Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 4
4 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
ÚTLÖND
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
SAMÚEL
BESTUR
Skáldsaga Mikaels
Torfasonar fær ís-
lensku bók-
menntaverðlaunin
ef marka má les-
endur á frett.is.
Hvaða skáldverk fær íslensku
bókmenntaverðlaunin?
Spurning dagsins í dag:
Ertu búin(n) að kaupa jólagjafirnar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
13,2%Hvar sem ég verð
10,5%Leiðin til Rómar
23,7%LoveStar
44,7%Samúel
7,9%Sveigur
VEGSUMMERKIN RANNSÖKUÐ
Hollenska lögreglan rannsakar hvernig
þjófarnir báru sig að.
Brotist inn í Van Gogh-safnið:
Tveimur mál-
verkum stolið
AMSTERDAM Tveimur málverk-
um eftir hollenska listamanninn
Vincent Van Gogh var stolið úr
Van Gogh-safninu aðfaranótt
laugardags. Verð-
mæti málverkanna
er talið margir
milljónir dollara.
Þjófnaðurinn upp-
götvaðist snemma á
laugardagsmorgun,
tveimur tímum
áður en safnið opn-
aði. Lögreglan girti
svæði í kringum
safnið af vegna
þess að jafnvel var
talið að þjófurinn
væri enn inni.
Safnið, sem starfað hefur frá
1973, hefur að geyma stærsta safn
verka eftir Van Gogh. Lögreglan
vinnur nú að rannsókn málsins og
vonast meðal annars til þess að
myndbandsupptökur öryggis-
myndavéla gefi vísbendingar um
þjófana. Þetta er annar stórþjófn-
aður í Hollandi á innan við viku. Á
mánudag létu þjófar greipar sópa
26 LÁTNIR 26 kolanámumenn hafa
fundist látnir eftir að eldur braust
út í kolanámu í norðausturhluta
Kína í síðustu viku. Nokkurra
manna er enn saknað. Rannsókn
stendur yfir á upptökum eldsins.
BAGDAD, AP Þrjú eintök af hnaus-
þykkri skýrslu Íraksstjórnar var í
gær flutt með flugvél frá Bagdad
til Kýpur, þar sem vopnaeftirlit
Sameinuðu þjóðanna hefur höfuð-
stöðvar sínar. Þaðan voru svo tvö
eintakanna flutt til höfuðstöðva
Sameinuðu þjóðanna í New York,
en þriðja eintakið fór til Vínar-
borgar þar sem Alþjóðakjarn-
orkustofnunin hefur aðsetur.
Írakar segja að í skýrslunni sé
tæmandi greinargerð fyrir þeim
kjarnorku-, efna- og sýklavopnum
sem þeir hafa reynt að afla sér.
Bandaríkjastjórn segist fyrir
fram ekki trúa yfirlýsingum
Íraka um að þeir hafi engin slík
vopn í fórum sínum nú.
„Ég ítreka að Írak er ekki með
nein gereyðingarvopn,“ sagði
Hossam Mohammad Amin hers-
höfðingi, sem hafði umsjón með
gerð skýrslunnar.
Mohammed Baqir al-Hakim,
leiðtogi íraskra stjórnarandstæð-
inga í Íran, sagðist hins vegar í
gær hafa undir höndum sannanir
um að stjórn Íraks hefði gereyð-
ingarvopn í felum. Hann sagði að
Saddam Hussein væri eingöngu
að kaupa sér tíma með því að sýna
vopnaeftirlitinu samvinnu.
Á föstudaginn sendi Saddam
Hussein Íraksforseti óvænt frá
sér afsökunarbeiðni til Kúvæts
vegna innrásar Íraks árið 1990.
Hernám Kúvæts varð tilefni
Persaflóastríðsins í ársbyrjun
1991.
Jafnframt bætti hann því við
að fjandsamleg stefna Kúvæts
gagnvart Írak hefði átt sök á inn-
rásinni.
Upplýs ingamálaráðherra
Kúvæts sagðist ekkert mark taka
á þessari afsökunarbeiðni.
Vopnaeftirlitið hófst seint í
nóvember eftir að hafa legið niðri
í fjögur ár. Vopnaeftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna fóru frá Írak
árið 1998 eftir að Írakar höfðu
komist að því að bandarískir eftir-
litsmenn hefðu notfært sér að-
stöðu sína til þess að njósna fyrir
leyniþjónustu Bandaríkjanna. ■
12.000 síðna lesning bíður ráðamanna á Vesturlöndum:
Írakar skiluðu skýrslunni
MENNTUN „Við höfum fengið marg-
ar kvartanir frá nemendum sem
eru mjög óhressir með að það hafi
verið fellt niður,“ sagði Stefán B.
Sigurðsson, varaforseti lækna-
deildar Háskóla Íslands, aðspurð-
ur um viðbrögð við niðurfellingu
hluta af úrtökuprófi 1. árs nema í
læknisfræði.
Um er að ræða sálfræðihluta
prófsins. Hann átti að gilda þriðj-
ung af þessum prófhluta, sem alls
gildir 20% af úrtökuprófinu. Hin-
ir tveir hlutar prófsins snerust
annars vegar um almenna þekk-
ingu, þar sem spurningin um bar-
bapabba kom m.a. fram, og um
siðfræðileg álitaefni. Vægi þess-
ara tveggja hluta aukast því í 10%
hvor.
Að sögn Stefáns eykst því vægi
barbapabbaspurningarinnar úr
0,06% í 0,08%. Segir hann það
geta oltið á svona litlum breyting-
um hvort nemandi lendi í 48. eða
49. sæti í úrtökuprófinu og komist
þannig inn í læknadeild eður ei.
Þess má geta að aðeins þrír af 166
nemendum svöruðu barbapabba-
spurningunni rangt.
Að sögn Stefáns stefnir lækna-
deild háskólans að því að halda
sálfræðihlutanum áfram á inn-
tökuprófi næsta vors þrátt fyrir
gagnrýni nemenda um að sá hluti
hafi verið greindarpróf en ekki
sálfræðipróf.
Læknanemar verða prófaðir í
hinum 80% úrtökuprófsins í þess-
ari viku. Niðurstöðu úr öllu próf-
inu er síðan að vænta fyrstu vik-
una í janúar. ■
Hveragerði, Ölfus og
Grindavík í eina sæng:
Formaður
vill heilsu-
þríhyrning
HUGMYND „Á þessu svæði er
gríðarleg orka sem ég vildi sjá
beislaða í margvíslegum skilingi,“
segir Árni Magnússon, formaður
bæjarráðs Hveragerðis, sem hef-
ur kastað fram þeirri hugmynd að
ef til vill væri best að sameina
bæjarfélögin í Hveragerði, Ölfusi
og Grindavík. „Nýr Suðurstranda-
vegur myndi tengja þessi svæði
öll sem eiga margt sameiginlegt
og þá helst í heilsustarfsemi alls
konar. Ég sé fyrir mér heilsuþrí-
hyrning sem gæti boðið upp á það
besta í þessum efnum og bein-
tengingu við Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar.“ segir Árni, sem bíður
nú viðbragða bæjarstjórnar-
manna í nágrannabæjarfélögun-
um.
Suðurstrandavegurinn, sem
tengja myndi bæjarfélögin, hefur
enn ekki verið byggður en á hon-
um stendur og fellur hugmynd
Árna: „Hér hafa bæjarfélögin
verið að sameinast allt í kringum
okkur og við sitjum eftir. Í Hvera-
gerði, Öfusi og Grindavík búa
álíka margir, um tvö þúsund
manns á hverjum stað, og á svæð-
inu felast miklir möguleikar, mik-
il orka og mikil framtíð.“ ■
VERSLUN Það var jólalegt um að lit-
ast í miðbænum í gær. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
kveikti á Oslóartréinu á Austur-
velli en Oslóarbúar færðu Reyk-
víkingum tré í 51. skipti. Vegfar-
endur Lækjartorgs urðu einnig
varir við stórt tjald sem þakti
stóran hluta torgsins. Það er hluti
af átaki Þróunarfélags miðborg-
arinnar, hagsmunafélagi fyrir-
tækja á svæðinu, til þess að gera
verslunarferð í miðbæinn eftir-
sóknarverðari.
Dagný Jónsdóttir, sem var
mætt í fyrsta jólaverslunarleið-
angurinn ásamt dóttur sinni Elvu
Björk og Eyrúnu vinkonu þeirra,
líkti stemningunni í tjaldinu við
Kolaportið nema hvað þetta væri
minna og vinalegra. „Mér finnst
svona hafa vantað. Það er alltaf
gott að koma í miðbæinn,“ sagði
hún glöð í bragði. „Ég fer oft í
Kolaportið og það vantaði eitt-
hvað svona sem gefur manni
tækifæri á að kíkja á fallega hluti
sem ekki eru til sölu í búðunum.“
Sölumenn í tjaldinu hrósuðu
framtakinu og sögðu mikinn
straum fólks hafa rennt sér í gegn
í gær. Tjaldið verður opið alla
sunnudaga fram að jólum og á
Þorláksmessu frá kl. 13-22. Þar
selja hinir ýmsu heildsalar vörur
sínar auk þess sem skemmtikraft-
ar sjá um að koma gestum í jóla-
skapið. Sérstakir lampar og hitar-
ar sjá svo um að hita upp gesti
sem skríða inn úr vetrarkuldan-
um. Fjöldi manns safnaðist saman
til að fylgjast með skemmtiatrið-
um á Austurvelli eftir að kveikt
hafði verið á Oslóartréinu. Jóla-
sveinar skemmtu börnum og full-
orðnum með söng og glensi að
þeirra hætti. ■
Jólalegt í miðbænum
STOLIÐ
Annað tveggja
verka sem
stolið var úr
safninu.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Vægi barpabbaspurningar í læknadeild
eykst.
Hluti úrtökuprófs læknanema felldur niður:
Nemendur mjög óhressir
AP/JERO
M
E D
ELAY
STARFSMENN YFIRGEFA VERKSMIÐJU
Starfsmenn eiturefnaverksmiðju í Írak
fengu frí í vinnunni í gær þegar vopnaeftir-
lit Sameinuðu þjóðanna mætti á staðinn.
FYLGST MEÐ
JÓLASVEINUM
Krakkar fjölmenntu
á Austurvöll í gær.
Það var líf og fjör í
miðbænum í gær.
Kveikt var á jólatré á
Austurvelli eins og
venja er og nýtt sölu-
tjald á Lækjartorgi
var opnað..
SANDRA OG JÓHANNA
Sandra og Jóhanna seldu ýmsa muni, þar
á meðal listaverk, skartgripi og geisladiska.
Þær sögðust fagna því að stöðugur
straumur fólks var í tjaldinu í allan gærdag.
EYRÚN, ELVA OG DAGNÝ
Dagný Jónsdóttir var í sínum fyrsta verslunarleiðangri ásamt dóttur sinni Elvu Björk og
Eyrúnu vinkonu hennar.
HVERAGERÐI
Formaður bæjarráðs með nýstárlegar hug-
myndir og vill beisla orku í margvíslegu
skilningi.