Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 44
9. desember 2002 MÁNUDAGUR
S M Á R A L I N D
s í m i 5 4 4 2 1 4 0
12
82
/
T
A
K
T
ÍK
2
6.
11
´0
2
Hnífaparasett
Margar tegundir
18/10 GÆÐASTÁL
kr. 10.790.-
24 stk.
Við björgum því
sem bjargað verður
H á a l e i t i s b r a u t 5 8 - 6 0 S : 5 5 3 1 3 8 0
JÓLAGJAFIR „Ég fór í Kringluna og
sá kastala með Öskubusku og
prinsinum sem mig langar dálítið
að fá í jólagjöf,“ segir Högna
Jónsdóttir, 5 ára. „Mér finnst
þessi kastali svo fallegur og
skemmtilegur. Það er Barbie-
prinsessa í fínum kjól og Barbie-
prins í honum en ég þarf ekki að
fá hestinn því ég á hest,“ segir
Högna, sem leikur sér mikið með
Barbie-dúkkur. „Ég vona að
pabbi minn hafi keypt kastalann
til að gefa mér í jólagjöf en ég er
ekki alveg viss hvort hann gerði
það.“ ■
HÖGNA JÓNSDÓTTIR
Langar í kastala með Öskubusku
og prinsinum.
GÓÐGERÐARMÁL „Það kom bara
fimm þúsund króna ávísun inn um
lúguna, matarúttekt í Bónus, og
ég var fljótur að kaupa mér eitt og
annað til jólanna. Ekki veitir af,“
segir Hreiðar Sigmarsson öryrki.
Hreiðar segir ávísunina komna
í gegnum Mæðrastyrksnefnd og
sé hluti veglegrar gjafar Jóhann-
esar í Bónus sem gaf 50 milljónir
til nefndarinnar fyrir skömmu.
Hluta þeirrar upphæðar sé deilt
meðal öryrkja. „Jóhannes í Bónus
er þvílíkur höfðingi auk þess sem
hann lætur ekki sitja við orðin
tóm og hefur staðið fyrir lækkun
á verði matvöru. Og svo er hann
ofsóttur af þessari íhaldsstjórn
sem féflettir okkur öryrkja og
ellilífeyrisþega á allan hugsanleg-
an og óhugsanlegan hátt,“ segir
Hreiðar og vísar meðal annars til
vísitöluhækkunar í kjölfar þess að
verð á tóbaki og áfengi hækkaði
nýverið. Hreiðar segir þetta jafn-
framt stórkostlega gjöf sem komi
sér mjög vel og líklega fáir sem
geri sér grein fyrir því hversu
hátt hlutfall fimm þúsund krónur
eru af ráðstöfunarfé öryrkja. ■
Jólasveinninn kemur snemma til byggða:
Öryrkjar fá 5 þúsund
krónur frá
Jóhannesi í Bónus
HREIÐAR SIGMARSSON
Hann efast um að allir geri sér grein fyrir
þvílíkur höfðingi Jóhannes í Bónus er.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Öskubuskukastala
ÞÓREY BJARNADÓTTIR
Loksins getur hún farið að heimsækja ættingja, umgangast afkomendur og ferðast dálítið.
Alltaf mætt í vinnu
Þórey Bjarnadóttir hefur starfað hjá Happdrætti Háskólans í fimmtíu
ár. Hún er tæplega áttræð og ætlar að láta af störfum um áramót. Hún
er full eftirvæntingar og hlakkar mjög til að njóta lífsins og ferðast.
HAPPDRÆTTISKONAN „Mér reiknast
það til að í desember séu fimmtíu
ár síðan ég hóf störf hjá Happ-
drætti Háskóla Íslands,“ segir
Þórey Bjarnadóttir, sem hefur
starfað í Kjörgarði frá því húsið
opnaði. Þórey varð snemma ekkja
eftir Má Ríkharðsson arkitekt og
hún segir að ekki hafi verið um
annað að ræða en fara út að vinna.
„Ég var tæplega þrítug þegar ég
byrjaði að vinna hjá Happdrættinu
og var fyrst hjá Guðmundi Gamal-
íelssyni en fluttist síðar í Kjör-
garð. Ég hef kunnað mjög vel við
mig í húsinu allar götur frá því það
var opnað. Það hefur að vísu ýmis-
legt breyst en ætli ég hafi ekki
breyst með því,“ segir Þórey og
hlær.
Mörgum góðum manninum hef-
ur Þórey kynnst á þessum fimmtíu
árum og til hennar kemur ákveð-
inn kjarni sem alltaf endurnýjar
miðana sína reglulega um mánaða-
mót þrátt fyrir tölvur og internet.
„Það er fólk sem vill ekki breyta
neinu og treystir því best að mið-
inn sé endurnýjaður augliti til
auglits við mig. Jú, jú, það kom oft
fyrir að ég væri beðin um að
geyma miðana og menn stóðu
alltaf við að koma og borga. Það
hafa aldrei verið nein vandræði í
kringum það,“ segir Þórey.
Um áramótin ætlar hún að láta
af störfum og segist hún hlakka
mikið til. „Ég hef alltaf mætt í
vinnuna nema í þau fáu skipti sem
ég hef fengið flensu. Mér finnst
því kominn tími til að ég fari að
gera eitthvað skemmtilegt fyrir
sjálfa mig.“
Þórey er ekki í vafa um að gam-
an verði að eiga tíma fyrir sig og
óttast ekki leiðindi á daginn. „Jú,
víst verða þetta viðbrigði, en ég
hef lengi hlakkað til að geta verið
meira með afkomendum mínum.
Börnin mín eru orðin hálfgerð
gamalmenni eins og ég því ég var
svo ung þegar ég átti þau.“ Þórey
hefur einnig hugsað sér að ferðast
í ellinni og heimsækja ættingja.
„Ég veit að það verður gaman og
er full tilhlökkunar þó vissulega
eigi ég eftir að sakna allra þeirra
góðu kvenna sem eru hér í húsinu.
En ég get þá bara komið í heim-
sókn ef söknuðurinn sækir á mig.“
bergljot@frettabladid.is
Forðum börnunum okkar frá eiturlyfjum
– við getum haft áhrif !
Mánudaginn 9. desember kl. 16-18
verður haldin í Norræna húsinu ráðstefna sem ber yfirskriftina:
Forðum börnunum okkar frá eiturlyfjum – við getum haft áhrif.
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir
og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá:
Ávarp: Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Erindi og fyrirlesarar eru eftirfarandi:
1. Forðum börnum okkar frá eiturlyfjum – við getum haft áhrif.
– Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor.
2. Forvarnir á meðgöngu og fyrstu ár nýja barnsins.
– Hulda Guðmundsdóttir félagsráðgjafi, sérgrein sállækningar.
3. EGO – vertu þú sjálfur
– Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Geðræktar.
4. Meðferðarúrræði Götusmiðjunnar
– Marsibil Sæmundsdóttir, varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri
Götusmiðjunnar
Pallborðsumræður:
Stjórnandi Jónína Bjartmarz,
þingmaður og formaður Heimilis og skóla.
Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna