Fréttablaðið - 09.12.2002, Page 13
MÁNUDAGUR 9. desember 2002
Laugavegur • Kringlan • Smáralind • Hafnarfjörður • Keflavík • Akureyri • Húsavík • Mosfellsbær
frá kr. 98-1.998,-
Mikið úrval af leikföngum og gjafavöru
EI
N
N
, T
VE
IR
O
G
Þ
R
ÍR
2
42
.0
17
Höfum opnað á nýjum og betri stað í Smáralind!
Serbar:
Reyna að
kjósa forseta
BELGRAD, AP Hófsamur þjóðernis-
sinni og tveir gallharðir hægri-
menn voru í framboði til forseta
Serbíu. Gerð var önnur tilraun til
þess að velja á milli þeirra í gær.
Fyrri tilraunin dæmdist ógild
vegna þess að kosningaþátttakan
var ekki nógu mikil.
Sigurstranglegastur þótti Voj-
islav Kostunica, sem er forseti
Júgóslavíu. Hann er þjóðernissinni
sem jafnframt er lýðræðissinni og
vill fara varlega í umbætur. Mót-
frambjóðendurnir eru Vojislav
Seselj, sem er róttækur þjóðernis-
sinni, og Borislav Pelevic, sem
sömuleiðis er harður þjóðernis-
sinni. ■
FRÁ GRÆNLANDI
Innan fárra ára þurfa Grænlendingar að
taka afstöðu til þess hvort þeir vilja aukið
sjálfstæði frá Dönum.
Ný stjórn að fæðast á
Grænlandi:
Stefnir að
auknu
sjálfstæði
GRÆNLAND Siumut, sem er flokkur
jafnaðarmanna, og Inúítaflokkur
vinstrisinna hafa komið sér sam-
an um stjórnarmyndun á Græn-
landi. Báðir flokkarnir vilja aukið
sjálfstæði Grænlands. Inúíta-
flokkurinn vill að þjóðaratkvæða-
greiðsla verði um sjálfstæði
landsins árið 2005.
Siumut hlaut 10 þingsæti og
Inúítaflokkurinn 8 í þingkosning-
unum í síðustu viku. Samtals hafa
þeir því 18 þingmenn af 31 á
grænlenska landsþinginu.
Þessir tveir flokkar hafa farið
saman með stjórnartaumana á
Grænlandi lengur en aðrir flokk-
ar. Upp úr samstarfi þeirra slitn-
aði síðast vorið 2001. Eftir það
myndaði Siumut stjórn með borg-
araflokknum Atassut, sem vill
fara sér hægar í sjálfstæðismál-
inu.
Siumut fær fjóra ráðherra í
landsstjórninni en Inúítaflokkur-
inn þrjá, að því er fram kemur á
fréttavef grænlensku útvarps-
stöðarinnar Kalaallit Nunaata.
Formaður landsstjórnarinnar
verður Hans Enoksen, sem sigr-
aði í formannskjöri Siumut í októ-
ber. Hann talar ekki dönsku og
vill að umræður á landsþinginu
fari eingöngu fram á grænlensku.
Nýja landsþingið kemur saman
næsta laugardag. Þá verður kosin
ný landsstjórn. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó