Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 8
8 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Með veðurstöðinni spáir þú
sjálfur í veðrið. Veðurstöðin,
sem er dönsk hönnun frá Jacob
Jensen, samanstendur af eining-
um sem hver og einn getur rað-
að saman eftir því hvaða mæli-
tæki nýtast honum best. Í veður-
stöðina er hægt að fá rakamæli,
loftvog, hitamæli úti og inni,
þráðlaust, klukku og vekjara og
kostar hver eining frá 5.100 kr.
Gull-úrið
Axel Eiríksson
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
Sími 587 4100
MJÓDDINNI
Nýtt - Jacob Jensen hönnun - Nýtt
NEW ORLEANS, AP Demókratinn
Mary Landrieu verður öldunga-
deildarþingmaður fyrir Louisiana
á Bandaríkjaþingi. Hún sigraði í
seinni umferð kosninganna í
Louisiana um helgina. Þar með
hafa repúblikanar 51 þingmann á
öldungadeildinni næstu tvö árin
en demókratar 49.
Þingkosningar voru í Banda-
ríkjunum 4. nóvember síðastlið-
inn. Kjósa þurfti aftur í einu ríki,
Louisiana, vegna þess að enginn
frambjóðenda til öldungadeildar
þar hlaut meira en helming at-
kvæða.
Bandaríkjamenn kjósa til
þings á tveggja ára fresti. Þá eru
kosnir allir þingmenn fulltrúa-
deildar og þriðjungur þingmanna
öldungadeildar. Í nokkrum ríkjum
eru ákvæði um að nái enginn
frambjóðandi til öldungadeildar
hreinum meirihluta, þá þurfi að
kjósa aftur milli þeirra sem flest
atkvæði hlutu.
Repúblikanar háðu harða kosn-
ingabaráttu fyrir öldungadeildar-
sætinu í Louisiana, með George
W. Bush forseta í fararbroddi. Allt
kom þó fyrir ekki og frambjóð-
andi repúblikana, Suzanne Haik
Terrell, hlaut ekki nema 48
prósent atkvæða á móti 52 pró-
sentum sem fóru til Mary
Landrieu. ■
FÆR NÓBELSVERÐLAUNIN
Á ÞRIÐJUDAG
Jimmy Carter ásamt eiginkonu sinni Rosa-
lyn við komuna til Noregs. Vinstra megin á
myndinni er Gunnar Berge, formaður
norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar.
Styttist í afhendingu
Nóbelsverðlauna:
Carter kom-
inn til Noregs
ÓSLÓ, AP Jimmy Carter, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, kom
til Noregs í gær. Honum verða af-
hent þar friðarverðlaun Nóbels
við hátíðlega athöfn á þriðjudag-
inn.
„Það er yndislegt að vera kom-
inn enn á ný til Noregs, ekki síst
af svona stórkostlegu tilefni fyrir
mig og fjölskyldu mína,“ sagði
Carter í gær.
Hann sagðist við komuna til
Noregs ekki sjá neina þörf á því
að fara í stríð gegn Írak, svo
fremi sem Írakar „halda áfram að
standa við skilmálana“. ■
Fjárlagafrumvarp:
Ein tillaga
minnihlutans
samþykkt
ALÞINGI Stjórnarliðar greiddu at-
kvæði með fjárlagafrumvarpinu
en stjórnarandstæðingar sátu hjá
þegar frumvarpið varð að lögum.
Ein breytingartillaga stjórnar-
andstöðunnar, um 700.000 króna
framlag til kvennaráðgjafarinnar,
var samþykkt.
Samkvæmt fjárlögunum verð-
ur rúmra 1.100 milljóna króna af-
gangur af reglulegum rekstri rík-
issjóðs á næsta ári og samtals 11,5
milljarða króna afgangur þegar
tekjur af sölu eigna eru teknar
með í reikninginn. ■
LANDSVIRKJUN Heildarkostnaður
Landsvirkjunar, Rarik og Orku-
bús Vestfjarða af listviðburðum í
stöðvarhúsum fyrirtækjanna og
öðru kynningarstarfi á kjörtíma-
bilinu er rúmar 150 milljónir
króna. Samkvæmt svari iðnaðar-
ráðherra við fyrirspurn Kolbrún-
ar Halldórsdóttur á Landsvirkjun
langstærstan hlutann eða tæpar
107 milljónir. Kostnaður Lands-
virkjunar af listviðburðum í
stöðvarhúsum á kjörtímabilinu er
rúmar 23 milljónir, þar af nam
auglýsingakostnaður 18,5 milljón-
um króna. Sambærilegur kostnað-
ur er ekki gefinn upp fyrir hin
orkufyrirtækin.
Í önnur kynningarmál hefur
Landsvirkjun sett rúmar 83 millj-
ónir á kjörtímabilinu. Þess er get-
ið að inni í upphæðum vegna ann-
arra kynningarmála hjá Lands-
virkjun er kostnaður vegna árs-
fundar fyrirtækisins en hann
nemur 4,5 til 9 milljónum árlega.
Kostnaður við kynningarmál
Rarik á kjörtímabilinu er röskar
45 milljónir og ein milljón hjá
Orkubúi Vestfjarða. Iðnaðarráð-
herra tekur fram að fyrrgreind
kynningarstarfsemi á virkjunar-
svæðum sé eðlilegur hluti af
starfsemi Landsvirkjunar. ■
KOSNINGAR Framsóknarmenn sigr-
uðu í sveitarstjórnarkosningunum
í Borgarbyggð á laugardaginn.
Flokkurinn fékk fjóra menn
kjörna, en sjálfstæðismenn fengu
þrjá og misstu því einn mann.
Borgarbyggðar-
listi hélt sínum
hlut og á tvo menn
í bæjarstjórn.
Þorvaldur T.
Jónsson, oddviti
F r a m s ó k n a r -
manna, er sáttur
við niðurstöðuna.
„Ég er mjög
ánægður með þessi úrslit eftir allt
það stríð sem búið er að vera eftir
þetta kærumál,“ segir Þorvaldur.
„Það sannaðist að okkar málflutn-
ingur átti við rök að styðjast. Við
erum að styrkja okkar stöðu,
þannig að meirihlutinn er bara
eins manns meirihluti núna.“
Þorvaldur segist vera feginn
að kosningunum sé nú loks lokið.
„Þetta er búið að vera kosninga-
stand í heilt ár núna og það er gott
að þessu er lokið.“
Þrátt fyrir sigur Framsóknar-
manna heldur meirihluti Sjálf-
stæðismanna og Borgarbyggðar-
lista velli. Á kjörskrá um helgina
voru 1.793 og neyttu 1.400 kjós-
endur atkvæðisréttar, sem er
78%. Auðir seðlar og ógildir voru
26. Í kosningunum í maí, sem
Framsóknarfélag Mýrasýslu
kærði, var sama atkvæðamagn að
baki fjórða manni Framsóknar-
flokksins og öðrum manni Borg-
arbyggðarlistans. Varpað var
hlutkesti og komst annar maður á
lista Borgarbyggðarlistans í
sveitarstjórnina en fjórði maður
Framsóknarflokksins ekki.
Á fundi yfirkjörstjórnar Borg-
arbyggðar nóttina eftir kosning-
arnar voru átta af níu utankjör-
fundaratkvæðum úrskurðuð ógild
þar sem kjósendur höfðu ekki rit-
að nafn sitt á fylgibréf. Eitt sam-
bærilegt atkvæði sem greitt var í
Lyngbrekku var hins vegar tekið
gilt. Það reyndist afdrifaríkt.
Framsóknarmenn kærðu kosn-
ingarnar nokkrum dögum síðar til
félagsmálaráðuneytisins, sem úr-
skurðaði þær ógildar. Þeim úr-
skurði var síðan hrundið af Hér-
aðsdómi Vesturlands. Um miðjan
nóvember dæmdi Hæstiréttur
kosningarnar hins vegar ógildar.
„Það utankjörfundaratkvæði, sem
ranglega hafði verið sett í kjör-
kassa í Lyngbrekku og ókleift var
að afturkalla, gat því beinlínis
haft áhrif á úrslit kosninganna og
hlaut þessi ágalli að leiða til ógild-
ingar þeirra,“ sagði í dómi Hæsta-
réttar.
trausti@frettabladid.is
Oddviti
Borgarbyggðarlista:
Ósáttur við
ráðuneytið
KOSNINGAR Finnbogi Rögnvalds-
son, oddviti Borgarbyggðarlistans
og formaður bæjarráðs, segist til-
tölulega sáttur við niðurstöðu
kosninganna.
„Maður var ekkert sérstaklega
sáttur við niðurstöðuna í vor en
þetta er skárra,“ segir Finnbogi.
„Maður verður bara að taka því að
fylgið er ekki mikið og reyna að
bæta það á kjörtímabilinu.“
Finnbogi segir að meginniður-
staðan sé að meirihlutinn haldi
velli. Vonandi verði það sveitarfé-
laginu til góðs. Hann segist hins
vegar vera ósáttur við félags-
málaráðuneytið og þann laga-
ramma sem unnið hafi verið eftir.
Finnbogi segir að það hafi tek-
ið allt of langan tíma að komast að
niðurstöðu um ógildingu kosning-
anna en félagsmálaráðuneytið
úrskurðaði þær ógildar tveimur
mánuðum eftir að úrslitin voru
komin fram. Hann segir því ljóst
að endurskoða þurfi lög um sveit-
arstjórnarkosningar. ■
Oddviti
Sjálfstæðismanna:
Ósátt við að
missa mann
KOSNINGAR Helga Halldórsdóttir,
oddviti Sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórn Borgarbyggðar, segist vera
mjög ánægð með að meirihlutinn
hafi haldið velli í kosningunum á
laugardaginn.
„Maður er samt náttúrulega
aldrei sáttur við að missa mann,“
segir Helga, en Magnús Guðjóns-
son missti sæti sitt í bæjarstjórn
til framsóknarkonunnar Kolfinnu
Þ. Jóhannesdóttir.
Helga segir að niðurstaða kosn-
inganna sé ótrúlega lík niðurstöð-
unni síðastliðið vor. „Við erum með
28 atkvæðum minna en í vor og
þau virðast fara yfir á Borgar-
byggðarlistann og þeir sem skil-
uðu auðu í vor virðast hafa verið
óánægðir framsóknarmenn sem
skila sér heim núna.“ ■
Kynningarmál orkufyrirtækja ríkisins:
150 milljónir í list og kynningar
KYNNINGARMÁL ORKUFYRIRTÆKJA RÍKISINS Í MILLJÓNUM KRÓNA
Landsvirkjun Rarik Orkubú Vestfjarða
1999 22,35 11,0 0
2000 22,85 14,7 1
2001 27,35 11,4 0
2002 27,2 8,3 0
Alls 106,75 45,4 1
AP
/S
C
AN
PI
X,
B
JØ
R
N
S
IG
U
R
D
SØ
ÞINGMENN DEMÓKRATA Í LOUISIANA
Mary Landrieu sagði úrslit kosninganna sýna að Demókrataflokkurinn væri enn við góða
heilsu. Á myndinni eru með henni tveir aðrir þingmenn frá Louisiana, þeir Chris John,
sem er vinstra megin, og John Breaux.
Bandarísku þingkosningunum loksins lokið:
Demókratinn hafði
það í Louisiana
AP
/B
IL
L
H
AB
ER
Framsóknarmenn
bættu við sig manni
Meirihluti Sjálfstæðismanna og Borgarbyggðarlista heldur velli.
Sjálfstæðismenn missa mann. Oddviti Framsóknarmanna er feginn
að kosningunum sé lokið.
„Þetta er búið
að vera kosn-
ingastand í
heilt ár núna
og það er gott
að þessu er
lokið.“
KOSNINGUM LOKS LOKIÐ
Í kosningunum í maí, sem Framsóknarfélag Mýrasýslu kærði, komst annar maður á lista
Borgarbyggðarlistans inn í bæjarstjórn á kostnað framsóknarmanna. Hlutkesti réði því.
AUKAKOSNINGAR Í BORGARBYGGÐ
Flokkur Atkvæði Bæjarfulltrúar
Framsóknarflokkur 41% 4
Sjálfstæðisflokkur 38% 3
Borgarbyggðarlisti 21% 2
ÚRSLIT KOSNINGANNA Í MAÍ
Flokkur Atkvæði Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokkur 41% 4
Framsóknarflokkur 39% 3
Borgarbyggðarlisti 20% 2
ORÐRÉTT
VAR SIGMUNDUR AÐ HÆTTA?
Reykingafólk er margt hvert
meðal verstu sóðanna. Það hímir
framan við aðaldyr fyrirtækja
sinna og drepur í vindlingnum
með hælnum og heldur svo aftur
til vinnu.
Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri um
almennan sóðaskap Íslendinga.
DV, 7. desember.
DREKKA FORELDRAR EKKI
MEÐ BÖRNUM SÍNUM?
Þær sýna að unglingar leiðandi
foreldra eru ólíklegri til að reykja
daglega, drekka illa og neita ólög-
legra efna en aðrir unglingar.
Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor
í uppeldis- og menntunarfræði við HÍ, um
rannsóknir sínar. Mbl. 8. desember.