Fréttablaðið - 09.12.2002, Page 6
INNBROT Í BREIÐHOLTI Þrjú innbrot
í bifreiðar voru tilkynnt lögreglu í
gær. Var hljómtækjum stolið og
öðru lauslegu. Innbrotin voru í mið-
bæ og tvö í Breiðholti en að sögn
lögreglu hafa Breiðhyltingar að
undanförnu orðið illa fyrir barðinu
á þeim sem stunda innbrot í bíla.
INNBROT Í HEIMAHÚS Helgin var
óvenju róleg hjá í Reykjavík um
þessa helgi. Tilkynnt um eitt inn-
brot í miðborginni snemma laugar-
dags. Hafði hurð verið spennt upp
og þeir sem að verki voru leituðu
inngöngu. Mun sáralitlu hafa verið
stolið og er málið í rannsókn.
6 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 46
1.
2.
3.
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns kom fram á miklum af-
mælistónleikum Sparisjóðs
Hafnarfjarðar í gær. Hvað heitir
saxófónleikari hljómsveitarinn-
ar?
Skeleggur þingmaður lét þau
ummæli falla nýlega við um-
ræður um fjárlagafrumvarp
næsta árs að Hafrannsókna-
stofnun væri meinvarp í ís-
lensku samfélagi. Hver var sá?
Fyrir nokkru játaði eigandi fast-
eignasölu á sig tugmilljóna fjár-
svik. Hvað heitir fasteignasalan
sem viðkomandi rak?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85.51 0.35%
Sterlingspund 134.31 0.46%
Dönsk króna 11.52 0.46%
Evra 85.57 0.45%
*Bandarískar vísitölur kl. 17
FÓLK Um 100 manns söfnuðust
saman í kuldanum í röð fyrir utan
verslunina Nexus í gær. Auglýst
hafði verið miðasala á sérstaka
forsýningu á annari mynd Hringa-
dróttinsþríleiksins, „The Two
Towers“, sem fer fram þann 12.
desember næstkomandi. Hörðustu
aðdáendur sögunnar mættu um kl.
23 á laugardagskvöldið en miðasal-
an hófst ekki fyrr en kl. 17 í gær.
„Ég kom í gærkvöldi með vini
mínum, sem er sofandi við hliðina
á mér,“ sagði Egill Búi Einarsson,
17 ára, sem beið fremstur í röðinni.
Hann segir helstu ástæðu þess
hversu snemma þeir félagar
mættu vera að strætó byrjar ekki
að ganga fyrr en kl. 10 á sunnu-
dagsmorgnum. Ef þeir hefðu tekið
hann hefðu þeir ekki náð því að
mæta fyrstir. „Við eyddum tíman-
um með því að tala saman. Aðal-
lega sátum við bara og reyndum að
halda okkur heitum.“
Egill viðurkenndi að kuldinn
hefði verið mikill en sagði þó bið-
ina þess virði. „Ég býst við miklu
af þessari mynd. Mér finnst fyrri
myndin alveg geðveikt góð. Í
annarri myndinni verða mun fleiri
spennuatriði samkvæmt bókinni.“
Skemmtileg stemning hafði
myndast fyrir utan búðina. Röðin
var aðallega mönnuð unglingum
sem styttu sér stundir með bóka-
lestri, spilamennsku og skólalær-
dómi. Auk þess höfðu eigendur
búðarinnar stillt upp sjónvarpi og
myndbandstæki til þess að stytta
þeim þolinmóðustu tímann með
sýningu teiknimynda.
„The Two Towers“ verður tekin
til almennra sýninga hér á landi
annan í jólum og hefur hún fengið
lofsamlega dóma gagnrýnenda í
Bandaríkjunum og Bretlandi. ■
Röð safnaðist fyrir utan verslunina Nexus í gær:
Rúmlega 100 manns biðu eftir miðum
STJÓRNMÁL „Jú, það er rétt. Nú er
Hallbjörn Hjartarson einn þeirra
sem búsettir eru í mínu kjördæmi
og aldrei að vita nema ég ríði á
hans fund með kúrekahatt og at-
hugi hvernig tréð dafnar sem ég
gaf honum fyrir átta árum,“ segir
Árni Steinar Jóhannsson alþingis-
maður.
Vinstri grænir hafa lagt fram
framboðslista í Norðvesturkjör-
dæmi til alþingiskosninga í vor.
Það sem helst ber til tíðinda er að
Árni Steinar, sem áður var á lista
í Norðausturkjördæmi, skipar
annað sætið.
Árni Steinar hafnar því alfarið
að hann hafi verið fluttur hreppa-
flutningum „Við erum með sterka
frambjóðendur í Norðausturkjör-
dæmi sem eru þau Steingrímur J.
Sigfússon og Þuríður Bachmann í
tveimur efstu sætunu. Það hlýtur
að teljast sterkt fyrir hreyfinguna
að vera með fjóra sitjandi þing-
menn sem slást samhentir á öllu
þessu svæði.“
Ef einhver er erkiAkureyring-
ur er það Árni Steinar en hann
segist þekkja þau vandamál sem
steðja að þessu svæði öllu og þau
séu hin sömu hvort heldur er um
landbúnaðarhéruð eða sjávar-
byggðir að ræða. Þar liggi hans
áherslur. „Ég hef aldrei verið
kjördæmapotari heldur beitt mér
fyrir þjóðfélagsbreytingum sem
gagnast landsbyggðinni allri. Að
því leyti til líður mér mjög vel
með þessa ákvörðun.“
Að sögn Árna Steinars er eng-
inn skortur á fólki til að skipa lista
og vinnur uppstillingarnefnd VG
hörðum höndum að uppröðun.
Listar hljóti að vera að fæðast og
búast megi við þeim í byrjun jan-
úar. Talsverð stemning hefur ver-
ið hjá Sjálfstæðisflokki og Sam-
fylkingu í tengslum við prófkjör
flokkanna en Árni Steinar gefur
ekki mikið fyrir það.
„Ég er á móti prófkjörum próf-
kjöra vegna. Menn virðast hafa
gaman af því að fylgjast með
bræðravígum en mín skoðun er sú
að prófkjör séu leið sem nota á ef
óánægja er með forystusveitina.
Mér virðast prófkjör eins og við
höfum séð þau að undanförnu
vera innbyrðis hanaslagur sam-
herja en ekki utanaðkomandi
krafa.“ jakob@frettabladid.is
Ég er ekki kjördæmapotari
Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur lagt fram framboðslista í Norðvesturkjördæmi.
Efsti maður á lista er Árni Steinar Jóhannsson, sem flytur sig um set.
LUNDÚNIR,AP Ungfrú Tyrkland,
Azra Akin, var kjörin ungfrú
heimur fyrir framan tvö þúsund
áhorfendur í Alexandra Palace í
norðurhluta Lundúna á laugardag.
Auk glæsilegrar kórónu hlaut
Akin í verðlaunafé rúmar 13 millj-
ónir króna. Akin, sem hélt upp á
21 árs afmæli sitt í gær, er alin
upp í Hollandi af tyrkneskum for-
eldrum sínum. Hún spilar á flautu
og hefur gaman af ballett og
magadansi.
Keppnin var flutt á síðustu
stundu frá Nígeríu til Lundúna
vegna ófriðar sem hafði brotist
þar út. Um 200 manns létu lífið í
Afríkuríkinu eftir að blaðamaður
skrifaði grein þar sem sagði að
Múhameð, spámaður múslima,
hefði eflaust verið samþykkur
keppninni og hefði jafnvel verið
tilbúinn til að kvænast einum
keppandanna.
Lítið var minnst á ófriðinn á
úrslitakvöldinu. Hin nýkrýnda
ungfrú heimur sagðist þó hafa
verið skelfingu lostin yfir því sem
gerðist í Nígeríu. „Ég vona bara
að heimsbúar geti borið meiri
virðingu hver fyrir öðrum í fram-
tíðinni,“ sagði Akin. ■
KOSS Á KINN
Ungfrú heimur, Azra Akin, tekur við kossi á kinn frá ungfrú Noregi, sem komst í 10 manna
úrslit keppninnar. Ungfrú Perú, sem lenti í þriðja sæti, fylgist með. Í öðru sæti lenti ungfrú
Kólombía. Alls tóku 92 fegurðardrottningar víðs vegar að úr heiminum þátt í keppninni.
Ungfrú Tyrkland er fegursta kona heims:
Hefur gaman af maga-
dansi og flautuleik
Akureyri
„Drullumall-
ari“ rotast
LÖGREGLA Betur fór en á horfðist á
Akureyri í gær en þá voru þrír
menn á ferð og að leik í Hlíðar-
fjalli á utanvegamótorhjólum eða
mótorkross vélhjólum. Slíkir mót-
orhjólamenn eru jafnan kallaðir
„drullumallarar“ af heimamönn-
um. Ekki vildi betur til en svo að
einn þeirra keyrði ofan í holu og
kastaðist af hjóli sínu. Lögregl-
unni var tilkynnt um meðvitund-
arlausan mann í Hlíðarfjalli og
hafði viðbúnað í samræmi við það.
Í ljós kom að hann hafði rotast og
var vankaður í nokkurn tíma.
Mótorhjólakappinn var fluttur til
aðhlynningar á slysadeild, en
hann hlaut skurði í andlit og er
hugsanlega kjálkabrotinn. ■
ÍSRAEL
Konunum er smyglað til Ísraels af mönn-
um sem lofa þeim lögmætum störfum.
Konur frá fyrrum
Sovétríkjunum:
Seldar í kyn-
lífsþrælkun
JERÚSALEM, AP Um þrjú þúsund
konur, flestar frá Sovétríkjunum
fyrrverandi, eru seldar á hverju
ári til Ísraels í kynlífsþrælkun.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
ísraelska þingið lét vinna fyrir
sig. Dómskerfi Ísraels er harð-
lega gagnrýnt í skýrslunni fyrir
að taka léttvægt á málinu.
Konunum er yfirleytt smyglað
til Ísraels af mönnum sem lofa
þeim lögmætum störfum. Þegar
þangað er komið eru þær hins
vegar seldar fyrir um 250-500
þúsund krónur hver til hórmang-
ara. Hver viðskiptavinur greiðir
þeim um 2000 krónur og hirðir
hórmangarinn um 80-90% af
þeirri upphæð. Konurnar vinna
um 12 klukkustundir á dag, sex til
sjö daga vikunnar. ■
BEÐIÐ EFTIR HRINGADRÓTTINSSÖGU
Þessi mætti vígreifur í gær kl. 23.30 ásamt
félaga sínum.
AP
/M
YN
D
LISTINN
1. Jón Bjarnason, Blönduósi
2. Árni Steinar Jóhannsson, Akureyri
3. Lilja Rafney Magnúsdóttir, Suðureyri
4. Hildur Traustadóttir, Brekku Borgarfirði
5. Sigurlaug Kr. Konráðsdóttir, Sauðárkróki
6. Eva Sigurbjörnsdóttir, Djúpavík
ÁRNI STEINAR JÓHANNSSON
Honum virðast prófkjör að undanförnu vera innbyrðis hanaslagur samherja en ekki utan-
aðkomandi krafa og segir að vænta megi framboðslista vinstri grænna í byrjun janúar.