Fréttablaðið - 09.12.2002, Qupperneq 16
16 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Við getum ráðið sýn okkar á ís-
lenska menningu. Hver hún er,
hversu burðug hún er, hvers
virði hún er. Þetta
vita allir. Það er
því undarlegt að
við virðumst öll
hafa sömu sýnina
á íslensku menn-
ingu.
F j ö l n i s m e n n
og samferðamenn
þeirra breyttu
sem kunnugt er
sýn Íslendinga á
menningu sína og tókst með því
að endurvirkja samfélagið.
Þetta voru rómantíkerar; upp-
fullir af ást á þjóðinu, landinu og
sögunni. Þeir blésu kjarki í
brjóst fólks með því að hamra á
sérstöðu þess. Og hittu naglann
á höfuðið. Þetta var akkúrat það
sem fólk þurfti að heyra á þeim
tíma.
Þrátt fyrir nokkrar atlögur
gegn þessari sýn lifir hún góðu
lífi í dag. Hún er hin eiginlega
þjóðartrú og -kirkja. Eftirstríðs-
árakynslóðin reyndi að höggva í
undirstöður þessarar trúar með
því að sleppa endarími í ljóðum
sínum og hætta að mála Þingvelli
á síðsumri eða þessar fáeinu
hríslur í Húsafelli. En þessi kyn-
slóð gafst upp frammi fyrir ís-
lenskri menningu og gerðist
þjóðræknari en nokkur önnur.
Stóru kynslóðirnar á sjöunda og
áttunda áratugnum reyndu líka
fyrir sér í alþjóðlegri sýn á ís-
lenska menningu í takt við æsku-
byltinguna úti í löndum. En flest-
ir höfundar þessara kynslóða eru
fyrir löngu lagstir í sögulegar
skáldsögur og myndlistarmenn-
irnir í landslag.
Við trúum því að við séum
bókaþjóð, en samt man ég vart
eftir íslenskri bók sem hefur
haft nokkur áhrif á samfélagið.
Það gerðist síðast fyrir mína tíð.
Við framleiðum lifandi býsn af
bókum að því er virðist fyrst og
fremst til að viðhalda íslenskri
menningu, það er þeirri sýn á
hana sem við burðumst með.
Við trúum á menningarlegt
hlutverk Ríkisútvarpsins, en
samt hefur Ríkisútvarpið engin
áhrif á íslenska menningu. Það
útvarpar hins vegar efni sólar-
hringum saman til að viðhalda
gamalli sýn á íslenska menningu.
Gallinn er að þessi sýn er
dauð. Hún gefur okkur ekkert.
Nema ranghugmyndir um sér-
stöðu okkar í veröldinni. Ef okk-
ur tækist að leysa úr læðingi
alla þá orku sem fer í að við-
halda þessum hugmyndum
myndi hér rísa upp stórkostlegt
samfélag. En til þess þurfum við
að leggja af delluhugmyndir
okkar um íslenska menningu. ■
Flestir höfund-
ar þessara kyn-
slóða eru fyrir
löngu lagstir í
sögulegar
skáldsögur og
myndlistar-
mennirnir í
landslag.
Dauð sýn á íslenska menningu
skrifar um íslenska menningu.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Auglýsingar
unnar í sjálf-
boðavinnu
Árni Finnsson skrifar fyrir hönd Náttúru-
verndarsamtaka Íslands:
Helgi Pétursson skrifar í Frétta-blaðið um daginn og veginn á
fimmtudag og undrast hann að
„Náttúruverndarsamtök Íslands,
sem ég hélt að væru fjárvana
áhugamannasamtök eins og öll slík,
auglýsa þessa dagana í sjónvarpi á
dýrasta tíma þá skoðun sína að „það
tapa allir á Kárahnjúkavirkjun.“
Helga Pétursson fýsir að vita hver
borgar.
Svarið er að öll vinna við gerð
auglýsinga fyrir Náttúruverndar-
samtök Íslands var unnin í sjálf-
boðavinnu. Annar kostnaður greið-
ist af frjálsum framlögum þeirra
sem styðja málstað náttúruverndar.
Á undanförnum mánuðum hafa
fjölmargir gengið til liðs við Nátt-
úruverndarsamtökin til að efla
þann málstað þeirra að vernda þau
dýrmætu svæði á miðhálendi Ís-
lands sem Landsvirkjun og stjórn-
völd vilja leggja undir virkjanir.
Landsvirkjun hefur líkt og Helgi
Pétursson reynt að gera mikið úr
kostnaði vegna sjónvarpsauglýs-
inga Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands enda hafa þær mælst afar vel
fyrir meðal almennings. Það sem
vex þeim í augum er að hefði
Landsvirkjun staðið að gerð og birt-
ingu slíkra auglýsinga í þágu virkj-
anaframkvæmda hefði kostnaður-
inn vafalaust hlaupið á nokkrum
miljónum króna. Allur kostnaður
Landsvirkjunar til að styrkja
ímynd fyrirtækisins greiðist af
okkar sameiginelga orkureikningi.
Náttúruverndarsamtök Íslands
verða hins vegar að reiða sig á
sjálfboðavinnu og frjáls fjárfram-
lög. Í samanburði við það fé sem
Landsvirkjun eyðir af almannafé til
áróðurs fyrir virkjanir eru þeir
fjármunir sem Náttúruverndar-
samtök Íslands hafa úr að spila
smáaurar. ■
FASTEIGN Lóðamat á húseign í
Hafnarfirði hækkaði úr 300 þús-
undum króna í 3 milljónir við end-
urskoðun fasteignamats í fyrra
eða tífalt.
Gunnar Halldórsson, fyrrver-
andi eigandi hússins, er mjög
ósáttur við þessi vinnubrögð fast-
eignamatsnefndar. Fyrir tveimur
árum, eða ári áður en endurmatið
var gert, skipti hann húsinu í
tvennt og fékk neðri hæðina sam-
þykkta. Þá var allt húsið metið og
samkvæmt því var lóðamatið 292
þúsund krónur. Ári seinna var það
hækkað í rúmar þrjár milljónir.
Gunnar átti þá 74% eignahlut í
húsinu og var lóðamat hans eign-
arhluta metið á 2,9 milljónir.
Hann kærði það og var það þá
lækkað niður í 2,3 milljónir.
Nefndin kærði hins vegar matið á
26% eignahlutanum og liggur nið-
urstaða í því máli ekki fyrir.
Þrátt fyrir þetta segist Gunnar
enn vera ósáttur enda óskiljanlegt
hvernig húseign, sem hafi verið
metin ári áður en endurskoðun
fasteignamats hafi verið gert, geti
hækkað tífalt. ■
Ósáttur við endurskoðun fasteignamats:
Tíföld hækkun
lóðamats
LOGI BERGMANN EIÐSSON
sjónvarpsmaður
Hvar eru
krimmarnir?
„Ég hef ekki
lesið neina
bók sem
kemur út
fyrir þessi
jól og get
því ekki lagt
neitt gæða-
mat á til-
nefningarnar. En svona ut-
an frá séð er ekkert sem
kemur mér á óvart svona í
fljótu bragði – og hefði
verið hægt að giska svona
nokkurn veginn á að þess-
ir höfundar færu á pallinn.
Skemmtilegt þykir mér að
sjá Mikael Torfason þarna
í ljósi alls þess sem á und-
an er gengið. Hann á ör-
ugglega fullt erindi. Ég
get ekki sagt að ég sakni
neinna höfunda en það
eina sem ég hnýtt um er að
enginn þeirra fjölmörgu
krimma sem koma út núna
hlýtur náð fyrir augum
dómnefndar. Arnaldur
Indriðason hefur til dæm-
is verið að stimpla sig
rækilega inn á undanförn-
um árum og ég spyr mig
hvort þessi tegund bók-
mennta eigi ekki upp á
pallborðið þegar fagur-
bókmenntir eru annars
vegar.“ ■
ÞÓRA S. INGÓLFSDÓTTIR
bókmenntafræðingur
Sakna
Guðrúnar Evu
„Ég var
mjög ánægð
með að
l j ó ð a b ó k
Ingibjargar
H a r a l d s -
dóttur skyl-
di komast í
þennan hóp
en það kom mér á óvart að
Mikael Torfason skyldi
hafa fengið tilnefningu.
Það er þó auðvitað jákvætt
að ungur og framúrstefnu-
legur rithöfundur skuli fá
tilnefningu en ég hefði
gjarnan viljað sjá Guð-
rúnu Evu Mínervudóttur
þarna því að hún er mjög
áhugaverður og vaxandi
höfundur. Þá finnst mér
Landneminn mikli hafa
fengið verðskuldaða til-
nefningu í fræðibóka-
flokknum.“ ■
HRAFN JÖKULSSON
ritstjóri
Auglýsinga-
verðlaun
„Lífið er
lotterí. Það
er engin
leið að reik-
na út fyrir
fram hvaða
b æ k u r
hljóta náð
hverju sinni
þegar þessi sérkennilegu
auglýsingaverðlaun eru
annars vegar. Fyrir löngu
hefur skapast sú hefð að
tilnefna jafnan fjóra karla
og eina konu en þess má
reyndar geta að Ingibjörg
Haraldsdóttir mun hljóta
verðlaunin að þessu sinni.
Fyrir utan bók Ingibjargar
hef ég ekki lesið bækurn-
ar sem eru tilnefndar þó
ég hafi að vísu gert nokkr-
ar mislukkaðar atrennur
að Lovestar Andra Snæs. Í
þessu lotteríi hefðu önnur
nöfn getað komið upp, ég
nefni Vigdísi Grímsdóttur,
Steinunni Sigurðardóttur,
Einar Má Guðmundsson,
Þórarin Eldjárn, Steinar
Braga, Guðrúnu Evu, Sig-
urð Pálsson, Kristján Þórð
Hrafnsson og Þorstein frá
Hamri, sem að mínu viti
ætti að fá þessi verðlaun á
hverju ári.“ ■
BRYNDÍS LOFTSDÓTTIR
verslunarstjóri
Gengið fram
hjá Guðrúnu Evu
„Ég get
n æ s t u m
grátið af
harmi yfir
því að Guð-
rún Eva
skuli ekki
hafa fengið
tilnefningu
og ég er bara reið og sár
yfir þessu. Guðrún Eva er
okkar langefnilegasti rit-
höfundur og ég tek ofan
fyrir henni og mér finnst
stórlega gengið fram hjá
þessari stúlku sem ég
þekki annars ekki neitt.
Það hefði líka verið gaman
að sjá Arnald Indriðason
tilnefndan auk fleiri ungra
rithöfunda.
Það sem kom mér mest
á óvart við þetta var
hversu lítið þetta kom mér
allt á óvart og hvað þetta
var allt fyrirsjáanlegt. Ég
hélt fyrir fram að eitthvað
myndi koma mér í opna
skjöldu en ég get ekki sagt
það. Það er helst að til-
nefning Mikaels Torfason-
ar hafi komið mér að óvör-
um.“ ■
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
bókagagnrýnandi
Loksins
ný kynslóð
„Það var
ekkert sem
kom mér
stórkostlega
á óvart varð-
andi tilnefn-
i n g a r n a r .
Mér fannst
mjög gaman
að sjá þessa ungu höfunda
Andra Snæ og Mikael Torfa-
son í þeim hópi og til marks
um að koma sé fram ný kyn-
slóð í stétt rithöfunda – ekki
vanþörf á því. Ég ætla að
leyfa mér að spá Ingibjörgu
Haraldsdóttur góðu gengi í
keppni milli þessara fimm
höfunda sem tilnefndir
voru. Þetta er góð bók og
virðist stemning fyrir
henni. Alltaf gaman þegar
ljóð hljóta athygli.
Það má endalaust deila
um hvort einhver hefði átt
heima í hópi þeirra sem til-
nefndir voru og erfitt um
það að dæma. Þetta veltur
náttúrulega allt á fólkinu í
nefndinni því misjafn er
smekkur manna. Og það má
gjarnan koma fram að mér
finnst mjög gott að horfið
hafi verið frá því að hafa
einvald sem ákveður hvaða
bækur eru tilnefndar. Í
nefndinni má ætla að fari
fram umræður og misjöfn
sjónarmið fái notið sín. Sem
lýðræðissinni finnst mér
þetta ólíkt geðfelldara
form.“ ■
Umdeildar bókatilnefningar
Það mun sjálfsagt seint ríkja fullkomin sátt um Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Almenn ánægja virðist með hlut ungra rithöfunda þó sumum þyki ofaukið og annarra sé saknað.
Þá þykir fjarvera glæpasagnahöfunda nokkuð grunsamleg.
HAFNARFJÖRÐUR
Lóðamat hækkað úr 300 þúsundum króna
í 3 milljónir.
Í 100 ár hefur FESTINA haft að kjörorði gæði fyrir gott verð.
Stál m/ vikud.
og mánaðard.
með stálfesti
kr. 19.400,-
með ól
kr. 14.500,-
Stál herraúr
100 m vatnsvarið
og öryggislás
Jólatilboð
Verð aðeins
kr. 9.900,-
Gull-úrið
Axel Eiríksson
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
Sími 587 4100
MJÓDDINNI
1902 – 2002