Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 12
12 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
PERSÓNUVERND Persónuvernd gerir
engar athugasemdir við störf Um-
ferðarstofu sem sendir frá sér
lista með nöfnum og heimilisföng-
um þeirra sem skráðir eru fyrir
ökutækjum, sé þess óskað. Bjarni
Eiríksson, lögfræðingur hjá Per-
sónuvernd, vildi þrátt fyrir það
vekja athygli á að Umferðarstofa
væri ný stofnun sem tekið hefði
við af Skráningarstofu. „Við send-
um bréf í byrjun nóvember þar
sem óskað var eftir upplýsingum
um hvernig stofnunin hagar hjá
sér allri upplýsingagjöf og hvernig
hún ætli að haga þessum málum í
framtíðinni.“
Fréttablaðið skýrði frá því að
Sigríður Kristjánsdóttir hefði far-
ið fram á lista þar sem nöfn þeirra
sem væru skráðir eigendur að
Audi 80 árgerð 1987 komi fram.
Þetta gerði hún eftir að bíl hennar
var stolið, að því er virðist í þeim
tilgangi að taka úr honum vara-
hluti. Sigríður fékk listann um-
svifalaust sendan. Telur hún slíkan
lista gera þjófum auðveldara fyrir.
Birgir Hákonarson hjá Um-
ferðarstofu telur að heldur hafi
verið tekið sterkt til orða þegar
sagt var að Umferðastofa væri að
upplýsa þjófa. Hann segir fjölda
manns hafa hringt eftir að fréttin
birtist og óskað eftir nafnleynd.
Birgir segir ökutækjaskrá eiga að
vera gagnlega og notast í réttum
tilgangi. „Við erum að miðla upp-
lýsingum úr skránni í markaðs-
legu tilliti til margra aðila. Að
sjálfsögu er alltaf hægt að mis-
nota slíka skrá. Sé það gert er auð-
velt að rekja það til þess er það
gerir.“ ■
Persónuvernd gerir ekki athugasemd við Umferðarstofu:
Fjöldi hefur óskað
eftir nafnleynd
AUDI-BÍLL SIGRÍÐAR
Bíllinn hennar Sigríður var heldur illa farinn þegar hún loksins fann hann í hvarfi við
skíðalyfturnar í Efra-Breiðholti. Búið var að taka úr honum ýmsa varahluti og eyðileggja
stýrisvélina.
AKRANES
Innflytjandi dansks sements vísar ásökun-
um Skagamanna um undirboð á bug og
segir óþolandi að ríkisfyrirtæki ástundi
dylgjur af þeim toga.
Aalborg Portland
mótmælir:
Nær að fagna
samkeppni
VIÐSKIPTI Aalborg Portland Íslandi,
APÍ, vísar á bug ásökunum bæjar-
ráðs Akraness um óeðlilegt undir-
boð og að sement sé selt til Íslands
undir kostnaðarverði. Í yfirlýsingu
APÍ segir að framleiðandi sements-
ins í Danmörku selji sement til 70
landa víðs vegar um heim, þar á
meðal til fjölmargra landa Evrópu.
Ísland njóti sambærilegra kjara við
önnur ríki Evrópu og svo verði um
ókomna tíð.
Talsmenn APÍ segja að eftir ótví-
ræða niðurstöðu samkeppnisyfir-
valda sé óþolandi að fyrirtæki í eigu
íslenska ríkisins ástundi dylgjur og
beri fram ósannar fullyrðingar. Ís-
lensk samkeppnisyfirvöld hafi fjall-
að um málið og telji ekki aðgerða
þörf. APÍ hafi fylgt samkeppnislög-
um og málið sé til umfjöllunar hjá
Eftirlitsstofnun EFTA. Þá segir að
bæjarráð Akraness hafi uppi
ósæmilegar og meiðandi ásakanir í
garð Aalborg Portland um að leggja
Sementsverksmiðjuna að velli og í
kjölfarið hækka sementsverð. APÍ
segir málflutning Skagamanna frá-
leitan og segir hyggilegra að fagna
samkeppni á íslenskum sements-
markaði fremur en að gagnrýna
Aalborg Portland. ■
DÓMSMÁL Skipstjórinn á skemmti-
skipinu m/s Carlsberg hefur verið
sviptur skipstjórnarréttindum í
sex mánuði fyrir að vera ölvaður
við skipstjórnina.
Maður sem fylgdist með þegar
Carlsberg lét úr höfn í Reykjavík
laugardagskvöld eitt í júní í sum-
ar veitti athygli óstyrkri stjórn
skipsins. Hann sagði litlu hafa
mátt muna að Carlsberg lenti utan
í bryggjunni. Síðan hafi skipið
farið utan í bát sem lá við bryggj-
una. Um borð voru sautján far-
þegar á leið á sjóstangaveiðar.
Skipstjórinn viðurkenndi að
hafa drukkið bjór nóttina áður og
einn bjór í skipinu sjálfu. Í blóði
hans mældist áfengismagn vera
0,98 prómill. Allt frá árinu 1983
hefur maðurinn, sem í dag er 38
ára, ítrekað verið sviptur ökuleyfi
og dæmdur í fangelsi vegna ölv-
unaraksturs, síðast í mars á þessu
ári.
Auk sviptingu skipstjórnar-
réttindanna á skipstjórinn að
greiða 75 þúsund krónur í sekt.■
Skipstjórinn á m/s Carlsberg sviptur réttindum:
Á bjórfylleríi með
sautján farþega
FLATEYRI
Þar hefur um nokkurt skeið verið skortur á
læknum. Yfirlæknirinn vonast til að fá
læknanema til starfa um hátíðarnar.
Læknaskortur á Ísafirði:
Aðeins fjórir
í stað sex
HEILBRIGÐISMÁL Á Ísafirði hefur
verið viðvarandi læknaskortur
um skeið og eru aðeins tveir sér-
menntaðir heimilislæknar þar að
störfum.
Hallgrímur Kjartansson, yfir-
læknir á Heilsugæslustöðinni,
segist hafa frestað uppsögn sinni
um þrjá mánuði eins og læknarnir
í Hafnarfirði. „Við erum aðeins
tveir sem höfum sérmenntun, ég
og Lýður Árnason, læknir á Flat-
eyri, sem einnig sinnir Þingeyri í
forföllum læknisins þar. Auk þess
eru í starfi tveir læknar sem ekki
eru með sérmenntun en undir
eðlilegum kringumstæðum eiga
að vera sex sérmenntaðir læknar.
Um hátíðarnar á ég von á að við
fáum nema til starfa sem létta á
því álagi sem við höfum búið við.
Hallgrímur telur að erfitt muni
verða á næstu árum að fá heimil-
islækna til starfa. „Við erum ein-
faldlega að súpa seyðið af því
ástandi sem verið hefur. Ungir
læknar fara ekki til náms í heimil-
islækningum fyrr en gengið hefur
verið frá samningum við heil-
brigðisráðneytið um sjálfstæði
heimilislækna. Það tekur minnst
fimm til tíu ár að skila sér inn í
stéttina,“ segir Hallgrímur. ■
NEYTENDAMÁL Það getur munað allt
að 30% á heitavatns- og rafmagns-
kostnaði íbúa í landinu samkvæmt
könnun Neytendasamtakanna.
Samtökin gerðu könnun þar
sem gengið var út frá fyrir fram
gefnum forsendum. Um er að
ræða fjölskyldur í tíu bæjarfélög-
um sem búa í 150 fermetra stein-
húsum og nota sama magn af raf-
magni og hita. Átta veitur þjóna
þessum svæðum, annað hvort
bæði með rafmagni og hita eða
öðru hvoru.
Þegar vatns- og rafmagnsnotk-
un var skoðuð kom í ljós að mun-
urinn á ódýrasta og dýrasta sveit-
arfélaginu er tæplega 30% eða um
24.000 krónur á ársgrundvelli.
Hafnfirðingar sluppu með tæpar
82 þúsund krónur en Reyknesing-
ar greiða samkvæmt sama mæli-
kvarða tæpar 106 þúsund krónur.
Hafnfirðingar kaupa rafmagn af
Hitaveitu Suðurnesja en heitt
vatn af Orkuveitu Reykjavíkur.
Selfyssingar, Reykvíkingar og
Kópavogsbúar búa við svipað
verð og Hafnfirðingar, greiða 83
til 85 þúsund krónur fyrir heitt
vatn og rafmagn.
Ef aðeins er skoðað raforku-
verð sést að Hitaveita Suðurnesja
er með lægsta verðið en Rarik
með það hæsta. Íbúar Hafnar-
fjarðar og Reykjanesbæjar búa
því við lægsta raforkuverðið en
íbúar Egilsstaða, Borgarbyggðar
og Sauðárkróks við hæsta raf-
orkuverðið. Munurinn er 45%.
Þegar verð hitaveitna er skoð-
að er munurinn enn meiri eða ná-
lægt 74%. Selfossveitur eru með
lægsta verðið en Hitaveita Suður-
nesja það hæsta. Íbúar Selfoss
búa því við 74% lægra hitaveitu-
verð en íbúar Reykjanesbæjar.
Hitaveita Suðurnesja hefur
mótmælt upplýsingum sem fram
koma í könnuninni og sagt þær
mjög villandi og sumar beinlínis
rangar. Forstjóri Hitaveitu Suður-
nesja segir að bæði sé ætlað of
mikið magn til hitunar viðmiðun-
arhúsnæðis í könnuninni og þá sé
ekkert tillit tekið til nýtingar, hita-
stigs vatns eða annars sem veru-
legu máli skipti í öllum saman-
burði. the@frettabladid.is
Hafnfirðingar með
lægsta orkukostnaðinn
Munar allt að 30% á hita- og rafmagnskostnaði landsmanna samkvæmt
könnun Neytendasamtakanna. Allt að 45% munur á orkuverði einstakra
rafveitna. Munurinn tæplega 74% á einstökum hitaveitum.
HAFNARFJÖRÐUR
Hafnfirðingar komu best út úr könnun Neytendasamtakanna á verði hita og rafmagns.
Þeir greiða lægsta raforkuverðið af þeim sem voru í úrtaki Neytendasamtakanna en heita
vatnið er í dýrari kantinum.
RAFMAGNS- OG HITAKOSTNAÐUR
Bæjarfélag Rafmagn Hiti Samtals Munur á
á ári lægsta verði
Hafnarfjörður 31.444 50.471 81.915
Selfoss 39.904 42.745 82.649 0,9%
Reykjavík/Kópav. 34.427 50.471 84.898 3,6%
Sauðárkrókur 45.577 47.311 92.888 13,4%
Borgarbyggð 45.577 50.471 96.048 17,3%
Ísafjörður 37.017 68.246 105.262 28,5%
Egilsstaðir 45.577 59.997 105.574 28,9%
Akureyri 33.639 71.945 105.583 28,9%
Reykjanesbær 31.444 74.290 105.734 29,1%
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Skipstjórinn á Carlsberg viðurkenndi að
hafa drukkið bjór.
Ólafur F. Magnússon:
Vill vita um
orkuverð
ORKUVERÐ Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi F-lista, telur óviðun-
andi að borgarfulltrúar séu ekki
upplýstir um orkuverð frá Kára-
hnjúkavirkjun.
„Sem kjörinn fulltrúi Reykvík-
inga geri ég kröfu um að fá nú þeg-
ar upplýsingar um áætlað kostnað-
arverð og líklegt söluverð orku frá
Kárahnjúkavirkjun til að geta gætt
brýnna hagsmuna borgarbúa,“
segir Ólafur. „Ótækt er að með því
að leyna grundvallarupplýsingum
sé reynt að knýja fram svo afdrifa-
ríka framkvæmd sem almenningi
og sérstaklega Reykvíkingum er
ætlað að bera ábyrgð á.“ ■