Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 35
Leikstjórinn Kevin Smith hefursamþykkt að taka þátt í gerð
handritsins fyrir þriðju „Scary
Movie“ gamanmyndina. Hann á að
hafa stokkið á tækifærið að vinna
með David Zucker sem líklega er
þekktastur fyrir mynd sína
„Airplane“. Að mati Smith er það
fyndnasta mynd allra tíma.
Nýjasta Hollywoodparið er leik-ararnir ungu Heath Ledger, úr
„Knights Tale“, og Naomi Watts,
úr „Mulholland
Drive“. Þau eru
víst ákaflega skot-
in og keyptu sér
nýlega hús á fín-
um stað í Los Ang-
eles. Einnig er tal-
að um að vinurinn
Matthew Perry og
mótleikkona hans
úr „The Whole Nine Yards“, Am-
anda Peet, séu að slá sér upp. Þar
hafið þið það.
35MÁNUDAGUR 9. desember 2002
SÍMI 553 2075
RED DRAGON kl. 10CHANGING LANES kl. 6 og 8
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10 b.i. 12 áraKl. 4.45, 6.50 og 9 VIT 485 Sýnd kl. 5, 7 og 9 VIT 468 FULL FRONTAL kl. 5.30IMP. OF BEING EARNEST kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.30 og 8.30 bi. 12 ára
TÓNLIST Poppstrengjabrúðan Britn-
ey Spears segist vilja færa sig
meira yfir í hiphop á næstu plötu
sinni. Hún á nú í viðræðum við
poppútsetjarann William Orbit og
hljómsveitina Daft Punk um að
stjórna upptökum plötunnar. Upp-
tökur hefjast í næsta mánuði en
Britney hefur verið í fríi síðustu
mánuði.
„Það væri galið ef ég myndi
ekki gera neitt,“ sagði hún í viðtali
við Hollywood Reporter. „Ég verð
alltaf að gera eitthvað. Við erum
ekki byrjuð að gera þetta af alvöru
ennþá en ætlum að byrja á því í
janúar. Tónlistarlega vil ég færa
mig meira yfir í rokk og hiphop
bara til þess að leika mér með það.“
Hún segist þó ekki vera búin að
festa neitt og að tónlistarstefnan
gæti breyst á næstu mánuðum.
Skiljanlega í ljósi þess að þá gæti
einhver önnur tegund tónlistar ver-
ið orðin vinsælli. ■
BRITNEY SPEARS
Alltaf vel með á nótunum?
Britney Spears:
Vill hiphop
og rokk