Fréttablaðið - 09.12.2002, Síða 2
2 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Ásgerður Jóna Flosadóttir er formaður Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur. Mæðrastyrksnefnd gefur
bágstöddum borgarbúum matargjafir fyrir jólin,
m.a. reykt svínakjöt og hangikjöt.
Ég hef verið alin upp við það hefðbundna.
Ég er alltaf á aðfangadag í mat hjá
mömmu, sem er með hamborgarhrygg,
rjúpur og möndlugraut. Á jóladag eldar
maðurinn minn, sem er listakokkur, fyrir
alla fjölskylduna, sem kemur til okkar í
mat. Þá höfum við hangikjöt og grillað
lamb. Foreldrar mínir tóku jólin mjög
hátíðlega og hófst jólahaldið með útvarps-
messunni. Það ríkir mikil gleði á mínu
heimili um hátíðarnar.
SPURNING DAGSINS
ÁLVER Alcoa mun á föstudaginn
árita hafnar- og lóðasamning,
fjárfestingasamning og orku-
samning vegna álversins á Reyð-
arfirði.
Garðar Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Landsvirkjun,
segir að fulltrúar Íslendinga í
samningaviðræðunum hafi átt
gagnlega fundi með forsvars-
mönnum Alcoa í Pittsburgh í síð-
ustu viku. Bandaríkjamennirnir
komi síðan til landsins á næstu
dögum.
„Þessu miðar mjög vel áfram,“
segir Garðar, en bendir á að verk-
ið sé háð ýmsum þáttum. Skipu-
lagsstofnun eigi t.a.m. eftir að
ákveða hvort fallist verði á að
ekki þurfi nýtt umhverfismat fyr-
ir álverið, þ.e. hvort nota megi
matið sem gert var vegna fyrir-
hugaðs álvers Norsk Hydro.
Aðspurður segir Garðar að
upplýsingar um orkuverð verði
aldrei gefnar upp.
„Það er viðskiptaleyndarmál
og ég held að Alcoa myndi ekki
skrifa undir neinn samning ef það
lægi fyrir að gefa ætti orkuverðið
upp. Ég held að það séu hreinar
línur.“
Forsenda álversins er að
Landsvirkjun taki einhverju
þeirra tilboða sem bárust í gerð
Kárahnjúkastíflu og aðrennslis-
ganga virkjunarinnar. Garðar
segist reikna með því að tilboði
ítalska fyrirtækisins Impregilo
verði tekið. Það hafi boðið lægst í
verkið eða samtals 44,4 milljarða
króna, sem var 93,9% af kostnað-
aráætlun.
„Þetta eru engir aukvisar. Þeir
byggðu meðal annars Mont Blanc-
göngin.“ ■
Álverssamningar áritaðir á föstudaginn:
Orkuverðið
leyndarmál
EDINBORG, AP Mikill eldsvoði varð í
þó nokkrum byggingum í hinum
sögufræga gamla bæ í Edinborg í
Skotlandi á laugardagskvöld. Einn
slökkviliðsmaður slasaðist í bar-
áttu við eldinn og um 150 manns
þurftu að yfirgefa heimili sín.
Tjón af völdum eldsvoðans er
metið á hundruð milljóna króna.
„Þetta er tvímælalaust stærsti
eldsvoðinn í Edinborg í manna
minnum,“ sagði slökkviliðsmaður-
inn Graham Torrie. „Það er sér-
staklega sorglegt að sjá bygging-
arnar í gamla bænum eyðileggj-
ast.“
Rúmlega 80 sökkviliðsmönnum
gekk erfiðlega að vinna bug á eld-
inum. Margar af byggingunum
eru yfir 100 ára gamlar og hefur
þeim verið breytt nokkuð í gegn-
um árin. Fyrir vikið gekk erfið-
lega að komast að eldinum, sem
leyndist víða
undir rústunum
þar sem vatn
komst ekki að
honum.
Svo gæti far-
ið að ekki takist
að slökkva alveg
í glóðunum fyrr
en í dag eða á
morgun. Veru-
leg hætta var á
því að eldur
kviknaði í kuln-
uðum glóðunum á
ný vegna hvass-
viðris. Mörgum
götum var lokað og var talin
hætta á frekara hruni í húsunum.
Bruninn náði til þrettán húsa í
svonefndu Cowgate-hverfi, sem
er í hjarta Edinborgar. Gamli mið-
bærinn er á minjaverndarskrá
Menningarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, UNICEF, enda er hann
að hluta til frá því á miðöldum.
Þetta hverfi er skammt frá gamla
kastalanum í Edinborg og nýtur
mikilla vinsælda meðal ferða-
manna í borginni.
Eldurinn kviknaði á laugar-
dagskvöldið laust eftir klukkan
átta. Talið er að hann hafi átt upp-
tök sín fyrir ofan næturklúbbinn
La Belle Angele, sem staðsettur
er fyrir aftan hinn fræga stað
Gilded Balloon, þar sem gaman-
sýningar hafa verið haldnar.
Litlu munaði að slökkvilið Ed-
inborgar væri í verkfalli þegar
þessi eldsvoði varð. Átta daga
verkfall átti að hefjast á miðviku-
daginn var en því var frestað til
þess að liðka fyrir samningavið-
ræðum. ■
Eldsvoði í Edinborg
Gamli miðbærinn brann að hluta. Þrettán byggingar skammt frá
gamla kastalanum stórskemmdar. Stærsti eldsvoðinn í Edinborg
í manna minnum.
OLÍU HELLT Í SJÓINN Franski
varnarmálaráðherrann segir að
eitthvað af olíunni, sem sást í haf-
inu úti af ströndum Frakklands,
sé ekki komið úr olíuskipinu
Prestige sem sökk 19. nóvember.
Ófyrirleitnir skipstjórar hafi los-
að sig við olíu í skjóli þess að
mengun sé hvort eð er í sjónum.
SNJÓFLÓÐ Í ÖLPUNUM Fimm
skíðamenn fórust þegar snjóflóð
féllu í gær norðantil í frönsku
Alpafjöllunum. Fimm aðrir slös-
uðust illa.
Gamli miðbærinn í
Þrándheimi brunninn:
Rjúkandi
ísrústir
NOREGUR Þegar íbúar Þrándheims
vöknuðu í gærmorgun blasti við
þeim hrikaleg sýn sem vart leit út
fyrir að vera af þessum heimi.
Ekki var nóg með að gamli mið-
bærinn væri stórskemmdur af
bruna frá því deginum áður. Vatn-
ið, sem sprautað var til þess að
slökkva eldinn, hafði frosið. Engu
var líkara en hús og götur hefðu
breyst í draugalegar íshallir sem
þar að auki rauk úr.
Þessari undarlegu sýn var lýst
í norska dagblaðinu Aftenposten í
gær.
Talið er að skaðinn nemi allt að
tveimur milljónum íslenskra
króna.
Uppruna brunans má rekja til
þess að kokkur á veitingahúsinu
News reyndi að slökkva í steikar-
potti. Í stað þess að reyna að kæfa
eldinn tók hann slökkvitæki og
sprautaði á hann. Allt hverfið er
meira og minna brunnið. ■
FRÁ UPPTÖKUM
Kona í þjóðbúningi fellur um koll í Ára-
mótaskaupinu 2002.
Óskar Jónasson:
Furðulegt Ára-
mótaskaup
GAMLÁRSKVÖLD „Innihaldið er ein-
faldlega algert trúnaðarmál og
það eina sem ég get sagt er að
Skaupið er furðulegt,“ segir Ósk-
ar Jónasson, leikstjóri og stjórn-
andi Áramótaskaupsins, sem sýnt
verður að venju í Ríkissjónvarp-
inu á gamlárskvöld.
Óskar vinnur nú að því að
klippa Skaupið og ganga endan-
lega frá því og er þeirri vinnu að
ljúka: „Við eltumst ekkert við
Skaupið frá því í fyrra. Nú er allt
annað ár og þess vegna gerum við
allt annað Skaup,“ segir hann. ■
Hvít jól fyrir norðan -
rauð fyrir sunnan:
Frost á Þor-
láksmessu
VEÐUR Samkvæmt langtímaspám
bandarísku veðurstofunnar stefn-
ir allt í að það verði hvít jól á
Norðurlandi en rauð í Reykjavík
og nágrenni: „Þessar spár byggja
á útreikningum á ástandi loft-
hjúpsins. En það er með þessar
spár eins og aðrar spár að þetta
eru bara spár,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur, sem
styðst að mestu leyti við banda-
rískar spár í veðurspám sínum:
„Ég sé fyrir að í Reykjavík verði
norðan strekkingur og 2-4 stiga
frost á Þorláksmessu. Svo ætti að
hlýna eilítið á aðfangadag en það
verður úrkomulaust og því enginn
snjór. Á Norður- og Austurlandi
verða él,“ segir hann. ■
Hvað borðar þú um jólin?
250 krökkum boðið í bíó:
Söfnuðu
hálfri milljón
HJÁLPARSTARF Um 250 tombólu-
krakkar á höfuðborgarsvæðinu og
foreldrar þeirra fjölmenntu á
myndina Pétur og köttinn II í boði
Laugarásbíós og Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins í gær. Boð-
ið fengu krakkarnir í þakklætis-
skyni fyrir að safna fé sem þeir
afhentu Rauða krossi Íslands á ár-
inu til styrktar fátækum börnum í
útlöndum.
Um hálf milljón króna safnað-
ist á árinu 2002, sem er talsvert
meira en árið áður. Allt féð rennur
til að aðstoða munaðarlaus og fötl-
uð börn í Tansaníu. ■
Í BÍÓ
Krakkarnir duglegu höfðu gaman af bíó-
sýningunni.Til viðbótar framlagi tombólu-
krakkanna leggst fé sem börn á leikskólan-
um Norðurbergi í Hafnarfirði söfnuðu.
Börnin á Norðurbergi hafa verið að safna
flöskum til endurnýtingar allt árið og af-
raksturinn gáfu þau til Rauða krossins.
Al Kaída boðar fleiri
árásir gegn Ísrael:
Fjórir Palest-
ínumenn
falla á Gaza-
strönd
JERÚSALEM, AP Ísraelskir hermenn
skutu í gær til bana fjóra Palest-
ínumenn sem höfðu reynt að gera
árás á byggð ísraelskra landtöku-
manna skammt frá borginni
Rafah á Gaza-strönd. Tveir
Palestínumenn komust undan.
Palestínumenn reyna oft að
ráðast inn í byggðir gyðinga á
Gaza-strönd. Ísraelski herinn ger-
ir sömuleiðis árásir á svæði
Palestínumanna nærri daglega.
Í gær sögðust samtökin al
Kaída bera ábyrgð á sprengjuárás
á ísraelskt hótel í Kenýa í lok nóv-
ember og flugskeytaárás á ísra-
elska flugvél sama dag.
Sulaiman Abu Gaith, einn for-
sprakka al Kaída, sagði jafnframt
að árásum á „krossferðabandalag
Gyðinga“ muni fjölga mikið á
næstunni. ■
ERLENT
LANDSVIRKJUN
Garðar Ingvarsson, framkvæmdastjóri hjá
Landsvirkjun, segir að fulltrúar Íslendinga í
samningaviðræðunum hafi átt gagnlega
fundi með forsvarsmönnum Alcoa í Pitts-
burgh í síðustu viku.
SLÖKKVILIÐS-
MAÐUR VIÐ
RÚSTIRNAR
Mikið tjón varð í
þrettán húsum í
gamla miðbænum í
Edinborg.
SPRAUTAÐ Á ELDINN
Í gær unnu slökkviliðsmenn enn hörðum
höndum við að halda eldinum í skefjum.
AP
/P
A,
B
EN
C
U
RT
IS