Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 22
22 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL Guðmundur Hallvarðs-
son hefur að undanförnu kveðið sér
hljóðs í sölum Alþingis um Sunda-
braut. Meðal annars hefur hann
haldið uppi fyrirspurnum til Sturlu
Böðvarssonar samgönguráðherra
og knúið svara um hvenær fram-
kvæmdir hefjist. „Á álagstímum er
umferð um Ártúnsbrekku gífurlega
mikil og ekki síður hættuleg. Því tel
ég ákvörðun um framkvæmd
Sundabrautar mjög brýna. Við verð-
um að gera okkur grein fyrir að um
Vesturlandsveg fara 20.000 bílar á
dag. Það létti vissulega aðeins á um-
ferð þegar mislægu gatnamótin við
Vikurveg og Vesturlandsveg voru
byggð en það er ljóst að vegurinn er
þrátt fyrir það sprunginn.“
Reykjavík ekki San Francisco
Samkvæmt útreikningum Línu-
hönnunar frá nóvember 2000 kostar
vegtengingin frá Sæbraut að Halls-
vegi 9,1 milljarð miðað við ytri leið
en 6,3 milljarða miðað við þá innri.
Guðmundur hefur gagnrýnt hug-
mynd meirihluta Reykjavíkurborg-
ar um að reist verði hábrú á ytri
leiðinni og segir þá hugmynd and-
stæða því sem samgönguráðneytið
leggi til. „Á sama tíma og tafir eru á
hinum ýmsu framkvæmdum sem
stuðla að auknu öryggi í umferðar-
málum er verið að horfa á eitthvert
fagurfræðilegt sjónarmið. Ef því
sjónarmiði yrði sleppt myndu þrír
milljarðar sparast. Ég get alveg séð
þessa fjármuni fara eitthvað annað.
Við þurfum ekki Golden Gate-líki í
Reykjavík.“ Guðmundur leggur
áherslu á að auk þess að létta á um-
ferð og öryggi sé nauðsynlegt að
fleiri en ein leið sé út úr borginni.
Þegar Guðmundur er spurður út
í hvaða forgangsröðun hann vildi
sjá í umferðarmálum nefnir hann
gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. „Þetta eru
stórhættuleg gatnamót og um þau
fara 80.000 bílar á dag. Af ein-
hverjum óskiljanlegum ástæðum
eru borgaryfirvöld allt of lengi að
koma þessu verki frá sér.“ Guð-
mundur telur afar brýnt að meðan
ekki er tekin ákvörðun um mislæg
gatnamót verði sett upp beygju-
ljós. Það myndi vissulega hægja á
umferð en Guðmundur telur það
fórnarkostnað sem væri vel þess
virði. Öryggi myndi aukast til
muna.
Eðlilegt að fjármagn
minnki til nágrannabyggða
Guðmundur talar um samstöðu ná-
grannasveitarfélaga í umferðar-
málum og aukinn þunga umferðar
á Reykjanesbraut frá gatnamótum
Breiðholtsbrautar að Hafnarfjarð-
arvegi. „Nágrannasveitarfélög
Reykjavíkur verða að viðurkenna
að eðlilegt sé að fjármagn til þeirra
minnki um einhvern tíma meðan
verið er að koma þessum um-
ferðaræðum inn í höfuðborgina í
gott lag. Við vitum að stór hópur
þessa fólks í nágrannabæjum
Reykjavíkur sækir inn í borgina,
bæði vinnu og þjónustu. Bætt um-
ferð er ekki eingöngu mál Reykvík-
inga. Þingmenn þessara nágranna-
byggða verða að leggjast á eitt til
að flýta framkvæmdum svo auð-
velt verði að komast til borgarinn-
ar.“ Aðspurður segir Guðmundur
enga vankanta á samstöðu þing-
manna. „Nú er það svo að þegar
vegamálastjóri er að kalla til þing-
menn kjördæma, til að fara yfir
þær áætlanir sem eru á prjónun-
um, hafa þingmenn Reykjavíkur og
Reykjaness oftar en ekki hist og
farið yfir málin. Hafa þeir reynt að
sameinast um niðurstöður fram-
kvæmda sem tengja þessi byggðar-
lög. Ég vona einungis að þessi sam-
staða haldi áfram þrátt fyrir breyt-
ingu á skipan kjördæma.“
kolbrun@frettabladid.is
Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður Reykjavíkur
og formaður samgöngunefndar, hefur kveðið fast
að orði þegar kemur að umferðarmálum.
Í sölum Alþingis hefur hann meðal annars
haldið uppi fyrirspurnum um Sundabraut og knúið
á að ákvörðun verði tekin sem fyrst um hvernig þeirri
framkvæmd verði hagað. Í viðtali við Fréttablaðið
fjallar Guðmundur um þessi mál auk annarra sem
tengjast auknu öryggi í umferðarmálum.
Þurfum ekki
Golden Gate í Reykjavík
GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON
Sundabraut er hugsuð sem vegtenging
milli Vogahverfis og Gufuness. Hugmynd
að lagningu brautarinnar hefur verið mörg
ár í burðarliðnum. Nefnd á vegum Reykja-
víkurborgar og Vegagerðarinnar hefur verið
með málið til skoðunar.
Þetta eru stórhættuleg
gatnamót og um þau fara
80.000 bílar á dag. Af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum eru
borgaryfirvöld allt of lengi að
koma þessu verki frá sér.
,,