slóðir
ELDSVOÐI Í EDINBORG „Ég bý í um 15
mínútna göngufæri, en er í skóla
um 300 metrum frá staðnum,“
sagði Einar Skúlason, sem stundar
MBA-nám við Edinborgarháskóla.
Mikill eldur braust út í gamla bæ
borgarinnar í fyrrakvöld og olli
gífurlegu eignatjóni.
Einar, sem er 31 árs gamall, er
að byrja í prófum í dag og tók sér
stutt frí frá lærdómnum til að
ræða við blaðamann.
„Það voru mikil læti í gær-
kvöldi [laugardagskvöld] þegar
þetta byrjaði. Ég var hérna inni að
lesa og heyrði sírenur aftur og aft-
ur. Þeir lokuðu öllum nærliggj-
andi götum. Það fór allt úr skorð-
um þarna og svæðið er ennþá lok-
að,“ sagði Einar.
Fimm aðrir Íslendingar eru í
MBA-námi við háskólann og ætl-
uðu þeir að halda fund í gærkvöldi
til að fara yfir stöðuna sem væri
nú komin upp. „Við áttum vera í
prófum í húsi sem heitir Adam´s
House en það er brunnið og það er
verið að rífa það núna,“ sagði Ein-
ar. „Það er alveg ljóst að ég fer
ekki í próf í þessu húsi á morgun.
Maður er að bíða eftir því að vita
hvað verður. Ég átti að vera í sex
prófum alla vikuna í þessu húsi,
þannig að þetta breytir ýmsu. Svo
brann líka næturklúbbur og þar
átti að vera próflokapartí á
fimmtudagskvöldið.“
Einar sagði aðspurður að eng-
inn óbreyttur borgari hafi verið í
hættu í eldsvoðanum. „Þeir voru
mjög snöggir að loka svæðinu.
Slökkviliðsmenn í Bretlandi hafa
verið í verkföllum og samkvæmt
dagskránni áttu þeir að vera í
verkfalli núna. Þeir hættu við en
ég veit ekki hvernig þetta hefði
farið ef þeir hefðu verið í verk-
falli. Maður má helst ekki til þess
hugsa,“ sagði Einar. Hann segir að
húsin sem brunnu hafi verið í
hjarta gamla bæjarins. „Það fara
allir þarna sem koma til Edinborg-
ar. Það má segja að þetta sé ein af
aðalgötunum í borginni.“
Einar var að læra til klukkan
tvö í fyrrinótt þrátt fyrir eldsvoð-
ann, sem var nánast í næsta húsi.
Hann segir að hávaðinn hafi verið
mikill. „Þetta er samt ágætis
bygging til að læra í og maður var
líka með eyrnatappa. Það virkar
ágætlega.“ Nánar á bls. 2.
freyr@frettabladid.is
Með eyrnatappa í
miðjum eldsvoða
Einar Skúlason er í skóla um 300 metrum frá svæðinu þar sem gífurlegur eldsvoði varð í hjarta
gamla bæjarins í Edinborg á laugardagskvöld. Húsið þar sem hann átti að fara í próf er brunnið
sem og næturklúbburinn þar sem halda átti upp á próflokin.
JÓLASVEINAR SKEMMTA Jólasveinarnir svindluðu og mættu í bæinn snemma til þess að vera á staðnum þegar ljósin á jólatrénu við
Austurvöll voru kveikt í gær. Þeir fögnuðu því að búið var að bæta sviðið sem þeir skemmta á árlega. Margmenni var í bænum þegar
ljósin voru kveikt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Harðir pakkar
Skeifan 8, sími: 568 2200, www.babysam.is
SLÖKKVISTARF
Slökkviliðsmenn áttu í miklum erfiðleikum
með að ráða niðurlögum eldsins í gær.
AP
/M
YN
D
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49 ára
samkvæmt fjölmiðlakönnun
Gallup frá október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa
25 til 49 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu
á mánudögum?
73%